Heima er bezt - 01.07.1959, Side 11

Heima er bezt - 01.07.1959, Side 11
ÞORSTEINN JÓSEPSSON: Njarévík og Njarðvíkurskriður Pa r sem Austfirðir hefjast að norðan, eftir að Héraðsflóa og Héraðssandi sleppir, gengur vík ein, umlukin háum fjöllum, milli Skálaness að norðan og Landsenda að sunnan og heitir Njarðvík. Þar er samnefndur bær, sem var landnámsjörð og stórbýli fram eftir öldum. Kom Njarðvík allmikið við ýmsar fornsögur og þá fyrst og fremst Gunnars þátt Þiðrandabana, en sá, er fyrstur nam land þar, hét Þorltell fullspakur. Einn mestur fyrirmanna, sem búið hafa í Njarðvík, var Björn skafinn Jónsson, en viðurnefni sitt hlaut hann af því, að móðir hans fæddi hann á ferðalagi á heiðum uppi. Þar var ekkert vatn til að lauga piltinn og varð því að skafa hann með hníf. Sú er saga um Björn skafin, að þegar hann var ráðsmaður Margrétar ríku á Eiðum, hafi hann eitt sinn sem oftar stundað róðra frá Borgar- firði. Húsfreyja, sem bæði var ráðrík og ágjörn, kom niður á Borgarfjörð í eftirlitsferð og þótti illa hafa fisk- azt. Vandaði hún um við Björn ráðsmann, en hann kvað ekki duga, því að ekki fengist nema einn fiskur í áróðri. „Séu tuttugu áróðrarnir,“ sagði Margrét, „fást tuttugu fiskar.“ Daginn eftir vildi húsfreyja sjálf fá að fara með í róður og var það auðsótt, enda veður fagurt. En brátt syrti í lofti og skall á rok. Þá bað Margrét, sem óvön var sjó og bæði hrædd og köld af vosbúð og sjóveik, að róið yrði hið skjótasta til lands. Því neitaði Björn, kvað bezt að reyna þolið, því í tuttugu áróðrum fengjust tuttugu fiskar. Þegar veður versnaði svo mjög, að sjó- inn skóf og Margrét var nær dauða en lífi, lét Björn loks til leiðast að róa í land, er húsfreyja hafði heitið honum einkadóttur sinni, sem líka hét Margrét, og var Njarð- vík heimanmundur hennar. í Njarðvík búnaðist þeim vel og áttu marga sonu, sem allir urðu mikilmenni. Sá, sem tók við búi á jörðinni af Birni bónda, var Þorvarður sonur hans. Var talið að hann hafi haldið hlífiskildi yfir konu þeirri, sem Hamra-Setta var kölluð og myrt hafði bónda sinn vegna þess, að hún felldi hug til annars manns. Með þessum manni lagðist hún út í helli, sem er í fjalli fyrir ofan Borgarfjörð, veiddi silung og lifði á honum. En þegar lagsmaður hennar dó, fór hún úr hellinum og lagðist út í Dyrfjöll fyrir botni Njarðvíkur. Þá er sagt að Þorvarð bónda hafi vantað átján sauði af fjalli, en veturinn eftir kemur kona upp á baðstofupall í Njarðvík, varpar af sér byrði mikilli og segir um leið og hún hvarf út: „Þá hefur hver nokkuð sauða sinna, Þorvarður bóndi, þá hann hefur ullina.“ í byrði konunnar var vaðmálsvoð, 18 álnir að lengd. Var talið, að Þorvarður hafi gefið Settu sauðina um haustið, en hún viljað að einhverju launa gjöfina. Skammt er liðið frá því akvegur var gerður af Héraði og til Njarðvíkur, og liggur hann um svokallað Vatns- skarð, en áður var almennt farið um svokölluð Göngu- skörð frá Unaósi við sunnanverðan Héraðsflóa yfir í Njarðvík. Var það fremur stutt leið yfir allháan háls að fara og ekki ýkja ógreiðfært. Þarna uppi á hálsinum rís fellshnúkur, sem Sönghofsfell nefnist. — Þjóðsaga hermir, að þar uppi á hnúknum hafi staðið hús til forna, Sönghof nefnt, og verið samkomustaður Héraðsbúa og Borgfirðinga. Aðrir segja að þar hafi verið hof forn- manna í heiðni. Norðan í fellinu er þröng gjá, sem heitir Klukkugjá, og áttu fornmenn að hafa skotið járn- stöng úr hofinu yfir gjána og síðan hengt á stöngina klukkur, sem hringdu fyrir vindi. Klukkurnar hringdu öldum saman og vernduðu grannabyggðirnar fyrir ó- vættum þeim, sem í Dyrfjöllum bjuggu. — Seinna var klukkunum stolið. Þegar yfir í Njarðvík kemur, breytir landið mjög um svip. Má segja, að land sé bæði svipmikið og svip- fagurt. Víkin sjálf og undirlendið, sem inn af henni gengur, umlukið háum og fríðum fjöllum, sumum grón- um grasi og lyngi hátt upp í hlíðar. Víða eru fjöll úr líparíti og fjölbreytileg í litum, en annars staðar eru blá- grýtisfjöíl. Inn af sjálfri víkinni gengur allmikið dal- verpi til vesturs og í því grasgefið undirlendi með tveim bæjum, höfuðbólinu Njarðvík og Borg, sem byggð hefur verið úr Njarðvíkurlandi, og liggja tún bæjanna saman. Inn og vestur af undirlendinu rísa Dyrfjöll, Við Dyrfjöll. Heima er bezt 231

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.