Heima er bezt - 01.01.1955, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.01.1955, Qupperneq 8
4 Heima er bezt Nr. 1 vissi af þessu öllu og heyrði allt, sem talað var. Þannig heyrði hún fólkið í baðstofunni tala um það, að hún væri dáin, og þegar hríðinni stytti upp yrði að fara til prestsins á Þingvöllum og til- kynna honum dauðsfallið. Hann mundi svo tilkynna þetta föður hinnar dánu að Útskálum. Hún varð meira hissa en hrædd, því henni fannst, að hún hafa fulla meðvitund. En hvernig sem hún reyndi að tala og hreyfa sig, var henni það algerlega ómögu- legt. Hún var alveg máttlaus. En þrátt fyrir þetta lifði í brjósti hennar sterk von um það, að hún hlyti að geta talað og hreyft sig, þó seinna yrði. Henni þótti þó fyrir því, þegar fólkið í baðstofunni hætti að tala um andlát hennar og fór að tala um annað. Hún hélt þá að enginn mundi taka eftir því, ef hún skyldi geta hreyft sig. Lítið stúlkubarn 5 eða 6 ára var inni í baðstofunni og var að leika sér þar nálægt, sem líkfjal- irnar voru. Rekkjuvoðin, sem breidd var yfir líkama ömmu minnar, náði ekki alveg yfir fæt- ur hennar, svo að tærnar voru berar. Þá segir barnið allt í einu: „Mamma! Stóra táin á henni Gunnu hreyfist.“ Móðirin sagði þá: „Vertu ekki að þessari vit- leysu, barn, það getur ekki átt sér stað.“ Eftir nokkra stund seg- ir barnið aftur: „Komdu mamma og sjáðu. Hún hreyfist víst, stóra táin á henni Gunnu.“ — Þarf nú ekki að hafa fleiri orð um þetta. Amma mín lifnaði við og komst hátt á tíræðisaldur. Aldrei sagði hún okkur svo sögu, að hún drægi ekki af henni holla fræðslu um háttsemi manna og reyndi að festa í brjóstum okkar andúð á hinu illa. Dró hún enga dul á það, að í heiminum væru til tvö öfl, gott og illt, sem ætíð ættu í deilum. Þessvegna bæri að fylgja hinu góða, taka aldrei neitt frá öðrum og spilla engu fyrir þeim, segja aldrei ósatt og gera aldrei á hluta annara, og temja sér að hafa hemil á ástríðum og reiðinni. Hún mætti aldrei leiða okkur til haturs. Bað hún okkur að gera það fyrir sig og bregðast því ekki, þar sem hún vissi, að við vorum bráðlynd, að drekka einn bolla af fersku vatni, áður en við svöruð- um, eða hefðumst að, gegn þeim, er misbauð okkur. Mundi þá öldurót hugans lægja. Þó yrðum við að hafa það hugfast, að okk- ur bæri að hrinda af okkur rang- læti og ódrengskap, með hug- rekki og dugnaði. Heigulskapur væri ávallt fyrirlitlegur og væri allt annað en góð hegðun. í dóm- um um aðra menn ættum við aldrei að fara eftir annarra áliti. Við ættum sjálf að rannsaka réttmæti þeirra og fella að því búnu dóminn. Bezt væri þó að láta umtal og sögusagnir um aðra menn algerlega afskipta- lausar. Okkur bæri að minnast þess, hve erfitt væri oft að verj- ast falli og hve torvelt væri að dæma um hrösun annarra manna. Til þess að vera dómbær um slíkt, þyrftum við að þekkja hæfileika viðkomandi manna. Þannig fylgdi miklum gáfum miklar ástríður og mikið fjör, sem erfitt væri að ráða við og afburða skapfestu þyrfti til að sigrast á. Jafnframt því, að leggja fyrir okkur lífsreglurnar og kenna okkur sálma og bænir og ýmis konar spakmæli og málshætti, lagði hún áherzlu á það, að æfa næmi okkar og athyglisgáfu. Þegar við sátum hjá henni í rökkrinu á kvöldin, hafði hún gaman af því að reyna næmi okkar, á þann hátt að kenna okkur vísur og þulur, sem erfitt var að læra, og láta okkur keppa um það, hvert okkar systkin- anna yrði fljótast að nema þær. Fylgdu þá oftast smásögur um það, hvernig vísurnar urðu til. Þannig sagði hún okkur sögu af manni, sem var smiður, en nefndi öll smíðatólin sín urga og kallaði smíðisgripana því nafni líka og því hlaut hann sjálfur nafnið urgur. Varð þá til þessi vísa, sem hún lét okkur glíma við að læra: Borar urgur urg í urg argur kargur meður sarg, urgur fór að fjörga urg, fargast urgur garps við arg. Þá sagði hún okkur einnig frá því, að hagyrðingur hefði heim- sótt prest, sem einnig var hag- yrtur. Presturinn spurði hann frétta. Gesturinn hafði þá búið til vísu, sem hann ætlaðist til að prestur ætti erfitt með að læra og muna, er hljóðaði svo: Ég hlaut að stauta blauta braut, bikkjan skrikkjótt nokkuð gekk. Hún þaut og hnaut, ég hraut í laut, hnykk með rykk í skrokkinn fékk. Ég hef tekið þessi tvö dæmi og valið þau úr mörgum, til að sýna, hvernig hún æfði næmi okkar. En auk þessa flýttum við okk- ur til hennar, ef vanda bar að höndum okkar barnanna, og á- vallt var hún jafn fús til þess að reyna að leysa úr vandræðunum, jafna ágreining og leiða hug okk- ar á réttar brautir. Þannig man ég það alla ævi, þegar ég frosta- veturinn mikla (1881) kom inn í baðstofuna frá því að gegna gripum, kjökrandi af kulda, er hún rétti mér svonefnda lamb- húshettu úr þeli, sem hún sjálf hafði prjónað og þæft og gaf mér. Hún hlífði hálsi, enni, höku og eyrum, og eftir það þoldi ég kuldann vel. Þetta, sem nú hefur sagt verið, snertir áhuga hennar fyrir upp- eldi okkar systkinanna. Verður nú drepið á þá hlið, sem snýr að umgengni hennar í ellinni við eldra fólk. Þegar ég var 14 ára gamall, þóttist ég orðinn mikill maður og fær í flestan sjó. Mætti ég þá eitt sinn ömmu minni úti á túni og sagði við hana í gamni: „Nú get ég sýnt þér, amma mín, glímubragðið, sem ég skellti hon- um Leifa á.“ Hún tók þessu vel, en um leið og ég ætlaði að sýna henni bragðið, brá svo við að hún felldi mig á augabragði. Hló hún þá og sagði, að ég þyrfti líka að kunna snarræði og viðbragðs- flýti. Var hún þá nærri áttræð. Er menntamenn bar að garði, spurðu þeir strax eftir Guðrúnu Sæmundsdóttur. Kom hún þá of- an af baðstofuloftinu til fundar við þá, glettnisleg og brosandi og kát og glaðleg. Byrjuðu þá strax glaðværar og fjörugar samræður. Til þess að sýna fram á, hve glettin og gamansöm hún var á elliárunum, er eftirfarandi smá- saga, sem víða varð kunn: Eitt sinn var hún að þvo við bæjarlækinn á Þykkjabæjar- klaustri. Alfaravegur lá meðfram honum og fóru hann þá glað-

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.