Heima er bezt - 01.07.1959, Page 10

Heima er bezt - 01.07.1959, Page 10
Bjðrn Guðmundsson og Guðmundur B. Árnason. inni og hélt „Vesta“ að Þórðarhöfða og lá þar, það sem eftir var dagsins. En um kvöldið var leyst og haldið til hafs. Daginn eftir varð nokkru af vörunum komið í land á Sauðárkróld. En ekki var þó uppskipun lokið er „Vesta“ fór þaðan. Til Akureyrar komum við um nónbil þ. 3. október. Var þá norðan gola og útlit afar ljótt: margfaldur, hvít- ur klakkabakki í hafi. Enda lét óveðrið ekki bíða sín lengi, því um kvöldið gekk í norðan stórhríð. Þetta óveður stóð látlaust í 4 sólarhringa. Á öðrum degi varð þó frostlaust og krapahríð eða regn eftir það. Svo fast blés Norðri að illfært var á bátum milli skips og lands á Pollinum og ófært með öllu í þrjú dægur meðan hvass- ast var. Að kvöldi hins fjórða dags tók storminn að lægja. Var svo heiðskírt veður og logn næstu daga og alltaf unnið að upp- og framskipun. En aðfaranótt þess 9. gerði svo mikið frost að allan Pollinn lagði svo þykk- um ísi, að bátum reyndist erfitt að komast fram að skipinu. Að morgni þess 11. fór „Vesta“ frá Akureyri og kom til Húsavíkur um hádegisbil. Hafði þessi síðasta nótt á Akureyri orðið okkur Birni ónæðissöm, sökum drykkjuskapar og þar af leiðandi hávaða og illinda á skipinu. Um miðnæturskeið, er við vorum rétt komnir í rekkjur okkar, var hurðinni að klefa okkar hrundið upp, og inn snaraðist snotur og snyrtilega búinn verzl- unarmaður af Akureyri — talinn mesta kvennagull bæj- arins í þann tíð —. Hann hafði stórlega móðgað einn farþeganna og var nú á flótta undan honum. Á hæla hans kom svo stór og svipmikill maður — Benedikt St. Bjarnason — og veitti verzlunarmanninum þegar at- göngu. Varð þar skakkur skinnaleikur og tók blóð strax að fossa niður bringu verzlunarmannsins. Svo vel vildi þó til, að Jóhannes sldpstjóri og tveir kunningjar hans voru á fótum í klefanum. Gengu þeir strax á milli, fengu sefað Benedikt og komið honum út. Blés þá verzlunarmaðurinn sig allan upp, skammtaði Jóhannesi og félögum hans skít úr hnefa fyrir að hafa skorizt í leikinn. Taldi sig vera mann á móti Benedikt. Hann var þó varla búinn að stöðva blóðrásina og laga sig til eftir föngum, er Benedikt birtist aftur í klefadyrunum. En þá varð það fyrsta viðbragð kappans að forða sér bak við bargvættir sínar. Benedikt ruddist um fast, gat seilzt yfir verndara óvinarins og komið einu höggi á hann, svo blóð tók að renna á ný. Að því búnu hvarf hann aftur fram úr klefanum. En Jóhannes og félagar hans hröðuðu sér út með verzlunarmanninn, sem nú var ekki borubrattur og fengu komið honum í land. Ég hafði aldrei áður séð barizt með hnúum og hnefum, ogjróttu það ljótar aðfarir. Á Húsavík stanzaði ég aðeins fáa tíma en fór svo gangandi norður yfir Tunguheiði. Þegar kemur á aust- urbrún heiðarinnar, opnast skyndilega útsýn yfir Kelduhverfi og Öxarfarðarflóann og sveitirnar þar austan við: Hólsföll, Öxarförð, Núpasveit og Melrakka- sléttu. Er sú útsýn hin fegursta, einkum á sólbjörtuni og lygnum sumarmorgnum og hafði oft hrifið mjög huga minn. Nú var héraðið með nokkrum kuldasvip, þar eð Vetur konungur hafði með skírum línum mark- að sér fjöll og hálendi. Þó fannst mér, er ég stóð á heiðarbrúninni þetta kyrra haustkvöld, að ég hefði aldrei séð það fegurra. Að tæpum klukkutíma liðnum, var ég kominn í faðni ástvina minna á æskuheimili mínu, fátækari af fögrum framtíðarvonum en nokkru ríkari af lífsreynslu. Þar með var fyrstu för minni úr föðurgarði lokið. Hafði ég eytt 59 dögum í að komast þessa leið — ti! Isafjarðar — fram og aftur, og mætt margs konar óþægindum og erfiðleikum. Er það þó ekki nema lítill hluti leiðarinnar kringum litla hólmann okkar. Og ekld nema um klukkutíma ferð með beztu farartækjum nú- tímans. Tvær næturnar á Akureyri í þetta sinn, — sú fyrsta og síðasta — urðu okkur Birni minnisstæðar. Strax og „Vesta“ hafði varpað akkerum á Akureyrar-Polli, tók- um við okkur far í land. Eyddum við síðan því, seni eftir var dagsins við peningaspil á Hótel „Anna“. Um kvöldið er við vildum hverfa um borð í „Vestu“ var óveðrið skollið á og enginn bátur fáanlegur. Við héld- um því aftur til hótelsins og báðum um rúm yfir nótt- ina. En þá voru öll rúm á hótelinu upptekin. Á pakk- húslofti var þó rúmflet laust og urðum við að sætta okkur við það. Á loftinu voru allmargir menn og sýnd- ist okkur sumir ekki sem álitlegastir, því auðséð var að þeir höfðu komizt í full náin kynni við Bakkus kon- ung. Langt fram yfir miðnætti var engin leið að festa blund vegna hávaða og gauragangs. Blindfullur maður — Jóhannes „blápungur“ — lá þar á gólfinu og gekk ekki burt örna sinna. Var því loftið ekki gott í loft- salnum. Um nóttina vaknaði ég við það að einhver var að fara undir koddann minn. En þar höfðum við Björn sumarkaupið okkar. Er ég snart hendi hans, kippti hann henni snögglega að sér og hafði sig á brott. Dimmt var á loftinu svo ég sá ekki manninn. Til allrar hamingju hafði ég vaknað strax, svo hann hafði eklcert upp úr krafstrinum. Ekki þorðum við Björn að sofna cftir það. Og með fyrstu skímu klæddum við okkur og gengum um gólf niðri í pakkhúsinu fram að fótaferð- artíma. 230 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.