Heima er bezt - 01.07.1959, Síða 20

Heima er bezt - 01.07.1959, Síða 20
Flogið heim E'l k k i er langt síðan flugið var talið undraverð íþrótt, og það þótti heimsviðburður, er flogið j var yfir Atlantshafið. En nútíminn er ekki hissa á nýmælunum. Nú er í blákaidri alvöru rætt um flugferðir til tunglsins og nálægra hnatta í okkar sól- kerfi. Venjulegt flug milli landa er nú hversdagslegur viðburður. Fjöldi íslendinga er leikinn í fluglistinni, og enn stærri hópur hefur notið þess unaðar að fljúga í fögru veðri yfir Iönd og úthöf. Frá því að ég í fyrsta skipti sá flugvél svífa í blátæru loftinu yfir höfði mér, þráði ég þá stund, er ég fengi að fljúga um loftin blá. En mörg ár liðu svo, að ég taldi mig ekki geta fullnægt þeirri þrá. En nú hef ég nokkrum sinnum flogið, bæði innan lands og utan, og i trausti þess, að flugið sé fleirum en mér heillandi ævin- týr skrifa ég þennan þátt. Ferðalög eru ætíð heillandi, einkum um ókunn héruð og lönd, en yfir flugferð hvíla einhverjir töfrar, sem varla er hægt að lýsa. Ef til vill er það hið létta loft, sem vekur þennan unað, og ef til vill er það áhættan, sem heillar, — en hvað sem þessu veldur, þá er flug- ferðin einstæð og heillandi. Rétt fyrir kl. 7 hinn 11. júní 1946, ekur bifreið mér inn á flugvöllinn í útjaðri Stokkhólmsborgar. Þar fer fram hin venjulega athugun á farangri og farbréfum, og síðan er setzt upp í flugvélina. Ég vel mér gott gluggasæti til vinstri í flugvélinni. Ég veit hún leggur leið sína suður með strönd Eystrasalts. Ef til vill verður svo bjart að sjáist til landa handan flóans. í flugvélinni eru sæti fyrir 48 farþega, en nokkur sætin eru auð. Við sitjum í djúpum, stoppuðum stólum og inni í flugvél- inni er vistlegt og hlýtt. Farþegarnir hagræða sér í sæt- unum, og sumir taka upp blöð og fara að lesa. Nú fara hreyflarnir í gang. Þeir ganga um stund, meðan vélarn- ar eru að hitna, og loks fara spaðarnir, eða flugskrúf- urnar, að snúast með miklum gný, — og flugvélin titr- ar. Hún rennur af stað eftir flugvellinum og hraðinn eykst gífurlega. Vélin svífur mjúklega eftir flugvellin- um og áður en varir er hún komin á loft og virðist fara með feikna hraða rétt ofan við húsþök og trjátoppa. Hún hækkar ört, — hoppar og tekur dýfur, því að vindur er talsverður, en þó er sæmilega bjart yfir. Þeg- ar flugvélin hækkar sig enn meir, ber minna á vindin- um og vélin kyrrist. Ég tek upp dagbókina mína og byrja að skrifa. Rétt áður en vélin hóf sig til flugs kviknaði eldlegt Ietur á framhlið farþegarúmsins og þar gat að líta með glóandi bókstöfum: „Spennið á ykkur beltin.“ Farþegarnir grípa um reimarnar, sem festar eru á hvern stól, og gyrða sig fasta í stólinn. Snyrtileg og broshýr sænsk stúlka gengur milli sætanna og athugar hvort allir hafa hlýtt skipuninni. Hún festir dálítið knippi af bréfpokum aftan á hvern stól. Líka fær hún hverjum farþega lítinn baðmullar-pakka, en margir troða baðmull í eyrun á langri flugferð. Hin undurfagra Stokkhólmsborg blasir nú við sýn. Stundum er borgin nefnd „Feneyjar Norðurlanda“. Líklega er það líkingin við Feneyjar, sem gerir þessa borg svo heillandi fagra. En orðin ná skammt, ef lýsa á fegurð lands eða borgar. Það er augað, en ekki eyrað, sem skynjar þá fegurð. Flugvélin klýfur loftið með miklum gný. Ég þekkti cngan „innanborðsíl og held því áfram að skrifa í dag-

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.