Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1953, Page 18

Heima er bezt - 01.04.1953, Page 18
114 Heima er bezt Nr. 4 Bátur í Bessastaðanesi. hans. Öll þessi saga er svo kunn, að eigi er ástæða til að rekja hana hér. Á þessum árum eru Bessa- staðamenn oft harðir i kröfum sínum. Fóru þeir brátt að ásæl- ast jarðir í kringum sig, og eigi leið á löngu áður en fjöldi jarða lá undir kóngsgarðinn. Urðu leiguliðar að inna af hendi alls- konar kvaðarvinnu á sjó og landi. Verða hér eigi taldir upp höfuðsmenn á Bessastöðum á þessum tíma. Voru þeir upp og ofan, eins og gerist og gengur, sumir hreinustu ofstopar, en innan um víðsýnir og frjáls- lyndir menntamenn, sem vildu láta margt gott af sér leiða fyr- ir land og lýð. Höfuðsmennirnir stóðu oft fyr- ir talsverðum framkvæmdum á Bessastöðum, og voru ýmsir fógetar þeirra duglegir menn. Reistu þeir bæði íbúðarhús og kirkjur og létu gera virki, sem enn sér merki. En þær bygging- ar, sem nú eru á Bessastöðum, Bessastaðastofa og kirkjan, eru reistar um miðja átjándu öld. Um aldamótin 1800 er sögu Bessastaða sem landstjóraseturs lokið. Héðan af verður Reykja- vík höfuðstaður landsins. Árið 1805 hefst nýtt og glæsi- legt tímabil í sögu Bessastaða. Þangað til hafði staðurinn ver- ið höfuðvígi erlenda valdsins á íslandi, en nú verður hann höf- uðstaður þjóðarinnar í menn- ingarlegum skilningi. Þetta ár var Latínuskólinn fluttur frá Reykjavík til Bessastaða. Var hann á Bessastöðum í 40 ár eða til 1845, er hann var aftur flutt- ur til Reykjavíkur, í hið nýja hús, þar sem hann er enn þann dag í dag. Þó að margvíslegir annmarkar hafi án efa verið á skólahaldinu á Bessastöðum, eins og allt var í garðinn búið hér á landi á þeim árum, verður þýðing skólans aldrei ofmetin í viðreisnarstarfi þjóðarinnar. Að skólanum komu hinir ágætustu menn, sem mót- uðu hina yngri kynslóð, og gerðu hana hæfa til að taka upp nýtt merki framsóknar og þjóðrækni. íslenzk tunga átti ekki upp á há- borðið hjá mörgum helztu ráða- mönnum landsins á átjándu öld- inni. Sumir tæptu meira að segja á, að réttast væri að leggja hana niður með öllu. Meðal ágætis- manna, sem störfuðu við skól- ann, eru Sveinbjörn Egilsson rektor, Hallgrímur Scheving og fleiri. Sveinbjörn Egilsson á mestan þátt allra sinna sam- tímamanna í því, að efla og auka virðinguna fyrir ís- lenzku máli. Hefur hann með ritum sínum, Hómers- þýðingunum og skálda- málsorðabókinin, reist sér þann minnisvarða, sem lengi mun standa. Telja má víst, að áhrifin frá þessum ágætismanni hafi ekki hvað sízt orðið til að hrinda hreyfingu Fjölnis- manna af stað. Áður fyrr var mönnum gjarnt að láta sér yfirsjást hið mikla starf Sveinbjarnar, vegna ljómans af Fjölnismönn- um. Nú virðist svo, að ljósi og skugga sé jafnar skipt rnilli þessara aðila. Svein- björn var ágætt skáld, og málfegurð og góður smekk- ur einkenndi allt, sem hann ritaði. Á Bessastöðum eru skáldin Grímur Thomsen og Benedikt Gröndal fædd og dvöldust þar æskuár sín. Er margan fróðleik að finna um skólalífið á staðnum í endurminningum Gröndals, Dægradvöl. Flestir hinna helztu manna í menntamannastétt á 19. öldinni eru útskrifaðir úr Bessástaða- skóla og andinn þaðan setti svipmót sitt á menningu fyrri hluta aldarinnar. Þegar skólinn var fluttur frá Bessastöðum, dofnaði yfir staðn- um um skeið. En árið 1868 flutti Grímur Thomsen þangað. Hafði hann þá dvalizt erlendis í nærri þrjá áratugi og aflað sér mikils lærdómsframa. Auk þess komst hann í miklar virðingarstöður hjá dönsku stjórninni. En hann mun alltaf hafa fýst að dveljast heima á íslandi, og auk þess mun samkomulag við yfirboðara hans ekki hafa verið upp á hið bezta. Grímur keypti Bessastaði og setti þegar upp bú. Bú hans varð aldrei mjög stórt, en þó var þar mikil umsýsla bæði við landbúnað og útgerð. Grímur var höfðingi heim að sækja, og oft var þar glatt á hjalla. Á Bessastöðum orti Grímur mörg af sínum beztu kvæðum, og flestar þýðingarnar úr grísku, sem eru hið mesta afreksverk. •— Eftir andlát Gríms Thomsens tók Skúli Thoroddsen við Bessa- Frh. á bls. 118.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.