Heima er bezt - 01.07.1959, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.07.1959, Blaðsíða 4
Séð yfir Stafafell og Lónið til Suðurs. Lengst burtu er Brunnhorn og siðan Vestra horn. Jökulsd fellur á aurum á miðri mynd. STEINDÓR STEINDORSSON FRÁ HLÖÐUM: SIGURÐUR JÓNSSON r suðaustanverðu Islandi liggur Lónssveit. Blasir hún þar við suðri og sólarátt. Sveitin er að baki lukt fjallafaðmi víðum og fjölbreytilegum, þar finnast ef til vill meiri andstæður og fjöl- breytni en nokkurs annars staðar í hinni furðulegu fjalla- náttúru lands vors. Annars vegar er þar auðn hrikaleiki og torleiði, en á hinn bóginn hlýleiki og yndi og alls staðar fegurð. Armar þessa fjallafaðms enda við sjó fram í hornunum tveimur, Eystra- og Vestrahorni. Eru þau gerð úr forngrýti, gabbrói og granófýr, sem annars er harðla fágætt hér á landi, og fjöllin sjálf mikilfeng- leg og sérstæð. I sjálfri byggðinni skiptast á blásinn grjót og jökulaurar annars vegar, en einnig grösugar flæði- engjar. Miðsveitis fellur Jökulsá í Lóni, óhemja sem engu eirir, en hefir þó nú verið brúuð, svo að hún klýf- Stafafelli ur ekki lengur sveitina. Um hlíðar skiptast á skógar- teigar og grasbrekkur við naktar skriður, sem oft eru skreyttar furðulegri litarmargbreytni. En framundan sveitinni er hafið, blikandi og endalaust. Upp undir fjöllum nær miðsveitis stendur kirkjustað- ur og höfuðból sveitarinnar: Stafafell. Bærinn stendur hátt og er þaðan víðsýnt um alla sveitina að heita má. í Lóni hefir alizt upp margt kjarnafólk, og á Stafafelli hefir nú búið í hálfa öld þjóðkunnur búhöldur og for- ystumaður í héraði, Sigurður Jónsson. Foreldrar Sigurðar voru Jón Jónsson, prófastur á Stafafelli og kona hans Margrét Sigurðardóttir, prófasts á Hallormsstað Gunnarssonar. Séra Jón var sonur Jóns sýslumanns og kammerráðs Jónssonar á Melum í Hrúta- firði. Höfðu þeir frændur búið þar mann fram af manni, 224 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.