Heima er bezt - 01.01.1955, Qupperneq 9
Nr. 1
Heima er bezt
5
værir sjómenn eða vermenn.
Einn þeirra, ráðsmaður að
Kirkjubæjarklaustri á Síðu, seg-
ir í glensi: „Sæl vertu, stúlka
mín. Viltu eiga mig?“ Amma
svaraði strax: „Já, ég vil það. En
ég verð þá að fá að vita, hvað
kærastinn minn heitir.“ Sögðu
þeir þá til nafna sinna.
Þá var prestur að Prestsbakka
á Síðu séra Páll Pálsson, orðlagð-
ur gáfumaður og glettinn, seinna
prestur að Þingmúla í Skriðdal.
Svo vildi til, að um þær mundir
var prestslaust í Álftaveri, en
séra Páll þjónaði þar, ásamt sínu
prestakalli. Messaði hann þá að
Þykkvabæjarklaustri og lýsti um
leið til hjónabands með ráðs-
manninum að Kirkjubæjar-
klaustri og stúlku, sem ég man
ekki nafn á. Þau virtust vera
miklir mátar, amma mín og séra
Páll. Þegar hann kom frá mess-
unni, segir amma mín við hann
og reyndi að vera alvarleg:
„Laglega hagaðirðu þér núna,
séra Páll.“ „Hvað hef ég nú brot-
ið af mér?“ segir séra Páll. „Ekki
nema það,“ segir amma, „að lýsa
til hjónabands með kærastanum
mínum og einhverri kvensnift í
prestakallinu þínu. Þetta er frek-
leg móðgun við mig og ég lýsi
hér með meinbugum." Sagði hún
honum síðan nákvæmlega frá
bónorðinu við lækinn. Séra Páll
var alvarlegur, en sýnilega var
honum skemmt, að nærri áttræð
kerling skyldi lýsa meinbugum.
Annars tók séra Páll þessu eins
og hér væri rammasta alvara á
ferðum. Sagði hann, að hún hefði
að vísu átt að lýsa meinbugum í
kirkjunni, en þar sem hér væri
um merkilegt og alvarlegt mál
að ræða, yrði hann að reyna að
leita sátta í því. Spurði hann
hana, hve miklar skaðabætur
hún vildi fá fyrir tryggðarofið.
Hún gat þess þá, að tíminn, sem
trúlofunin hefði staðið yfir, væri
stuttur og ennþá styttri hefðu
kynni hjónaefnanna verið. Þau
hefðu varla verið lengri en tvær
til þrjár mínútur. Og þar sem
svona væri stutt í þessu öllu, en
hún ófróð um það, við hvað ætti
að miða skaðabæturnar, kvaðst
hún verða að hugsa sig um. Ætti
að miða þær við manngildi kær-
asta síns og ást sína á honum,
hlytu þær að verða mjög litlar.
Sér skildist, að eitt pund af kaffi
mundi vera sanngjarnt. Hann
væri varla meira virði. Þá brosti
séra Páll og kvaðst mundi fá
hann til að borga skaðabæturn-
ar. Fréttist seinna, að hann hefði
fengið ráðsmanninn til að fallast
á að borga sér 5 pund af kaffi í
skaðabætur, en ekki komu þau
að Þykkvabæjarklaustri.
Þessi skopsaga flaug um alla
sýsluna og þegar Jón umboðs-
maður í Vík kom næst að
Þykkvabæj arklaustri, sagði hann
við ömmu: „Ég trúi að þú hafir
lýst meinbugum. Hve lengi ætlar
þú að gera það?“ Amma svaraði
strax: „Það geri ég á meðan pilt-
arnir biðja mín og svíkja mig.“
Bæði brostu. Þessa er getið hér
vegna þess, að Jón umboðsmað-
ur var virðulegur alvörumaður,
er sjaldan skipti sér af því, sem
skoplegt var.
