Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1953, Page 22

Heima er bezt - 01.04.1953, Page 22
118 Heima er bezt Nr. 4 vizku hefur verið sáð í huga þess. Aldurinn fimm og tíu ára eru tiltölulega róleg tímabil. Fimm ára gömul stúlka eða drengur hafa fundið sinn stað í tilverunni — og við hádegisverðarborðið. Tíu ára gamalt barn er mót- tækilegt fyrir frjálslyndar skoð- anir, sem og alls konar þröng- sýni í trúarlegum og öðrum efn- um“. Dr. Gesell vorkennir börnum þeirra foreldra, sem hallast að kenningunum um hinn sterka föðurarm og aga, sem hefur ver- ið notuð í margar kynslóðir án hins minnsta árangurs. Hann veit, að það er ekki unnt að kenna smábörnum að matast „fallega“ og sitja rétt á stólnum, með því að ávíta þau eða löðr- unga. Þetta kemur allt af sjálfu sér þegar fylling timans er kom- in, svo framarlega sem barnið hefur gott fordæmi fyrir aug- unum og finnur, að það er elsk- að og fær þörfum sínum full- nægt. „Það er mikið illt til í veröld- inni,“ segir Gesell, „en í barns- huganum virðist hið góða hafa völdin. Það er aðeins um að gera að skilja barnið á þroskabraut þess, og þá er hægt að innræta því hið góða. Frumskilyrðið er, að þekkja eðlilega þróun barns- ins og þarfir.“ Kennarar og foreldrar viður- kenna fúslega, að þróunin verð- ur að gerast smátt og smátt, þegar um er að ræða hagnýta færni, álítur Gesell, en þegar um er að ræða framkomu barnsins, svo að dæmi sé nefnt, eða starf þess í skólanum, er það mjög oft misskilið. Það hlýtur ávítur og jafnvel refsingu líka, vegna yf- irsjóna, sem að mestu leyti eru sprottnar af vanþroska þess. Vér gerum oft tilraunir til að gera barnið eins og vér, frá sjónar- miði fullorðna fólksins, álítum að barn eigi að vera, og vér gleymum því, að barnið hegðar sér eins og það gerir, einmitt af því að það er barn. Dr. Gesell segir ennfremur: „Allt of oft krefst fólk hlýðni, aðeins vegna hlýðninnar sjálfr- ar, eða þá að það krefst þess, að börn auðmýki sig og biðjist fyr- irgefningar í tilfellum, þar sem vinsamleg leiðbeining hefði átt betur heima.“ Dr. Gesell leggur ríka áherzlu á þörf barnsins til þess, að ást þess sé endurgoldin glöggt og beinlínis, svo að barnið finni, að það sé elskað og mikils virt. Rannsóknir sýna og sanna, að þau börn, sem fara á mis við þá ást og umhyggju, sem góðir for- eldrar veita, læra seinna að tala en önnur börn, og verða heldur ekki eins fjörug og vakandi. Þau eru gjarnari á að forðast ókunn- uga og verða á eftir í þróun- inni en þau börn, sem alast upp við ást og umhyggju. Dr. Gesell bendir á „hina þýð- ingarmiklu undirstöðu erfðaeig- inleika og meðfæddra einkenna, sem erfast frá næstu ættliðum, er ákveða fyrstu þroskaeinkenni einstaklingsins. Jafnvel þótt vort nútíma þjóðfélag verki mjög í þá átt, að útjafna einstaklings- einkennin, einkenna þó erfða- eiginleikarnir hvert einasta barn og persónuleik þess, og gera það ólíkt öðrum börnum.“ Þegar foreldrum er orðið þetta ljóst, mun þeim einnig skiljast, að hvert einasta barn er engum öðrum líkt, þegar um er að ræða hæfni, og þá munu foreldrar líka sýna skilning, og gera til- raunir til að hjálpa þróuninni inn á réttar leiðir. Nú er dr. Gesell 72 ára, en hann er ekki af baki dottinn, því að nú ætlar hann að hefja nýjar rannsóknir. Hann segir: „Nú hefur barnið verið rann- sakað nákvæmlega fram að tíu ára aldri, en ennþá hefur eng- inn tekið næstu tíu árin í lífi einstaklingsins til vísindalegrar meðferðar. Vér vitum enn ekki, hvað teljast verður eðlilegt og einkennandi fyrir gelgjuskeiðið og æskuárin.“ Hann minnir á, að þessi ald- ur sé sá erfiðasti, bæði fyrir börn og foreldra. Þá koma ný vanda- mál til sögunnar, sem krefjast úrlausnar. Þítta er mikið verk fyrir mann á áttræðisaldri, en ekki er ástæða til að efa, að hann mun leysa það af hendi með ágætum, ef honum endist líf og heilsa. (Lausl. þýtt). Bessastaðir Framh. af bls. 114. stöðum. Skúli var, eins og kunn- ugt er, ótrauður forystumaður í sjálfstæðisbaráttunni. Hann hafði bú á jörðinni, og auk þess setti hann þar upp prentsmiðju og gaf blað sitt, „Þjóðviljann“, út þar. Eftir dauða Skúla keypti Jón H. Þorbergsson, nú bóndi á Laxamýri, jörðina og bjó þar í nokkur ár. Þá tók Björgúlfur Ólafsson læknir við, og er hann flutti þaðan, komst staðurinn í eigu Sigurðar Jónassonar, sem afhenti ríkinu hann fyrir aðset- ursstað hins nýkjörna íslenzka þjóðhöfðingja. Það má deila, og er deilt, um margar eða jafnvel flestar á- kvarðanir hins opinbera, enda er ekki unnt að gera svo að öllum líki. En óhætt er að fullyrða, að sú ákvörðun, að hafa Bessastaði fyrir þjóðhöfðingjasetur íslend- inga, mun vera einhver giftu- drjúgasta ákvörðun, sem tekin hefur verið lengi. Ber margt til þess, og ekki sízt þáttur þessa staðar í sögu þjóðarinnar. Á rústum hins erlenda valds bygg- ir þjóðin nýtt ísland og táknar þetta viðreisnarstarf sitt með því að gera aðsetursstað yfir- drottnunarinnar að þjóðhöfð- ingjasetri sínu. Bessastaðir hafa tekið miklum stakkaskiptum. Hinar gömlu, stílhreinu byggingar standa þar enn, og ýmislegt er þar gamalla minja. Þar er rekinn fyrirmynd- arbúskapur, eins og vera ber, en allt látlaust og blátt áfram. Sveinn Björnsson, hinn fyrsti forseti íslenzka lýðveldisins, sat á Bessastöðum frá því er hann var kosinn ríkisstjóri. í tíð hans urðu Bessastaðir tengdir loka- þættinum í baráttu þjóðarinnar fyrir fullu sjálfstæði, í hugum fólksins. Var honum mjög annt um staðinn, og vildi gera allt til að bæta hann og prýða. Eft- irmaður hans í þessu tignasta embætti þjóðarinnar, Ásgeir Ás- geirsson og frú hans, Dóra Þór- hallsdóttir, láta ekki sitt eftir liggja til að gera þetta virðulega embætti að því, sem hinn eigin- legi tilgangur þess er: samein- ingartákn sundraðrar þjóðar. Samhugur allra íslendinga fylg- ir þeim í því mikla starfi.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.