Heima er bezt - 01.02.1960, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.02.1960, Blaðsíða 30
að vatna lömbunum og gengur nú út úr kofanum. Nú verður hún að fara heim inn í baðstofu og vita um líð- an föður síns, sem er ósjálfbjarga í rúminu, hvað sem öðru líður. Hún gengur síðan hægt inn í baðstofuna. Jón er feginn komu dóttur sinnar, en honum er þegar ljóst, að hún er miður sín af skelfingu, og segir þýðlega. — Sástu móður þína, Lilja? — Já, hún reið út veg, veiztu hvert hún ætlaði? — Nei, en hún er víst að leita sér að vetrarmanni. — Mér virtist hún ekki vel ánægð eftir fjárhússförina áðan. — Ég á víst sök á því. Það er tilgangslaust að leyna því lengur, að ég er heitbundin Jónatani í Vesturhlíð. Það verður að ráðast, hvernig þið snúizt gegn okkur. — Ég læt það afskiptalaust, þú ert sjálfráð gerða þinna. Jónatan sýndi þann drengskap í vetur, þegar hann bjargaði lífi mínu, sem sigrað hefur allt hatur í brjósti mínu. En ég er hræddur um, að móðir þín reyn- ist ykkur erfið í skauti. — En þú ert þá ekki á móti okkur Jónatan lengur, pabbi! — Nei, góða mín. Ég skal láta ykkar einkamál af- skiptalaus. Lilja gengur að rúmi föður síns og tekur um hönd hans. — Ég þakka þér fyrir, pabbi minn, segir hún lágt og innilega. Jón þrýstir hönd dóttur sinnar hlýtt og segir: — Mér er ekkert að þakka, barnið mitt, það verða sjálfsagt nógu margir á móti ykkur, þótt ég gangi þar úr leik. Kvöldið færist yfir. Anna í Austurhlíð ríður í hlað heima á óðali sínu, og með henni roskinn maður utan • VILLI úr sveit, Torfi að nafni. Hann er ráðinn vetrarmaður í Austurhlíð. XVII. Ognir vetrarríkis fara hamförum um sveitina. Dag- arnir eru langir og ömurlegir. Torfi vetrarmaður í Austurhlíð annast öll utanbæjarstörf og leysir þau trú- lega af hendi. En Lilja kemur varla út fyrir bæjardyr. Móðir hennar stjórnar því. Aldrei hefur hún fundið eins átakanlega og nú, hve ófrelsið er sárt og þungbært. Henni líður sannarlega illa, en ekki einungis vegna þvingunar þeirrar, sem móðir hennar beitir hana, held- ur jafnframt af sinni eigin vanheilsu. Hún er orðin svo viðkvæm og veiklynd, að henni liggur oft við gráti, þótt enginn yrði á hana. Henni verður illt af flestri fæðu, sem hún neytir, og hún verður að neyða matn- um ofan í sig til að leyna ólyst sinni, og missir hann oft jafnharðan upp aftur. Þrek hennar lamast, og útlit hennar ber glögg merki sárrar vanheilsu hennar. Anna verður brátt vísari um sjúklegt ástand dóttur sinnar, og rennir strax grun í hina réttu ástæðu fyrir því. En það setur fyrst fyrir alvöru skap hennar úr jafnvægi gagnvart Lilju, og hatur hennar til Jónatans í Vesturhlíð nær hámarki sínu. Það svæfir allar móð- urtilfinningar í brjósti hennar, og hún hefur enga samúð með dóttur sinni. En Lilja þjáist eins og fangi í viðjum haturs og sjúkleika. Veturinn líður, og aftur vorar í bæ og byggð. Nýtt sumar gengur í garð. Torfi vistar sig áfram í Austur- hlíð. Enn er Jón ekki orðinn vinnufær þrátt fyrir mjög bráðan bata. Og Lilja er ekki til erfiðisverka. Hlýtt sumarkvöld er Kristín í Vesturhlíð á heimleið utan úr sveit, en þar hefur hún setið kvenfélagsfund daginn áður og hitt margar vinkonur sínar að máli. Atli bóndi stendur úti á hlaði í Vesturhlíð og tekur hlýlega á móti konu sinni, en Kristín heilsar honum þurrlega. Atli virðir Kristínu fyrir sér, og honum er það ljóst af svip hennar, að nú býr hún yfir einhverju núður góðu, sem þarf að fá útrás. Hann sprettir af hestinum og teymir hann síðan á brott, en Kristín hraðar sér inn í bæinn til sinna starfa. Atli kemur bráðlega aftur frá því að flytja hestinn í haga og mætir Jónatan á hlaðinu. Þeir ganga saman inn í eldhúsið til kvöldverðar. Kristín hefur borið fram matinn fyrir þá feðga, og þeir setjast að snæðingi. Kristín hættir störfum og sezt á móti þeim við borðið, en matarlyst hefur hún enga að þessu sinni. Atli snýr sér að Kristínu og segir glaðlega: — Hvað er að frétta úr þínu ferðalagi, góða mín? — Það er nú sitt af hverju, en ekki allt að sama skapi fagurt. — Nú, og svo sem hvað þá? — Mér þótti sagan ekkert sérlega falleg, sem ég heyrði út á bæjum í dag, en af því að hún snertir okk- ur öll, ætla ég að segja ykkur hana. — Nú, ég fer að verða forvitinn, blessuð Iáttu sög- una koma. Framhald. 66 Heima, er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.