Heima er bezt - 01.01.1955, Blaðsíða 15

Heima er bezt - 01.01.1955, Blaðsíða 15
Nr. 1 Heima er bezt 11 Helgi Guðmundsson: Eyjólfi á Apavatni Eyjólfur, sem var bóndi á aust- urhálflendunni á Efra-Apavatni frá 1842—1882, var Árnason, fæddur 1794, Einarssonar. ■— Árni kom að austan með sr. Halldóri Jónssyni, þegar hann flutti að Mosfelli 1817 frá Stóradal undir Eyjafjöllum. Byrjaði svo búskap á Þóroddstöðum í Grímsnesi og var Eyjólfur sonur hans fædd- ur þar 1824. Flutti svo Árni að Apavatni 1827 og bjó þar til dauðadags 1842. Var þá Eyjólfur sonur hans 18 ára og tók þá við búi með móður sinni. Hún hét Guðlaug Eyjólfsdóttir. Eyjólfur giftist rúmlega tvítugur. Hann var tvígiftur. Fyrri kona hans hét Ásdís Lafransdóttir, Ólafs- völlum á Skeiðum, Jónssonar. Þau áttu nokkur börn. Eitt þeirra var Árni, sem drukknaði í Apavatni 1. maí 1868, 16 ára, er hann var við netjavitjun. Og dætur þeirra tvær, sem hétu Guðlaug og Margrét, fluttust til Ameríku um 1880. Guðlaug átti fyrir mann Guttorm Jónasson frá Keldnakoti í Stokkseyrarhr., en Margrét átti Halldór Hall- dórsson frá Miðdalskoti í Laug- ardal. Seinni kona Eyjólfs var Helga Guðmundsdóttir frá Ey- vindartungu, systir Ragnheiðar seinni konu Magnúsar Magnús- sonar á Laugarvatni. Eyjólfur átti nokkur börn með Helgu. Þeirra á meðal var Árni bóndi í Hraunkoti í Grímsnesi, sem átti Sólveigu Þorgeirsdóttur frá Núpum í Ölvusi. Eyjólfur átti Guðnýju, dóttur Þórðar í Oddgeirsbæ í Reykjavík, dó ung- ur af slysförum. Guðni fór til Ameríku, dó þar ungur. Dætur Eyjólfs frá seinna hjónabandi voru Ingunn, átti Sigurð Ámundason frá Efra-Apavatni, Dóttir þéirra er Hélga, kona Egils Vilhjálmssonar, bílastór- kaupmanns í Reykjavík. Guð- björg átti Guðmund bónda Bjarnason á Seli í Grímsnesi. Sólveig fór ung til Ameríku. Eyjólfur bóndi dó á Apavatni 1882, sama vor og Vigfús Daníels- son á Apavatni. Báðir dóu úr lungnabólgu. — Hann var orð- lagður hug og atorkumaður og ágætur bóndi og skal nú sagt frá nokkrum dæmum um, að svo hafi verið Faðir minn kom hingað að Apavatni 1886 og ég með honum, þá á níunda ári. Hafði þá Helga ekkja Eyjólfs búið hér í fjögur ár með ráðsmanni og var þá mik- ið gengið af henni, og hætti þá búskap. Við fengum tólf ær í kvígildi hjá henni, og voru þær vænstu ær sem ég man eftir, eins og sauðir, með sneiðrifað aftan bæði eyru. Það var fjár- mark Eyjólfs. — Þegar ég var unglingur var hér gamall mað- ur, Knútur Filippusson frá Laug- arvatni. Hann sagði að Eyjólfur hefði átt nokkuð marga sauði og þá vel væna og ullaða. Knútur mundi vel eftir þeim, enda var hann fjármaður. Allar skepnur átti Eyjólfur fallegar. Þegar við komum hingað var 40 hesta stykki í túninu, sem hét Út- græðsla og heitir enn. Fólk sagði að Eyjólfur hefði grætt það upp með kvíateðslu og hefði jafrivel náð í geldfé á sumrum og bundið það þar á næturnar. — Sagt var, að eitt haust, þegar hann var bú- inn að bera hauginn og náði ekki á túnið, þá átti hann að hafa sagt: „Nú vildi ég gefa tvo sauði til að hafa nógan skít á túnið“. — Veiðimaður var hann ágætur. Þegar ég var unglingur, var hér á kafla með túnjaðrinum, röð af stórgrýti, sem auðsjáan- lega hefði verið látin sem varn- argarður og snidda ofan á, sem nú var rotnuð af og stóðu klett- arnir eftir berir. Voru þeir ærið stórir, t.d. metri á kant og vel það. — Þetta stórgrýti hefur víst verið tekið upp úr túninu, því að nóg var til af því þar. En oft hefur mig furðað á því, að nokk- ur maður skyldi geta geta fært það til með verkfæraleysinu, sem bá var. Nú er búið að taka mest af þessu grjóti með jarðýtu, þó er hluti óhreyfður enn af þessu gamla lagi. Fyrst, þegar ég man eftir hérna,. voru öll fénaðarhús þakin með hellu. Ekki var það hreint blá- grýti, heldur því sem næst. Gamalt fólk sagði, að Eyjólfur hefði sótt þessa hellu austur í Spóastaðaása, fyrir austan Brú- ará og dregið hana á sleða yfir vatnið á vetrum, og í öðru lagi hefði hann sótt hellu suður í Hverakotsása í Grímsnesi, en það er þriggja tíma lestarferð héð- an. Þetta hlýtur hann að hafa flutt á reiðingshestum. Hér er ekkert hellutak og hefur aldrei verið, en hellan var nauðsynleg. Hún varði lekum og fúa, en væna viði þurfti undir hana og var mest rekatimbur í húsum eftir hella, sem að líkindum er ofan Eyjólf en á hans tíð var ekkert þakjárn til. Enn er hér til hraun- hella, sem að líkindum er úr Hrafnabj argarhálsi, en það er þriggja tíma lestaferð héðan og þangað. Ég veit ekki til að samskonar hella sé til nær. Hún er 1 metri og 80 sm. á stærð og iy2—2 tommur á þykkt. Hún er klyftak, því að það er bruna- grjót í henni og hefur Eyjólfur sennilega flutt hana á reiðing m. fl. Einkennilegt þótti mér, að ekkert hellublað tilheyrði vest- urbæjarpartinum hérna, og allt grjót í kofum þar var smátt og ólánlegt, en grjót í veggjum og húsum hérna var valið og gott hleðslugrjót. — Þetta allt voru minjar eftir Eyjólf og vottur þess að hann hefur verið dug- mikill og snildar búsýslumaður, einn af sj álfmenntuðum búfræð- ingum síns tíma. Þegar ég var unglingur var uppi miðaldra fólk, sem mundi Eyjólf vel, háttalag hans og orðatil- tæki. Hann var víst óheimskur, en tilsvör hans þóttu oft spaugi- leg. Hann átti beinljósan reið- hest sem hét Lýsingur, óhemju- viljugan og léttan vel. Vinur hans á Skeiðum gaf honum hann ófæddan á Einmánuði.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.