Heima er bezt - 01.02.1960, Page 2

Heima er bezt - 01.02.1960, Page 2
Hafmey og Iiakakrossar Á Gamlaárskvöld síðastliðið gerðist sá fáheyrði at- burður í Reykjavík, að listaverk, Hafmeyjan í Tjörn- inni, sem bærinn hafði látið reisa á almannafæri, bæjar- búum til ánægju, var sprengt í loft upp. Áður höfðu að vísu verið uppi deilur um listargildi og fegurðarverð- mæti myndastyttunnar, svo og hvar hún ætti að standa. í þeim deilum hafði margt óþarft orð fallið, og meðal annars höfðu fulltrúar myndlistarmanna komið þar fram á miður smekkvísan hátt. Ég býst við, að flesta þá, sem eitthvað hugsa, hafi sett hljóða við þessi tíðindi. Það er í sjálfu sér ætíð um- hugsunarvert og vítavert þegar spillt er fjármunum af illvilja eða athugaleysi, og sagt er að þarna hafi verið kostað til hundruðum þúsunda króna. En þótt menn hnykki við slíku, er það sízt af öllu aðalatriðið í þessu máli. Ymsum mun hafa orðið til þess hugsað, að ef til vill yrði ekki hægt að endurskapa listaverkið, og væri það í sjálfu sér miklu alvarlegra, en svo mun þó ekki vera. En langflestum mun hafa flogið í hug spurningin um, hvað stæði að baki þessu óhæfuverki. Hvort hér væri einungis um að ræða óvenjulega mikinn strákskap í sambandi við Gamlaárskvöldsærsl, eða það væri fram- ið að yfirlögðu ráði þeirra manna, sem andvígir voru því, að styttan væri reist þarna í Tjörninni, og hyggð- ust með þessu að gefa bæjaryfirvöldunum og listaverka- nefnd hæfilega ráðningu. Af ummælum og atvikum, sem síðar hafa fram kom- ið, virðist það ljóst að þar mun vera um hið síðarnefnda að ræða, og þar með fram komið, það sem menn ótt- uðust mest. Spellvirki og skrílsháttur óstýrilátra unglinga og ann- arra er að vísu meinsemd, sem taka þarf föstum tökum og leitast við að útrýma. En margs þarf að gæta, og refsiaðgerðir einar koma oft að mjög takmörkuðu haldi, eins og dæmin hafa sýnt. Það sem liggur að baki þeim látum er sjaldnast yfirlagt ráð, heldur stundarút- rás fyrir ófullnægða athafnaþrá, sem komin er á glap- stigu. Þegar hins vegar að kalla má að ljóst sé, að spellvirk- ið hafi verið framið í beinu mótmælaskyni við aðgerðir ráðamanna bæjarins, að vel athuguðu máli, og eftir góðan undirbúning, þá er full ástæða til að bera ugg í brjósti, um hvað kunni að gerast í framtíðinni. Og ekki bætir úr, að raddir hafa heyrzt, sem ekki fordæma þess- ar aðgerðir, heldur jafnvel mæla þeim bót. Um langan aldur hafa íslendingar haft andúð á kúg- un og ofbeldisverkum. Þótt þeir hafi átt í deilum, og verið óbilgjarnir í orðum, hafa ofbeldisaðgerðir til framdráttar málum ætíð verið fordæmdar af miklum hluta þjóðarinnar. Frásagnir af slíkum hlutum, sem vér höfum heyrt utan úr löndum, hafa vakið andspymu og viðbjóð. En atvikið í Tjörninni á Gamlaárskvöld bendir til, að meinsemd ofbeldisins, sé tekin að festa hér rætur, og það er sú staðreynd, sem vekur óhug, þegar hugsað er um þessa atburði. Frá slíkum atburði er skammt til stærri skemmdarverka á mannvirkjum eða árása á menn og heimili þeirra af þeim, sem verða í minni hluta í einhverju máli. í þessu ljósi ber að skoða þennan atburð. Og vonandi skapast gegn honum svo sterk andúðaralda, að hann verði einangraður í sögu þjóðarinnar. En um sömu mundir og hafmeyjan lá í brotum á ísn- um á Reykjavíkurtjörn bárust til landsins óhugnanleg- ar fréttir utan úr heimi um að Gyðingahatur hefði blossað upp á fjöldamörgum stöðum, og hefði ýmis óhæfuverk verið höfð í frammi undir merki hakakross- ins. Útvarp og blöð fluttu tíðar fréttir af þessum at- burðum, og síðar gerðist það, að tekið var að mála hakakrossa á hús í Reykjavík og ef til vill víðar. Senni- lega er þó hér um að ræða strákapör, ef til vill gerð í fávizku. En ef svo er gefur það tilefni til að athuga um, hvort æskilegt sé, að útvarp og blöð þrástagist svo á þessum fregnum eins og þau gerðu. Því að áreiðan- lega er samband milli hakakrossanna, sem málaðir voru á húsin í Reykjavík og hinna mörgu fréttatilkynninga um atburðina í Þýzkalandi og víðar. Vér vonum að minnsta kosti, að hér sé ekki um að ræða vísi til kynþáttahaturs eða nazisma. Að vísu voru fleiri íslendingar en góðu hófi gegndi snortnir af naz- ismanum þýzka, meðan stjarna hans stóð sem hæst, líkt og furðulega margir hafa gengið á hönd ofbeldisstefnu kommúnismans, jafnfjarlæg og grundvallarhugsun þess- ara stefna er íslenzku hugarfari. Islendingar vilja hafa mál- og hugsunarfrelsi. Þeim er í brjóst borin andúð gegn kúgun og ofbeldi. Og kynþáttahatur hefur verið óþekkt meðal Islendinga. Kynþáttahatur og ofsóknir, sem því fylgja er eitt óh'ugnanlegasta fyrirbærið í samtíð vorri. Og verður í rauninni aldrei fordæmt um of. En þótt þess gæti meira í heiminum en sæmandi er menningu 20. aldarinnar þá megum vér ekki gleyma hinu mikla starfi, sem unnið er víða um heim til þess að vinna bug á því og skapa 38 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.