Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1953, Síða 11

Heima er bezt - 01.04.1953, Síða 11
Nr. 4 Heima er bezt 107 í hirðingum stóð. Svo gekk fyrsta árið. Næsta vor var Grímur orð- inn 13 ára og Sigga 10 ára. Þá bættist á þau að smala ánum; skyldi hann smala einn á morgnana, en svo mættu þau smala bæði á kvöldin, ef Sigga vildi leggja það á sig, og Sigga lét sig ekki vanta. Það gekk lika vel. Þau leystu störf sín prýði- lega af hendi og höfðu líka þegj- andi samþykki til að sinna sínu búi líkt og áður, svo að þar fór ekkert í niðurníðslu. Það gekk sinn gang. Þriðja árið gekk allt til likt og áður, og þó munaði alltaf meira og meira um störf þeirra fyrir heimilið. Grímur var líka fermdur. Og við sín störf voru þau lika samrýmd og sæl. Sigga litla var eftirlætisbarnið á Brekku, eins og áður, og Grímur kom sér vel, góður matvinnung- ur. Hann var líka orðinn 15 ára. Nú skyldi hann því smala einn í bæði mál, en Sigga mátti smala með á sunnudögum, ef hún vildi, og sjálfsagt þótti, að þau færu bæði á milli, þegar í hirðingum stóð, enda var borið á 10—12 hjá Birni óðalsbónda. Þarna voru þau komin á þrettánda og sextánda ár og vaxin upp úr bænum sínum; héldu þó tryggð við hann og þótti vænt um að vinna stund og stund að viðhaldi hans. Á honum byrjaði samhyggð þeirra og samvinna. Og við frístunda- verkin þar byrjaði líka sam- dráttur milli þeirra, vaxandi væntumþykja, sem þau gerðu sér óljósa grein fyrir sjálf, en fullorðna fólkið þóttist sjá, að þeim væri betur til vina, en þá þótti við hæfi barna á ferming- araldri og þar yfir. Og það fór að hafa orð á þessu hvað við annað á heimilinu og vaka yfir háttum barnanna. Þau voru ó- skiljanlega lengi að smala á sunnudögum og ekki var það góðs viti, hve oft þau fóru upp í hlíðarnar á kvöldin. Næsta ár var Sigga fermd, þótti þá vel vaxin og myndarleg, jafnvel flestum fermingarstúlk- um fremri, enda átti hún ætt til þess, sagði fólkið. Sama vorið varð Grímur 17 ára, stór og stæltur og frár á fæti og um allt hinn mannvænlegasti. En hann var tekinn í gustukaskyni sem matvinningur og sonur hans Fúsa, sem hvergi gat bjargast. Það var lóðið, sem færði allt jafnvægi úr skorðum. Þó að þeim hjónum hefði líkað vel við strákinn, þá náði það ekki nokkurri átt, að Sigga yrði orð- uð við hann. Og það var víst, að Björn hafði hugsað henni hærra gjaforð. Halldóra var á sama máli og taldi ekki seinna vænna að taka í taumana. Ennþá væri sjálfsagt nóg ráð. Þetta væri eins og önnur börn. Frá þessum tima var þess vandlega gætt að stía Grími og Siggu í sundur og var því líkast, sem allt heimilisfólkið, 14—16 manns, væri með í þessu. Svo gerðist það, þetta sumar í slátt- arbyrjun, að Elin Björnsdóttir, systir Siggu, var manni gefin og haldin vegleg veizla á Brekku á kostnað foreldranna. Brúðgum- inn var sonur stórbónda í næstu sveit, en Björn hafði lengi haft augastað á að tengjast því fólki. Brúðguminn hét Einar og var Einarsson. Á brúðkaupsdegi gaf Björn líka dóttur sinni eignar- jörð sína, Bakka, búsældarjörð, skammt frá Brekku og skyldi hún vera úr ábúð og ungu hjón- unum tiltæk á næsta vori. Þang- að til mundu þau búa í föður- húsum brúðgumans, búa í hag- inn fyrir sig. Nokkrum sinnum hafði Einar komið að Brekku síðustu árin og hann hafði miklar mætur á Grími eftir þá kynningu. Og Grími gazt vel að Einari. Séra Jón, sóknarprestur Brekkuhjóna, var alúðarvinur þeirra; þótti því umtalsvert, að séra Guðmundur á Stað gaf brúðhjónin saman, og var hann þó ekki sóknar- prestur Einars. En hann var gamall maður og Birni á Brekku kunnur frá fyrri árum. í fylgd með presti var kona.hans, talsvert yngri og unglegri, og sonur þeirra hjóna, Sigurður, á þrítugsaldri. Vakti hann litla at- hygli á sér og þótti ekki taka öðrum fram á hans reki. Hann var ókvæntur, en talið var, að hann stjórnaði Staðarbúinu ut- an dyra síðustu árin. III. Það var kominn sláttur; hann gekk sinn vana gang. Það var slegið og rakað og snúið og drýlt, breitt, sætt og bundið. Lát- ið upp og farið á milli, eins og fyrr. En nú fóru þau ekki á milli, Grímur og Sigga. Björn bóndi fór á milli og hafði nýjan snún- ingsdreng með sér. Grímur sætti, batt og lét upp á lestina með hinum vinnumönnunum. Að loknum slætti komst Sigga að því, að henni væri nú ætlað að fara til vetrardvalar hjá prestskonunni á Stað; skyldi hún læra þar ýmislegt nytsamt til handanna. Hana grunaði þó, að annað mundi jafnframt búa undir. Bæði foreldrarnir og hús- bóndaholl hjú þeirra, voru sam- taka um að ljúka takmarkalausu lofsorði á frúna og séra Guð- mund, og margt vissu þau um mikla kosti Sigurðar prestsson- ar. í brúðkaupi Ellu fannst Siggu, hann af fæstum ungum mönnum bera. Annars þekkti hún ekkert til hans, var sama um hann og trúði svo að segja engu af hrósi og hólsyrðum, sem fólkið gaf honum. Þó að reynt væri að koma í veg fyrir tveggja tal, hennar og Gríms, þá tókst henni, þar sem fólkið sá til þeirra, en heyrði ekkert vegna fjarlægðar, að segja honum frá þessu, þar sem þau gengu eftir gilbarminum sín megin, meðfram Langagili. Þá sagði Sigga að síðustu, að hún skyldi aldrei með öðrum ganga en honum. Hún vissi vel, hvað á seyði var, og fann nú til þess í fyrsta skipti, hve föðurástin og jafnvel móðurástin getur verið eigingjörn, vond og viðsjál með köflum. Sigga var að sækia hross suður í Hagamýri, austan við gilið. Eftir vestri gilbarmin- um fór Grímur, sendur til næstu bæja. Þar sem gilið beygði til austurs, skildi með þeim og þau kvöddust þar svo heitt og ástúð- lega, sem verið getur yfir gil eða gljúfur. Þetta var á sunnudegi. Áður en vikan var liðin, var Sigga far- in frá Brekku og var Grímur uppi í heiði að smala, þegar hún fór. Allir aðrir voru heima, kvöddu hana með söknuði og báðu henni góðrar ferðar og góðrar líðanar í nýju vistinni — aðeins Grímur einn vissi ekkert hvað var að gerast þá stundina.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.