Heima er bezt - 01.01.1955, Side 23

Heima er bezt - 01.01.1955, Side 23
Nr. 1 Heima er bezt 19 uð, af fjölmörgum meira að segja,, er hollusta og lífsnauðsyn matargæða þannig misbrúkuð, að stór fjöldi mannfólks etur sig steindautt löngu fyrir aldur fram. Nei, í því er ekkert vit né mannleg sanngirni, að bann- syngja alla nautn hóflega þenkjandi fólks, þótt hópur hóf- lauss öfgalýðs stigi yfir öll vel- sæmismörk hóflegra nautna. Ég kýs mér ekki og hefi aldrei gjört afneitun þeirra nautna er hóf- lega gleði skapa, svo mun fara mörgum þeim, er til hófs stilla, sem mér, að hlýða ekki fordóm- um á allri nautn. Hitt segi ég hiklaust, að öll ofnautn er end- emi, við verðum að reynast menn í nautn sem öðru. Þetta þykir nú líklega hliðarspor hjá mér frá réttarfagnaðar þönkum. Ég skaut mér út úr vinahópn- um, ætla mér ekki nú frekar venju að gerast ölvaður. Ég stíg á bak hvíta hestinum, hann töltir með mig út í hausthúmið. Réttar-gleðin var að baki, en þó í barmi, ég stefni för suður Lax- árdal, enda þótt mér byðist næg samfylgd á heimleið, kaus ég mér frekar einsemdina í myrkri haustskvöldsins. „Myrkrið er manni fjandi, meiðir það lif og sál,“ segir skáldið. — Ekki æfin- lega — ekki haustmyrkur, þótt yfir falli einförulan mann — gamlan uppgjafa bónda á heim- leið frá réttargleði. Hesturinn tölti troðningana fram Laxárdal, fram hjá yfirgefnum býlum með sléttlendum túnum, greiðfærum engjum og kjarngrasahlíðum. Veðrið fór batnandi. Svefn og myrkurró haustsins birgðu allt í fangi sér. Lífið beið lausnar- orðs vors og sólar. Gaukur skauzt undan steini í hlíðar- troðningi og skríkti. Síðbúinn gauksi, sagði ég. Til nokkurs skal freista tjáir hann, því kröftugur og ljúfur í nefi er maðkurinn hér efra, en ég á vængjanna völ ef út af ber með veðraföllin. Svo er nú það, sagði ég, sumum fatast nú vængja- takið, gauksi, þá válega blæs. Svo skildu leiðir okkar. Ekki brást hvíting öryggi fótvissunn- ar í staksteina-troðningum há- fjallsins og grúfandi myrkri haustnætur. Vonandi sverfist aldrei af tímans tönn né tækn- Framh. á bls. 29 Snæbjörn Einarsson: Sem farandsveinn ég reika um forna slóð, — — mín ferð var hingað gerð. Á brekkuhalli þar sem bærinn stóð sem barn ég aftur verð. Því hérna leit ég lífsins fyrsta dag og las mín fyrstu blóm. Og söng mín æskuljóð með léttum brag við lífsins hörpuhljóm. í vorsins ilm frá vöggu minnar sveit ég vökudraumsins nýt og lifi horfið yndi í óskareit og af mér fjötur brýt. Ég verð á ný sem lítið brekabarn og brosi að horni og legg. Og bræði úr draumsins lundi lífsins hjarn við lágan tóftavegg. Þótt gróið hafi yfir gömul spor og gleði mín sé veik, ég finn að ennþá angar sama vor og um hinn fyrsta leik. Með trega lít þó margt, sem orðið er sem auðn í grónum reit: Nú er ei lengur lambhúskofi hér né lítil kind á beit. Ég nýt þess enn, er átti ég hérna skjól og ei til næsta máls. Með mold á hnjám og hörund brúnt af sól og hönd að starfi, — frjáls. Því hér var fyrsta landnám hjarta míns og hérna gleðin var. Þó nýti ég síðar yndis, ásta og víns ég átti heima þar. Hér undi ég sæll við auð míns draumalands og ilmrík vallarblóm, sem tíndi ég og batt í brúðarkrans, sem beið þann eina dóm að visna brátt og verða ævintýr, sem vermdi hjartans ljóð, og ófst sem gullinn geisli, tær og hlýr i geð og lifs míns óð. Hér hefur numið ríki baldursbrá að baðstofunnar vegg. Nú herjar ekki höndin kvik og smá né hvöss og bitur egg. Nú friðlýst er mitt forna draumaland svo frjáls er sérhver rós. — — En ég hef reikað feigðar fjörusand við flóttans Miklaós.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.