Heima er bezt - 01.01.1955, Side 9

Heima er bezt - 01.01.1955, Side 9
Nr. 1 Heima er bezt 5 værir sjómenn eða vermenn. Einn þeirra, ráðsmaður að Kirkjubæjarklaustri á Síðu, seg- ir í glensi: „Sæl vertu, stúlka mín. Viltu eiga mig?“ Amma svaraði strax: „Já, ég vil það. En ég verð þá að fá að vita, hvað kærastinn minn heitir.“ Sögðu þeir þá til nafna sinna. Þá var prestur að Prestsbakka á Síðu séra Páll Pálsson, orðlagð- ur gáfumaður og glettinn, seinna prestur að Þingmúla í Skriðdal. Svo vildi til, að um þær mundir var prestslaust í Álftaveri, en séra Páll þjónaði þar, ásamt sínu prestakalli. Messaði hann þá að Þykkvabæjarklaustri og lýsti um leið til hjónabands með ráðs- manninum að Kirkjubæjar- klaustri og stúlku, sem ég man ekki nafn á. Þau virtust vera miklir mátar, amma mín og séra Páll. Þegar hann kom frá mess- unni, segir amma mín við hann og reyndi að vera alvarleg: „Laglega hagaðirðu þér núna, séra Páll.“ „Hvað hef ég nú brot- ið af mér?“ segir séra Páll. „Ekki nema það,“ segir amma, „að lýsa til hjónabands með kærastanum mínum og einhverri kvensnift í prestakallinu þínu. Þetta er frek- leg móðgun við mig og ég lýsi hér með meinbugum." Sagði hún honum síðan nákvæmlega frá bónorðinu við lækinn. Séra Páll var alvarlegur, en sýnilega var honum skemmt, að nærri áttræð kerling skyldi lýsa meinbugum. Annars tók séra Páll þessu eins og hér væri rammasta alvara á ferðum. Sagði hann, að hún hefði að vísu átt að lýsa meinbugum í kirkjunni, en þar sem hér væri um merkilegt og alvarlegt mál að ræða, yrði hann að reyna að leita sátta í því. Spurði hann hana, hve miklar skaðabætur hún vildi fá fyrir tryggðarofið. Hún gat þess þá, að tíminn, sem trúlofunin hefði staðið yfir, væri stuttur og ennþá styttri hefðu kynni hjónaefnanna verið. Þau hefðu varla verið lengri en tvær til þrjár mínútur. Og þar sem svona væri stutt í þessu öllu, en hún ófróð um það, við hvað ætti að miða skaðabæturnar, kvaðst hún verða að hugsa sig um. Ætti að miða þær við manngildi kær- asta síns og ást sína á honum, hlytu þær að verða mjög litlar. Sér skildist, að eitt pund af kaffi mundi vera sanngjarnt. Hann væri varla meira virði. Þá brosti séra Páll og kvaðst mundi fá hann til að borga skaðabæturn- ar. Fréttist seinna, að hann hefði fengið ráðsmanninn til að fallast á að borga sér 5 pund af kaffi í skaðabætur, en ekki komu þau að Þykkvabæjarklaustri. Þessi skopsaga flaug um alla sýsluna og þegar Jón umboðs- maður í Vík kom næst að Þykkvabæj arklaustri, sagði hann við ömmu: „Ég trúi að þú hafir lýst meinbugum. Hve lengi ætlar þú að gera það?“ Amma svaraði strax: „Það geri ég á meðan pilt- arnir biðja mín og svíkja mig.“ Bæði brostu. Þessa er getið hér vegna þess, að Jón umboðsmað- ur var virðulegur alvörumaður, er sjaldan skipti sér af því, sem skoplegt var. Þegar amma mín var á níræð- isaldri, kom Magnús Stephensen landshöfðingi, ásamt fleiri heldri mönnum að Þykkvabæj- arklaustri. Svo vildi til, að hún var ein heima. Þá var hún svo búin, að hún var í svörtum upp- hlut, með silfurmillum, utan yfir hvítri skyrtu úr vaðmáli og gömlu, svörtu vaðmálspilsi. Hún hafði á höfðinu skotthúfu, en til að hlífa augunum hafði hún ávallt börð af gömlum flóka- hatti utan yfir skotthúfunni. t>annig búin kom hún til dyra, þegar landshöfðingjann bar að garði. Annars var sjónin góð og hún las gleraugnalaust til ævi- loka. Gestirnir báðu um að gefa sér að drekka. Hún bauð þeim inn og bar þeim mjólk. Sætin í stofunni voru kistur og koffort meðfram þiljum, og varð ekki annað séð, en þeir létu sér það vel líka. Ekki sögðu þeir til nafna sinna og þótti ömmu það ein- kennilegt. Hún segir þá við þá: „Ég sé, að þið eruð höfðingjar, og mig langar að geta sagt heím- ilisfólkinu, þegar það kemur heim, hvaða höfðingja hefur að garði borið.“ Þá kynnti einn þeirra samferðamennina, en siálfur kvaðst hann heita Magnús Stephensen. Þá segir amma: „Þér munuð þá vera landshöfðinginn. Ég hef ekki séð yður síðan þér voruð á þriðja árinu á Höfðabrekku, en þar var ég um tíma hjá móður yðar að sauma. Þér voruð þá talsvert mikill órabelgur og mér er það minnisstætt, þegar þér týnduð fingurbjörginni, sem móðir yðar lánaði mér, en hún fannst ekki aftur.“ Landshöfðinginn, sem hafði sýnt á sér fararsnið, sett- ist nú aftur og þurfti margs að spyrja og dvaldi nú víst lengur en ætlað var. En amma var lang- minnug og kunni góð skil á því, sem bar fyrir augu og eyru á langri ævi. Skömmu eftir að landshöfðing- inn kom til Reykjavíkur úr þess- ari ferð, fékk amma bréf frá honum og sendingu. Bréfið var mjög vinsamlegt og sendingin var fingurbjörg úr silfri, með steini í botninum og fanga- marki ömmu, hin vandaðasta að efni og gerð. Því miður get ég ekki birt bréfið, en ég las það oft, um leið og amma sagði mér söguna. En efni bréfsins var það, að þakka henni fyrir ánægjuleg- ar samræður, um leið og hann kvaðst senda henni fingur- björgina, sem hann hefði týnt á Höfðabrekku, en nú væri kom- in í leitirnar. Kvaðst hann að vísu vita, að fingur hennar mundu vera farnir að stirðna, svo að hún hefði fingurbjargar- innar lítil not sjálf, en sonar- dóttir hennar, Guðrún Sigurðar- dóttir, mundi þá njóta hennar og fangamarkið ætti jafnt við báðar. Kveðjan var sérlega vin- samleg. Sú sæmd, sem æðsti maður landsins sýndi ömmu minni í elli hennar, á þennan hátt, gladdi hana og alla nána ætt- ingja hennar. VÍar það fólgið djúpt í vitund okkar, að þessi tigni maður var jafnframt orð- lagður vitsmuna- og gáfumaður. En svo sýnir þetta einnig dreng- lund og lítillæti hins mikilhæfa og merka manns. Hér hefur verið á stóru stikl- að og eru þá þessar minningar orðnar lengri en ég ætlaðist til. Spakmæli Abraham Lincoln sagði: „Eng- inn maður er svo minnisgóður, að hann geti nokkurntíma orð- ið fullkominn lygari."

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.