Heima er bezt - 01.02.1960, Síða 7
Fer vart hjá því, að þá hafi a. m. k. bror af hrifningarbylgjum
fólksins flætt yfir tónskáldið í klökkri og djúpstæðri þakklát-
semi fyrir eina dýrustu perlu íslenzks sálmasöngs frá upphafi —
tóna, sem lifa munu á vörum og í hjörtum Islendinga meðan trú-
arþörf og tilbeiðsla bærist í brjóstum þeirra."
Ennfremur má geta þess, að Sigurður Birkis, söng-
málastjóri, hefur ritað grein um þessa tónleika í Kirkju-
ritið.
Hér hefur verið drepið á nokkur atriði. Jafnframt því,
sem unnið hefur verið að því að ná þeim áföngum, sem
nefndir hafa verið, skal svo haft í huga, að þrotlaust
hefur verið unnið að því að halda uppi blómlegu söng-
lífi á ísafirði, eins og lítillega hefur verið vikið að. Og
félagsstörfin hafa heimtað sitt.
Jónas var mörg ár í stjórn Sambands íslenzkra karla-
kóra. í stjórn Kirkjukórasambands íslands hefur hann
verið frá stofnun þess 1951. Ennfremur í stjórn Lands-
sambands blandaðra kóra og formaður í Sambandi vest-
firzkra ldrkjukóra frá stofnun þess, og jafnan aðal-söng-
stjóri á söngmótum þess sambands.
Jónas Tómasson kvæntist 1. des. 1921 Önnu Ingvars-
dóttur, blikksmiðs Vigfússonar á ísafirði. Hún dó 6.
október 1943 á Marine Hospital í Baltimore. Frú Anna
lék vel á píanó og hafði ágæta söngrödd. Var hún manni
sínum samhent og honum mikill styrkur í hans marg-
þættu störfum. Þau eignuðust þrjá syni. Hafa þeir allir
erft tónlistaráhuga og hæfileika frá foreldrunum og einn
þeirra gert tónlistina að ævistarfi sínu. Þeir eru: Tómas
Árni, læknir í Reykjavík, Ingvar, fiðluleikari og kenn-
ari við tónlistarskólann í Reykjavík, og Gunnlaugur,
bóksali á ísafirði.
Ekki verður þessari grein lokið án þess að nefna tón-
smíðar Jónasar. Samhliða umfangsmiklum og tímafrek-
um störfum hefur honum tekizt að afkasta miklu sem
tónskáld. Af lögum, sem alþekkt eru og vinsæl orðin
eftir hann nefni ég „Nú sé ég og faðma þig, syngjandi
vor“, „Litla skáld á grænni grein“, „Þér frjálst er að sjá,
hve ég bólið mitt bjó“, „Ég fel mig þinni föðurnáð“ og
„Ó, faðir, gjör mig lítið ljós“.
Þessi nótnahefti hafa komið út eftir Jónas: Strengleik-
ar I—II, 1914, Kirkjusöngvar, þrjú sálmalög, Templara-
sveit, fslandsfáni, fyrir blandaðan kór með píanóundir-
leik, 1942, Helgistef, sálmalög og nokkur lög á víð og
dreif. En hér er ekki nema hálfsögð sagan. Árið 1951
byrjaði Sunnukórinn að gefa út heildarútgáfu af tón-
smíðum Jónasar, Útgáfufyrirtækið Sunnustef, er stofn-
að var um það leyti, hefur svo haldið útgáfunni áfram.
LTt eru komin þrjú hefti: Strengjastef I, 32 sönglög fyrir
samkóra, 1951, Strengjastef II, 40 sönglög. fyrir einsöng,
tvísöng, kvennakór og karlakór, 1956, og Helgistef,
sálmalög og orgelverk, 1958. í þessum heftum eru að
sjálfsögðu endurprentuð flest áður útkomin lög Jónasar.
Jónas hefur haft þá heppni með sér, líkt og Jón Lax-
dal, þegar hann var á ísafirði, að þar hafa verið samtímis
honum búsett góð skáld, sem hafa lagt honum til marg-
an lagtextann. Nefni ég þar einkum Guðmund Guð-
mundsson skólaskáld og Guðmund Geirdal. Veigamesta
viðfangsefni Jónasar á sviði tónsmíðanna mun hafa verið
að semja lög við kvæðaflokkinn Strengleikar eftir Guð-
mund Guðmundsson. En af þeim hafa enn ekki birzt
nema þrjú lög, eins og áður er sagt.
Jónas hefur búið til prentunar tvær nótnabækur fyrir
I.O.G.T.-regluna og eina fyrir Landssamband blandaðra
kóra.
Fyrir nokkrum árum ferðaðist Jónas um Austurríki
og víðar um Mið-Evrópu í för með Ingvari syni sínum.
Og 1957 var hann einn af fulltrúum Félags íslenzkra org-
anleikara á 7. móti norrænna kirkjutónlistarmanna, sem
þá var haldið í Helsingfors. Við vorum tíu Islendingar á
þessu móti. Þar var margt að sjá og kannske meira að
heyra. Ég held að engum okkar sé gerður óréttur þó að
sagt sé, að enginn hafi fylgzt með að meiri áhuga en ald-
ursforsetinn okkar, Jónas Tómasson.
Þegar heim kom flutti hann greinargott erindi um
þetta mót í Ríkisútvarpið. Ég man ekki betur en að hann
segði þá, að sér fyndist hann aldrei hafa haft meiri áhuga
fyrir organleikarastarfinu en einmitt þá.
Nú er komið nýtt pípuorgel í ísafjarðarkirkju, og
getur Jónas nú látið eftir sér það, sem ég ætla að honum
hafi stundum fundizt á skorta hér áður fyrr, nefnilega
að geta gefið sig óskiptan við organleikarastarfinu við
góð skilyrði.
Njóti hann þess heill.
AUÐUNN BR. SVEINSSON:
Horft yfir Skagafjörð.
Lít ég fjörðinn — fagra Skaga
fagurgjörðan styrkri hönd.
Gengur hjörð um græna haga
Gönguskörð og Reykjaströnd.
Ekið fram hjá Hrauni i Öxnadal.
Lengi sagan lofið ber,
laufgast fagur viður.
Forðum daga fæddist hér
frægur Bragasmiður.
Heima er bezt 43