Heima er bezt - 01.01.1955, Síða 25

Heima er bezt - 01.01.1955, Síða 25
Heima er bezt 21 Nr. 1 Frá liðinni tíð: Bankastræti í Reykjavík. Myndin er tekin nokkru fyrir aldamót. Vindmyllan í baksýn. Annan sunnudag í föstu. (Móðurskyldur). Um konuna segir hann:------ „Ef vér lítum til umliðinna alda og köllum sögu þjóðanna til vitn- is, þá mun sýna sig, að undirok- un konunnar eða fordómurinn gegn menntun hennar hefur ver- ið ein sú höfuð bölvun, sem mest hefur tafið fyrir framför heims- ins. Og mér er sannlega óljóst, hvort nokkur skaðlegri hleypi- dómur hefur átt sér stað á jörð- unni og hvort mannkynið hefur út tekið þyngri hegning fyrir nokkurn hlut annan en þenn- an.“ Fjórða sunnudag í föstu. — — „Þú ert aldrei betur kristinn en þegar þú ígrundar almenn og áríðandi velferðar- mál og leggur fram þinn skerf til þess að efla hagsæld með- bræðra þinna fjær og nær. Það er í sannleika ekkert veglegra verk til á jörðunni en þetta.“ — Á pálmasunnudag. Þetta segir hann um valdið: „Hví eru margar þjóðir svo skammt á veg komnar sem þær eru?“ Vér svörum: Orsakir til þessa kunna margar að vera, en ein höfuðorsökin mun verið hafa óheillavænleg brúkun valds, er framin hefur verið á flestum tímum og 1 flestum löndum. Menn hafa ýmist verið sviptir öllum umráðum yfir sjálfum sér, eða þá að minnsta kosti þeim hefur ekki verið trúað fyrir mál- efnum sjálfra sín, og er hvort- tveggja háskaleg aðferð við frjálsar venjur.“----- Og enn fremur: „Konungar og klerkar hafa verið tveir hinir miklu valdhafendur jarðarinnar, er annar hefur beitt píslarfærum þessa heims, en hinn ógnum annars heims, til að brjóta mannkynið undir okið. Þetta síðarnefnda vald hefur ekki hvað sízt valdið spillingu

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.