Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1953, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.04.1953, Blaðsíða 5
Nr. 4 Heima er bezt 101 hittum fyrir okkur Leirá, og urð- um þar allir um nóttina. Dag- inn eftir gengum við ofan á Akranes. Vorum við þá búnir að vera 6 daga á leiðinni úr Vatns- dal, án þess að vera nokkurn dag um kyrt. Við biðum einn dag á Akranesi eftir sjóferð til Reykja- víkur. Þegar við lentum í Reykjavík varð mér starsýnt á bæinn. Þótti mér húsin vera háreist og standa þétt. Fór þá fyrir mér eins og Öku-Þór, þegar hann kom að höll Útgarða-Loka, að ég varð að reigja hnakkann á bak aftur til að sjá upp fyrir þau. Við félagarnir úr Vatns- dalnum gengum rakleitt upp að Hótel ísland og ætluðum að gista þar um nóttina, en Skagfirðing- arnir fóru eitthvað út í buskann. Sáum við þá ekki síðar. Ekki leizt okkur á blikuna, er við komum inn í hótelið. Okkur var vísað inn í herbergi, sem bæði var fúlt og kalt og óþrifalegt. Þar sat roskin kona og spann á rokk. Við snerum því baki við þessum stað og flýttum okkur í burtu, og fórum inn í Skugga- hverfi. Þar gátum við komið okkur fyrir í litlum steinbæ, vistlegum og þrifalegum. Hygg ég, að hann muni standa enn óhreyfður við Lindargötu. Félagar mínir réðu sig daginn eftir til róðra suður á Álftanes, en ég réðist hjá Jóni nokkrum Einarssyni. Átti hann heima í Reykjavík, en var frá Álftanesi. Skipið, sem hann ætlaði að vera formaður á, var eign Christen- sens-verzlunar í Reykjavík. Skyldi róa því frá Bieringstanga í Vogum. Ég beið eftir skiprúm- inu í einar 3 vikur. Um veru mína í Reykjavík er fátt að segja. Ég hélt til hjá Þórði Þórðarsyni, bróður Hall- dórs prentsmiðjustjóra, en for- maður minn tilvonandi sá mér annars staðar fyrir fæði. Stein- bær Þórðar stendur enn óhagg- aður við Grettisgötu 40 a og set- ur hornið skáhalt út í götuna. Verður hver, sem þarna gengur um veginn, að gera sér að góðu að beygja fyrir það. Þegar búið var að ráða alla hásetana, sigldum við bátnum, sem var 4 manna far, suður að Bieringstanga. Þar stóð all veg- legur sjómannaskáli og fisktöku- hús, hvorttveggja úr timbri. Nú er búið fyrir löngu að rífa þess- ar byggingar og útræði hætt frá tanganum. Af formönnum öðr- um, sem lágu þarna við, var Þórður bóndi frá Hálsi í Kjós og Guðmundur sonur hans. Fisk- tökuhúsið mun Christensens- verzlun hafa átt. Hafði hún þarna mann til að taka á móti blautum fiski og afhenda salt. Hann hét Magnús Torfason og átti heima í Reykjavík. Var hann skutilsveinn í flestum helztu veizlum í bænum og þótti snillingur við það starf. Mér féll sjórinn vel, en fiskirí- ið var lítið, enda var formaður minn daufur sjósóknari. Ekki var notað annað en færi. Ég dró í meðallagi. Einn dag var ég lánaður á annan bát. Þá brá svo við, að ég dró fisk nálega stanz- laust, hvar sem reynt var, þó að hinir hásetarnir yrðu varla var- ir. í vertíðarlok rerum við bátn- um til Reykjavíkur. Voru félag- ar mínir þar fyrir, og héldum við hópinn úr því. Ég var ráðinn fyrir 36 kr. yf- ir vertíðina og þess utan fæði og húsnæði. Átti Christensens- verzlunin að borga mér kaupið. Þegar ég gaf mig fram til að taka við því, vandaðist nú mál- ið. Mér var boðinn ýmiss konar varningur, bæði þarfur og ó- þarfur. En þegar það bar engan árangur, fór verzlunarstjórinn að blaða í verzlunarskruddunum. Þar fann hann mann úr minni sveit, sem átti ógoldna gamla skuld við verzlunina. Fór hann nú fram á, að ég borgaði skuld- ina fyrir manninn og kvaðst skyldu gefa mér ávísun á hann og fengi ég hana greidda strax og ég kæmi norður. Aftók ég það með öllu og bar þvi við, að eg þyrfti á peningunum að halda í ferðakostnað. Eftir nokkurt þjark varð ég þó að láta undan og taka 16 kr. ávísun á mann- inn, en hitt fékk ég borgað í peningum. Varð ég nú feginn að losast úr þessum vargaklóm. Ég vissi, að ávísunina mundi ég fá tafarlaust greidda, þegar norður kæmi. En svo vildi til, að mað- urinn, sem átti að borga mér hana, dó á meðan ég var á leið- inni norður. Var mér sagt, að engan árangur bæri að fram- vísa henni í dánarbúið, því að stærri skuldir yrðu þar ekki teknar til greina. Varð ég að láta mér það lynda. Svo fór um sjóferð þá. Við félagarnir fórum á gufu- bátnum Faxa til Borgarness. Þaðan gengum við sem leið lá norður. Við óðum aurinn, hverja á og lækjarsprænu, sem um þetta leyti var í örum vexti. Vor- um við bæði þreyttir og slæptir að kvöldi á hverjum gististað. Leið okkur sízt betur en um vet- urinn á suðurleið. Ferðin gekk samt slysalaust og fólkið heima var fegið að sjá okkur aftur heila á húfi. Verferðirnar, eins og þær voru fyrir réttum 60 árum, milli Norður- og Suðurlands, eru nú aflagðar og verða aldrei teknar upp aftur í þeirri mynd, sem þær voru. Þær stóðu yfir ó- breyttar í aldaraðir og hafa sennilega verið jafngamlar þjóð- inni í landinu. Margar vetrar- ferðir gangandi manna, yfir heiðar og fjöll, milli landsfjórð- unga, hafa vafalaust oft verið sögulegar, þó að atvikin hafi aldrei verið skráð og því gleymzt með öllu. Það hlaut að vera þreytandi fyrir vermanninn að bera pjönkur sínar frá morgni til kvölds, oft í ófærð og vond- um veðrum. Komið gat fyrir, að hann yrði að grafa sig í fönn fjarri mannabyggðum, ef hann sá fram á, að ná ekki til bæja, skríða síðan kalinn og illa til reika úr fönninni, ef hann sofn- aði þá ekki svefninum langa. Verferðirnar voru því meira en nafnið tómt. Mátti skoða þær sem nokkurs konar skóla æsku- manna í þá daga og jafnvel þann eina, sem þeir margir hverjir áttu völ á um ævina. Hann herti skapgerðina, gerði menn hugstælta, áræðna og djarfa. Kveifarskapur og hug- deigla þokuðu fyrir metnaði og áhuga á því, að bera sigur úr býtum í baráttu við torfærur, sem ekki var gengið á svig við. Áður á tímum voru eigi allfá dæmi til þess, að foreldrar og vinafólk vermannsins kvaddi hann í síðasta sinni, þegar hann lagði af stað frá heimili sínu í verið. Harðleikni náttúruafl-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.