Heima er bezt - 01.07.1959, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.07.1959, Blaðsíða 36
324. Ég beygi mig niður að manninum og reyni að vekja hann, en árangurs- laust. Hann er alveg máttlaus. Ég tek þá undir handleggina á honum og dreg hann fram að dyrunum. En þetta er harla erfitt. 325. Loks tekst mér með herkjubrögð- um að draga meðvitundarlausan mann- inn út á hlaðið. Og hann rankar brátt við sér aftur í hreina útiloftinu og opn- ar loksins augun. 326. „Þakka þér kærlega fyrir“, segir hann óðar er hann hefir áttað sig á, hvað fyrir hefir komið. „Án þinnar hjálpar hefði verið úti um mig,“ bætir hann við og lítur á húsið í björtu báli. 327. Þegar maðurinn hefir náð sér nokkurnveginn, kynnir hann sig og seg- ir: „Ég heiti Jörgensen og er rithöfund- ur. Þetta er sumarbústaður minn, sem nú er í björtu báli.“ Hann rís skyndi- lega á fætur og bendir á skóginn. 328. Skógurinn er í hættu! hrópar hann. „Við verðum að hemja eldinn!“ Við tökum sína skógarhrísluna hvor og ráðumst á eldinn, sem nú hefir læst sig í mosann og breiðist óðum út. 329. Við hömumst eins og brjálaðir menn. Svitinn bogar af okkur og rennur ofan í augun og hálfblindar okkur. En það er ekki auðvelt að hemja eldinn. Hann er okkur ofurefli. En nú kemur skyndilega hjálp úr nágrenninu. 330. Hér þarf engra skýringa við, þvf aðkomumennirnir sjá óðar, hvað um er að vera. Og nú hefst baráttan gegn eldinum af margföldum krafti og kappi. 331. Allt í einu heyri ég geltið í Mikka — en hann hefir verið alveg rólegur og horft með athygli á aðfarir okkar. Nú geltir hann tryllingslega og þeytist á harða spretti ofan á þjóðveginn. 332. Ég sé að Mikki rýkur í einhvern gleraugnaglám, sem hefir numið staðar á veginum. Ég gái betur að. Þetta er þá bannsettur óvinur minn og sífelldur kvalari, málafærslumaðurinn Perlberg.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.