Heima er bezt - 01.02.1960, Side 19

Heima er bezt - 01.02.1960, Side 19
Ester Ingadóttir, Fjarðarstræti 9, ísafirði, óskar eftir að komast í bréfasamband við pilta eða stúlkur á aldrinum 15— 17 ára. Bára Guðnadóttir, Túngötu 22, Isafirði óskar eftir að kom- ast í bréfasamband við pilta eða stúlkur á aldrinum 15—17 ára. Guðlaugur S. Ottósson', Giljum, Hvolhreppi, Rangárvalla- sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku, 11—13 ára. Guðlaug H. Kragh, Seljalandsseli, Vestur-Eyjafjöllum ósk- ar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 15—19 ára. Eyðibýlið Pálssel Framhald aj bls. 50. ---------------------------- Guðlaugssonar, smáskammtalæknis (homöopat). Komu menn þá stundum illa til reika af Laxárdalsheiði á vetr- um og gistu þá venjulega. En á öðum tímum árs komu þeir þá oft til þess að spyrja til vegar, og þá sérstak- lega inn yfir svokallaðar Hálsagötur, sem er fjalllendi á nrilli Laxárdals og Hvammssveitar, og styttir leiðina vestur til muna, þótt vegur sé verri en neðra. Ég man eftir því, að eitt árið var haldin dagbók yfir gesti og voru þeir eitthvað á þriðja hundrað í einum mánuðin- um, þegar flestir komu. En einhvern veginn var það nú samt svo, að allir sem voru þá á heimilinu, hlökkuðu oftast til þegar gest bar að garði. Og nokkuð var það, að oft var starað og mænt, ef til mannaferða sást norð- ur á Bungum, ofar Heiðarbrekkum, hvort þeir kæmu heim eða riðu hjá garði. Nú eru þessir tímar liðnir og koma ekki aftur. Skammdegisskuggarnir voru þá oft dimmir og langir, og þeir sem við þá bjuggu þráðu flestum fremur sól og sumar. Og sennilega hefur vorsólin óvíða skinið skærar, en einmitt þar, þegar hún langþráð loksins kom, fram úr skýjunum. Og nú er þetta býli, eins og svo mörg önnur, komið í eyði. Oðum mást út gamlar göt- ur og troðningar. Og að lokum verða þær eins og spurn um það sem var. Spurn sem hljóðnar að síðustu út í víðáttur rúms og tíma. Að lokum set ég hér nokkrar af vísum Ólínu Jónas- dóttur, er hún gerði um Krókárgerði, og geta víðar átt við nú á tímum, en þar. Treyst var lengi á moldarmátt, mátti engu hagga, hugðu drengir hollan þrátt heimafenginn bagga. Hér var þrátt með þreki og raun þreytt við máttarvöldin, fjalls í átt um urð og hraun einatt smátt um gjöldin. Fólkið þreytta flúið er fjalls úr skreytta salnum, minjum eytt að mestu hér, margt er breytt í dalnum. Fornhelg kenning, farsæl þrátt, fallin sem að grunni, skákar enn á ýmsan hátt ungu menningunni. ÖRNEFNI í PÁLSSELI 1. Ármót. 2. Ásar. 3. Bakkarúst. 4. Bcinalækjarhvolf. 5. Beina- lækur (Beinilækur). 6. Blettir. 7. Borgir. 8. Borgaeyrar. 9. Borgar- lækur. 10. Borgarsund. 11. Borgarvatn. 12. Borgir. 13. Brekka (tún). 14. Bruni. 15. Brúnkulækur. 16. Byrgi (rúst). 17. Bæjarhóli. 18. Bæjarlækur. 19. Djúpihvammur. 20. Efra-Beinalækjarhvolf. 21. Efra-Brunakast. 22. Efra-Brunnhús (tún). 23. Efri-Ásendi. 