Heima er bezt - 01.07.1959, Síða 12

Heima er bezt - 01.07.1959, Síða 12
Dyrfjöll, séð að norðan. hæstu fjöll á Austfjörðum, í mikilli tign og gnæfa við himin. Beggja megin við víkina, sem gengur inn í landið, liggja brattar og miklar skriður, dimmar og drungaleg- ar í sjó fram. Sums staðar ganga sjávarhamrar upp í skriðurnar, og er þar ekki árennilegt um að litast. Þó lá áður gata — og nú akfær bílvegur — um miðjar skrið- urnar sunnan víkurinnar, og heita þær Njarðvíkursk-rið- ur. Þær voru alræmdar fyrir slysahættu áður fyrr og þó einkum í svellum og snjóalögum að vetri. Þegar Páll sagnfræðingur Melsteð fór um Njarðvík- urskriður á fvrri hluta 19. aldar, þótti honurn gatan ó- hugnanlega tæp og kvaðst naumast skilja, að þar gætu hestar mætzt öðruvísi en með bráðum lífsháska. Hálfri öld seinna ferðast Þorvaldur Thoroddsen um skriðurn- ar, en þá mun gatan um þær hafa verið lagfærð og breikkuð, samt ekki meir en svo, að hann taldi óráðlegt fyrir fólk, sem sundlhætt væri, að ríða skriðurnar. Segir Þorvaldur um Njarðvíkurskriður, að þar séu þver- hníptir blágrýtisklettar með sjónurn en brattar skriður fyrir ofan, með tæpri götu, skáskorinni á ýmsan hátt. Fyrir neðan götuna séu sums staðar þverhníptar gjár inn í bergið, þar sem sjórinn sogist út og inn. Fyrst þegar bílvegur var lagður um skriðurnar, var þar um svo tæpan ruðning að ræða, að ytri hjól farar- tækisins námu sums staðar við götubrún, og var það hinn mesti glæfravegur, enda þótt ekki yrði að slysi. Vegurinn var þá aðeins fær jeppum, en hefur nú verið breikkaður og lagfærður og er fær hvaða bifreið sem er að sumarlagi, enda liggur þegar allmikill ferðamanna- straumur í hinar fögru byggðir Njarðvík og Borgar- fjörð. í Njarðvíkurskriðum hefur um margar aldir staðið kross með svolátandi latneskri áletrun: Effigiem Christi, qui prodis, pronus honora, sem myndi þýða eitthvað á þá leið, að þar skyldu vegfarendur falla fram í bæn og lesa Faðir vor. Þótti það ósvinna og guðleysi að ganga framhjá kross- inum án þess að biðjast fyrir, jafnvel löngu eftir að kaþólsk trú var niður lögð á Islandi. Njarðvíkurskriður voru óvenjulega hættulegar veg- farendum eftir að frost kom í jörð og snjóar féllu. Gat- an milli Njarðvíkur og Borgarfjarðar lá þá neðarlega í skriðunum, en þær voru snarbrattar og snjórinn lá laus utan í brattanum. Mátti þá engu muna að um snjóinn losnaði, hann fossaði með geypihraða niður ægibratta hlíðina og tæki allt, sem fyrir varð, með og þeytti því langt á sjó út. Til er þjóðsaga, sem segir frá tildrögum þess, að kross- inn var reistur í Njarðvíkurskriðum og var ekki kennt um snjóflóðum né slysförum af orsökum náttúruham- fara, heldur óvætti, sem er í mannslíki ofan miðju, en skrímsli eða dýr að neðan, og hét óvætturin Naddi. Hélt hún sig í gili því í sem næst miðjum Njarðvíkur- skriðum, sem síðan hefur verið nefnt Naddagil. Var hún grimm og vægði engum sem hún náði til, en helzt var hún á ferli eftir að dimma tók af nótt, réðst vægðar- laust á vegfarendur að drap þá. Maður er nefndur Jón Bjarnarson. Hann átti leið um Njarðvíkurskriður síðla kvölds að hausti, og þrátt fyrir eindregin tilmæli að bíða morguns og birtu, skeytti hann því engu, heldur hélt í skriðurnar. Þegar Jón var kominn að Naddagili, kom ófreskjan á móti honum og réðst á hann þegar. Tókust þar harðar sviptingar og langar og barst leikurinn vítt um skrið- urnar, unz kom á syllu þá eða stall, sem Krossjaðar er nefndur. Þótti óvættinni þá örvænt um sigur yfir Jóni, sleit sig lausa af honum og hélt til sjávar. Þar hvarf hún honum sýnum, en Jón komst við illan leik til Njarðvík- ur, marinn og þjakaður mjög, og lá lengi rúmfastur. Var krossinn síðan reistur á Krossjaðri og hefur lítið eða ekki borið á Nadda síðan, en snjóskriður hafa mörg- Krossinn í Njarðvikurskriðum. 232 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.