Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1953, Page 8

Heima er bezt - 01.04.1953, Page 8
104 Heima er bezt Nr. 4 Einar E. Sæmundsen, fyrv. skógarvörður sér bönd vetrarins, jakarnir risu á röndum, hrúguðust í hrannir, mynduðu djúp uppi- stöðulón í gilskorningum. Regn- ið streymdi úr loftinu; læknum óx ásmegin, geystist áfram, hamefldur, — spýtti jakahröngl- inu langt út á eyrafláka niður hjá Glanna. Þannig komst birki- hríslan inn á draumalandið. Rætur hennar voru óskaddaðar í stórri, frosinni moldarfyllu. Og það var líkast kraftaverki, hve stórslysalaust hríslan hafði borizt í gegnum jakaburðinn: Það var eins og lækurinn, æsku- vinur hennar og elskhugi, hefði borið hana á gullstóli. Um sumarið þreifst birkihrísl- an sæmilega á eyrinni við Glanna. En hún varð fyrir sár- um vonbrigðum. Beljandi straumniðurinn lét ekki lengur yndislega í eyrum. Vatnið var ekki silfrað, heldur skolgrátt, blandað daunillum jökulleir. Hún mændi oft til bernsku- stöðvanna, þangað, sem æsku- vinur hennar leyndist. Hún saknaði hlýrra og svalandi at- lota. Hún minntist þess, hvern- ig hann glettist við lyng og fjall- drapa í bakkabrúnum, eða hvernig hann steypti sér koll- hnís af klappahyrnum, raulandi kliðmjúk ljóð. Um veturinn var næðingssamt við Glanna. Stórhríðar og fár- viðri misþyrmdu birkihríslunni á berangrinum, löskuðu nokkr- ar veikgerðar greinar; þegar voraði, var börkur víða flagnað- ur af stofni. Og í liminu voru kalsár. í leysingunum hreif Glanni hana af eyraroddanum, molaði sundur moldarhnausinn á rótum hennar, gróf hana í lím- kennda leðju af sandi og jökul- mori. Síðar um súmarið bar vatns- flaumurinn sprekið út í gínandi gljúfrin; þar festist það í stór- grýtinu, kurlaðist í örsmáar agnir, er flutu ásamt öðru rusli í froðuskúmi, sem myndaðist í fossum og hávöðum. Glanni féll í stríðum streng fram úr klettaþregslunum, hávær og brúkinn, bergið nötraði undan átökum hans. Hann keppti flas- fenginn að flæðarmáli — til að týna sjálfum sér í óminni sæv- arins. lézt hér í Reykjavík í febrúar- mánuði síðastliðnum. Lesendum Heima er bezt er Einar að góðu kunnur, því að hann skrifaði stundum í blaðið. Má nefna yf- irlit yfir sögu hestavísnakveð- skaparins á íslandi, fróðlega ritgerð og sérstæða, en því miður auðnaðist honum ekki að ljúka henni. Er þetta eina yfirlitið, sem til er, um þessa grein íslenzks alþýðukveðskapar frá upphafi. Einar E. Sæmundsen fæddist á Hrafnabjörgum í Jökulsárhlið 7. okt. 1885. Faðir hans var Ein- ar Sæmundsen hattari i Brekku- bæ í Reykjavík, en móðir Guð- rún Jónsdóttir, ættuð frá Surts- stöðum í Jökulsárhlíð. Var Ein- ar hattari kunnur maður á sinni tíð. Móðir Einars var komin af kunnum bændaættum á Austur- landi. Einar ólst upp í Syðri-Vík í Vopnafirði með móður sinni og hálfsystkinum. Eru flest þeirra enn á lífi þar eystra. Um ferm- ingaraldur fór Einar til Stykkis- Einar E. Sœmundsen.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.