24. Eyri. 25. Fjósflöt. 26. Fjóstunga. 27. Framflatir. 28. Fremra-holt. 29. Fremra-síki. 30. Giljatunga. 31. Grjóthóll. 32. Gvendarsel. 33. Gvendarselseyrar. 34. Gvendarselsflói. 35. Gvendarselshólar. 36. Hamravað. 37. Hádegishóll. 38. Hádegishvolf. 39. Háholt. 40. Háu- steinar. 41. Heimra-holt. 42. Flelluhylur. 43. Heylækjarbakkar. 44. Heylækjartjarnahvolf. 45. Heylækjartjarnir. 46. Heylækur. 47. Hlaðvarpi. 48. Hlíð. 49. Hólar (tún). 50. Hólmar. 51. Hringhóll. 52. Hundaþúfa. 53. Hvanneyrar. 54. Hvítfoss. 55. Hærri-Brún. 56. Kast. 57. Kikagil. 58. Kikagilseyrar. 59. Kikagilshólar. 60. Kikagils- krókur. 61. Kikagilsklettar. 62. Kikasel. 63. Kirkjufell. 64. Klauf. 65. Kvíar. 66. Langaflöt. 67. Langalág. 68. Langaholt. 69. Laxá. 70. Litli-stekkur. 71. Lækjarbakki (tún). 72. Lækir. 73. Móholt. 74. Nautamýrarbakkar. 7. Nautamýri. 76. Nátthagi. 77. Náttmálahóll. 78. Neðra Brunakast. 79. Neðra Brunnhús (tún). 80. Neðrasíki. 81. Neðri Ásendi. 82. Neðri Brún. 83. Niðurtún. 84. Oddssteinn. 85. Rauðilækur. 86. Rauðssund. 87. Selgil. 88. Selgilsbrún. 89. Selgils- hvolf. 90. Selgilsklettar. 91. Selgilsstekkur. 92. Selhöfðalækur. 93. Selhöfði. 94. Síki. 95. Sjónarhóll. 96. Skeggjagil. 97. Skeggjagilskrók- ur. 98. Smiðjurúst. 99. Sólheimafoss. 100. Stekkur. 101. Stórhóll. 102. Stórhóll efri. 103. Strýtur. 104. Svartfoss. 105. Tjaldhóll. 106. Tunga (tún). 107. Upptún. 108. Urðarholt. 109. Urðarhóll. 110. Vaðið. 111. Varða. 112. Veita (við tún). 113. Votahvammsbarð. 114. Votihvammur. 115. Þorsteinsvarða. Þokn-villa á Hágangaheiði Framhald af bls. 48. -------------------------- að við sáum fyrir honum, yfirgáfum við gilið og tók- um stefnu á Llróaldsstaði, sem þá var orðinn stuttur spölur, en olckur fannst þá vera alllöng leið. Að-Hró- aldsstöðum komum við klukkan um hálf tvö, eftir mið- nætti, og höfðum þá verið á nær stanzlausri göngu rúmlega 18 klukkustundir. Getur hver sem er getið nærri, hversu fegin við vorum að mega nema staðar til hvíldar. Á Hróaldsstöðum var, eins og að líkum lætur, fóllt allt gengið til náða fyrir nokkru, en það kom fljótt á fætur og vann okkur hinn bezta beina og góðar hvílur. Morguninn eftir, þegar fólk kom á fætur, var komin norðan stórhríð svo varla sá til húsa á túninu, og nokk- urt frost. Hefðum við þá enn verið í villu uppi á heiði, er ekki líklegt að við hefðum sagt frá tíðindum. Saga oltkar hefði orðið þar öll. Við dáðumst mest að þrekí konunnar, móðursystur minnar, að þreyta þessa göngu, óvön öllu slíku, og verða okkur karlmönnunum ekkl til neins teljandi trafala. Þótt veðrið væri vont lögðum við frá Hróaldsstöð- um eftir hádegið og náðum í Vopnafjarðarkaupstað fyrir kvöldið, enda um byggða sveit að fara. Eftir nokkra dvöl hjá vandamönnum og vinum vár haldið heimleiðis, en þá var farin Sandvíkurheiði. Heima er bezt 55

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.