Heima er bezt - 01.01.1955, Page 7

Heima er bezt - 01.01.1955, Page 7
Nr. 1 Heima er bezt 3 Bjarni Sigurðsson: AMMA MlN Endurminningar Amma mín hét Guðrún Sæ- mundsdóttir, prests Einarssonar að Útskálum í Garði, og var fædd 23. janúar 1803, að Ás- um í Skaftártungu. Hún var tvígift. Fyrri maður hennar var Nikulás Sigurðsson, Árnasonar í Njarðvíkum syðra. Áttu þau eitt barn, Sigurð föður minn. Bræð- ur Nikulásar voru margir. Einn af þeim var Magnús, faðir Kristins skipasmiðs í Engey. — Seinni maður hennar var Bárð- ur Jónsson, bóndi að Hemru í Skaftártungu. Um séra Sæmund, föður Guð- rúnar, segir Sighvatur Grímsson í Prestaævum: „Séra Sæmundur var maður vel gáfaður, lipurt skáld, góður kennimaður og sæmilegur í prestsþjónustu, skemmtilegur í umgengni, glað- sinna og mesti góðlyndismaður, fjörmaður mikill og frígeðja, en búmaður í minna lagi. Hann var elskaður og virtur af sóknar- fólki sínu, eins og eftirfylgjandi vísa lýsir, ,sem eitt af sóknar- börnum hans kvað, þá er fréttist um lát hans: Skarð er í skildi vorðið skrúðhirðir dyggða prúður segir fregn sykki í maga Sæmundur djúpt í Ægis. Cedrus þar samur veður sveigðist og niður fleygðist. Nær munu Nesjar bera nýtan eins dyggð, sem býtir.“ Ég birti þessa lýsingu á séra Sæmundi, vegna þess að skap- ferli hans minnir mjög á skap- gerð ömmu minnar. Því miður er engin mynd til af henni, önn- ur en sú„ sem geymst hefur í hugskoti mínu á níunda tug ára, og mun ég nú af veikum mætti reyna að lýsa henni. Hún var fremur lágvaxin, en vöxtur henn- ar þótti svara sér vel. Hreyfing- ar hennar voru fjörlegar og snarlegar og viðbragðsflýtir hennar var orðlagður. Ég varð aldrei var við, að það lægi illa á henni, og ég heyrði hana aldrei deila við neinn. Oftast var hún kát og spaugsöm og var lagið að snúa önuglyndi og geðgöllum í glens. Ætti hún hins vegar í rök- ræðum við menn og yrði að verja sannfæringu sína, sveið undan skarplegum og hnittnum tilsvör- um hennar, ,og þá lét hún ekki undan síga, hver sem í hlut átti. Bjarni Sigurðsson. Hún var orðin gömul og byrjuð lítilsháttar að bogna, þegar ég man fyrst eftir henni. Mér þótti hún falleg, þó hrukkurnar væru orðnar talsvert áberandi. Hún var breiðleit og þá orðin fölleit. Ennið var fremur hátt og auga- brúnir skýrar og bogadregnar. Augunum á ég bágt með að lýsa. Þau voru sambland af mörg- um litum, bláum, gráum og gulum, og litbrigði þeirra tóku sífelldum breytingum,, eftir geð- brigðum eigandans. Þannig virt- ist mér útlit ömmu minnar. Ég man fyrst eftir henni, sitj- andi á rúmi sínu í baðstofunni á Þykkvabæjarklaustri, h æ g r a megin við 6 rúðu glugga lítinn, og hjá henni voru 4 systur mín- ar, allar eldri en ég. Líklega hef ég þá verið þriggja ára og var uppi í rúminu á bak við hana. Hún var að kenna þeim að stafa og lesa, en þær sögðu mér seinna, að ég hefði á allan hátt reynt að trufla þær við námið, að baki ömmu. Stundum hefði ég hermt eftir þeim, stundum líkt stöfunum við sérkennilega karla og kerlingar, sem að garði báru, og verið harðánægður, ef ég gat komið þeim til að hlæja. Þegar amma hefði fundið að þessu við mig, hefði ég haft lag á því, að ónýta ávíturnar með því, að teygja mig yfir öxlina á henni og kyssa á eyra hennar. En amma vissi vel af því, að óra- belgurinn að baki hennar, var líka á þennan hátt að læra að þekkja stafina, og þegar hún seinna tók hann á kné sér, til að kenna honum að stafa, þekkti hann alla stafina og kvað að mörgu. Ýmsum þótti þetta furðulegt, en ekki ömmu. Hún hafði af ásettu ráði þetta lag á því, að kenna honum fyrsta og erfiðasta áfangann í lestri. Þegar úr mér tognaði betur, tók ég að sitja hjá ömmu minni í rökkrinu og hlusta á sögur hennar og þær lífsreglur, sem hún lagði áherzlu á, að innræta okkur systkinunum. Á langri ævi hennar frá barnæsku til elli, gerðust mörg tíðindi, misjafn- lega merk að vísu, sem við börn- in vorum sólgin í að heyra. Ým- ist snertu þau hana sjálfa eða aðra. Til dæmis sagði hún okkur söguna um það, þegar fullyrt var, að hún væri dáin, en lifnaði þó við. Ung eða eitthvað innan við tvítugt, var hún ráðin vinnu- kona að Heiðarbæ í Þingvalla- sveit. Þá mun séra Einar bróðir hennar, seinna prestur að Staf- holti, hafa verið prestur að Þing- völlum. Þar veiktist hún og virt- ist alveg meðvitundarlaus og var álitið, að hún væri dáin. Henni voru þá veittar nábjargir og hún lögð á líkfjalir og breidd yfir hana rekkjuvoð úr vaðmáli. Hún

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.