Þegar amma mín var á níræð-
isaldri, kom Magnús Stephensen
landshöfðingi, ásamt fleiri
heldri mönnum að Þykkvabæj-
arklaustri. Svo vildi til, að hún
var ein heima. Þá var hún svo
búin, að hún var í svörtum upp-
hlut, með silfurmillum, utan yfir
hvítri skyrtu úr vaðmáli og
gömlu, svörtu vaðmálspilsi. Hún
hafði á höfðinu skotthúfu, en til
að hlífa augunum hafði hún
ávallt börð af gömlum flóka-
hatti utan yfir skotthúfunni.
t>annig búin kom hún til dyra,
þegar landshöfðingjann bar að
garði. Annars var sjónin góð og
hún las gleraugnalaust til ævi-
loka. Gestirnir báðu um að gefa
sér að drekka. Hún bauð þeim
inn og bar þeim mjólk. Sætin í
stofunni voru kistur og koffort
meðfram þiljum, og varð ekki
annað séð, en þeir létu sér það
vel líka. Ekki sögðu þeir til nafna
sinna og þótti ömmu það ein-
kennilegt. Hún segir þá við þá:
„Ég sé, að þið eruð höfðingjar,
og mig langar að geta sagt heím-
ilisfólkinu, þegar það kemur
heim, hvaða höfðingja hefur að
garði borið.“ Þá kynnti einn
þeirra samferðamennina, en
siálfur kvaðst hann heita
Magnús Stephensen. Þá segir
amma: „Þér munuð þá vera
landshöfðinginn. Ég hef ekki séð
yður síðan þér voruð á þriðja
árinu á Höfðabrekku, en þar var
ég um tíma hjá móður yðar að
sauma. Þér voruð þá talsvert
mikill órabelgur og mér er það
minnisstætt, þegar þér týnduð
fingurbjörginni, sem móðir yðar
lánaði mér, en hún fannst ekki
aftur.“ Landshöfðinginn, sem
hafði sýnt á sér fararsnið, sett-
ist nú aftur og þurfti margs að
spyrja og dvaldi nú víst lengur
en ætlað var. En amma var lang-
minnug og kunni góð skil á því,
sem bar fyrir augu og eyru á
langri ævi.
Skömmu eftir að landshöfðing-
inn kom til Reykjavíkur úr þess-
ari ferð, fékk amma bréf frá
honum og sendingu. Bréfið var
mjög vinsamlegt og sendingin
var fingurbjörg úr silfri, með
steini í botninum og fanga-
marki ömmu, hin vandaðasta að
efni og gerð. Því miður get ég
ekki birt bréfið, en ég las það
oft, um leið og amma sagði mér
söguna. En efni bréfsins var það,
að þakka henni fyrir ánægjuleg-
ar samræður, um leið og hann
kvaðst senda henni fingur-
björgina, sem hann hefði týnt
á Höfðabrekku, en nú væri kom-
in í leitirnar. Kvaðst hann að
vísu vita, að fingur hennar
mundu vera farnir að stirðna,
svo að hún hefði fingurbjargar-
innar lítil not sjálf, en sonar-
dóttir hennar, Guðrún Sigurðar-
dóttir, mundi þá njóta hennar
og fangamarkið ætti jafnt við
báðar. Kveðjan var sérlega vin-
samleg.
Sú sæmd, sem æðsti maður
landsins sýndi ömmu minni í
elli hennar, á þennan hátt,
gladdi hana og alla nána ætt-
ingja hennar. VÍar það fólgið
djúpt í vitund okkar, að þessi
tigni maður var jafnframt orð-
lagður vitsmuna- og gáfumaður.
En svo sýnir þetta einnig dreng-
lund og lítillæti hins mikilhæfa
og merka manns.
Hér hefur verið á stóru stikl-
að og eru þá þessar minningar
orðnar lengri en ég ætlaðist til.
Spakmæli
Abraham Lincoln sagði: „Eng-
inn maður er svo minnisgóður,
að hann geti nokkurntíma orð-
ið fullkominn lygari."