Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1953, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.04.1953, Blaðsíða 2
98 Heima er bezt Nr. 4 Nýjasta skip SÍS. Dísarfell. Það er ekki langt síðan, að ís- lendingar eignuðust sitt fyrsta hafskip. Það var Gullfoss gamli. Allt fram til þess tíma — 1914 — höfðu allir flutningar til og frá landinu farið fram með erlend- um skipum, landsmönnum til mikils tjóns. Nú — tæplega fjörutíu árum síðar — eiga ís- lendingar all-álitlegan flota af ágætum skipum, sem sigla víðs- vegar um heim. Á þessu sviði, sem og á svo mörgum öðrum, hefur orðið snögg breyting, og ef til vill ekki hin þýðingarminnsta á þessum byltingaárum. Nú er það enginn nýr viðburð- ur, að íslenzk skip hlaupi af stokkunum við skipasmíðastöðv- ar nágrannaþjóðanna. Manni finnst, að eiginlega vanti ekki annað en að landsmenn smíði skip sín sjálfir — enda verður þess sennilega ekki langt að bíða, að skipasmíðastöð rísi upp hér í höfuðstaðnum. Skipið, sem myndin er af yfir þessum línum, heitir D í s a r- f e 11, og er nýjasta skip Sam- bands íslenzkra samvinnufélaga. Það er byggt í Svíþjóð og er um 900 þungalestir að stærð. Er það væntanlegt hingað til lands á næstunni. Það er nú liðin tæplega hálf öld síðan, að samvinnumenn fóru að sýna áhuga á að eign- ast eigin kaupskip. Fyrst var stofnað til skipakaupa á vegum Sambands ísl. samvinnufélaga á stríðsárunum fyrri, en þá voru miklir erfiðleikar á siglingum til landsins, eins og kunnugt er. Var þá keyptur hlutur í mótor- skipinu „Svölu“. Það fórst árið 1922. Hinn núverandi skipafloti Sambandsins er ekki eldri en frá árinu 1946. Þá var skipið ,,Hvassafell“ keypt frá ítaliu. Síðan hefur Sambandið eignazt fleiri skip. Sigla þau til margra landi og jafnvel heimsálfa. Geta má þess, að „Arnarfell“ er í þann veginn að leggja af stað til Brazilíu, þegar línur þessar eru skrifaðar. Fyrir eyþjóð, eins og okkur ís- lendinga, er það óumflýjanleg nauðsyn að efla sKipaflotann. Hnignun þjóðarinnar hófst, þeg- ar landsmenn hættu að eiga hafskip á þrettándu öldinni. Svo má segja, að stærstu skrefin til framfara í landinu verði um þær mundir, sem landsmenn fara að taka siglingarnar í eigin 1. Enda þótt þessi einmana björk standi á gróðursnauðri og blásinni auðn, hefur hún samt náð að festa rætur og vaxið og dafnað í skjólleysi og fárviðrum. — Svipuðu máli gegnir með hinn einmana, sterka ein- stæðing í mannheimum. Oft koma sterkustu persónuleik- arnir þaðan sem svalveður hafa um þá blássið og lítið hefur verið um skjól. — Ljósm.: Þorst. Jósepsson. 2. Skýjatungurnar stefna frá skemmuburstinni á Rauð- nefsstöðum á Rangárvöllum. Ljósm.: Þorst. Jósepsson. 3. Um 18 hestamannafélög eru nú starfandi víðsvegar um sveitir landsins og í stærstu kauptúnunum. Þeim hefur farið ört fjölgandi hin síð- ari ár, enda fer áhugi manna hendur. Stofnun Eimskipafé- lagsins verður talinn einn af merkustu viðburðum þjóðlífsins á þessari öld. Og það er alltaf gleðiefni, þegar aukið er við skipaflotann, vegna þess, að það er enn eitt skref í þá átt, að gera þjóðina óháðari öðrum. sivaxandi á góðum reiðhest- um, samfara þeirri skemmt- un og hollustu, sem sam- skipti manns og hests veit- ir. Betri tómstundaiðja verð- ur naumast fundin en að leggja hnakk sinn á tíguleg- an gæðing og þeysa út í ríki náttúrunnar. — Myndin er af „Létti“ Jóns Teitssonar og hinum kunna „knapa“, Jóni Ágústssyni, ásamt nokkrum félögum úr Hestamannafé- laginu „Fáki“. Ljósm.: Jón Tcitsson. 4. Veiðibjöllur eru sjaldan gæf- ar eða mannelskar, en hér á myndinni má þó sjá undantekningu frá þessu, enda var veiðibjallan tekin sem ósjálfbjarga ungi úr hreiðrinu og alin upp í mann- heimum. Ljósm.: Þorst. Jósepsson. HEIMA ER BEZT • Ileimilisblað með myndum • Kemur út mánaðarlega • Askriftagj. kr. C7.00 • Utgef.: Bókaútgál'an Norðri • Abyrgðarm.: Albert J. Finnbogason • Ritstjóri: Jón Björnsson • Ileimilisfang blaðsins: Pósthólf 101 Reykjavík • Prentsm. Edda h.f. Myndirnar á forsíðu

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.