Heima er bezt - 01.02.1962, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.02.1962, Blaðsíða 6
Séð heim að Hallkelshólum. ast grænu skrúði, og enn er Albert það minnisstætt, hve hýrt hin tæra grænka undir heiðbláum vorhimni brosti við honum. Faðir hans hóf verzlun á Laugavegi 12, og þar fékk hann strax margt viðskiptavina. En sonurinn tólf ára var svo sem ekki alveg á því að gerast búðarmaður hjá föður sínum. í sveit, í sveit — á vit blóma og grasa, syngjandi fugla og gróandi ungviðis — allt hið innra með honum gerði þessa kröfu. Og í sveit komst hann. í Auðsholti í Olfusi bjuggu austfirzk hjón, Finnbogi Ólafsson og Ingibjörg Sigurðardóttir, og til þeirra réðst Albert sem vikapiltur, komst þangað um leið og Finnbogi hélt heim, eftir að hafa lagt inn vor- ullina. Albert varð að hverfa til bæjarins þegar barna- skólinn byrjaði, en varla gat heitið, að hann kæmi fyrr en skólabjallan kvað við í fyrsta sinn á haustinu og kallaði börnin til náms. Albert var síðan fjögur sumur í Auðsholti og undi sér þar hverjum deginum betur. Þar voru til ágætir reiðskjótar, og þar lærði hann fyrst að sitja og meta verulega góðan hest, en fátt hefur veitt honum meira yndi um ævina en fjörugur og kostamikill reiðskjóti. Haustið 1915 fór Albert ekki til Reykjavíkur, þá er vist hans í Ölfusinu lauk, heldur norður í land. Þangað voru þá foreldrar hans flutt, því að faðir hans hafði selt verzlun sína og fengið stöðu sem ritari í Lands- bankaútibúinu á Akureyri. Næstu tvö sumur vann AI- bert vegavinnu undir stjórn Páls skálds Árdals, sem þá var að leggja veginn frá Húsavík að Einarsstöðum í Reykjadal, og undi Albert þeirri vinnu allvel. Hann var þó ekki afhuga því að gerast bóndi, og veturna 1915—16 og 1916—17 var hann í Hólaskóla, en vann tvö sumur á búi Hólastaðar hjá skörungnum og fremd- armanninum Sigurði Sigurðssyni, er síðar varð búnað- armálastjóri. Albert hafði hugsað sér að hefja sem fyrst búskap að loknu námi, en þá var hvort tveggja, að jarð- næði var alls ekki falt og að hann brast fé til jarða- kaupa og síðan þeirra umbóta, sem fullnægt gætu þekk- ingu hans og framtíðarhugmyndum um íslenzkan land- búnað. Þá var og heldur ekki störf að fá við búskap, sem gefið gætu ungum og duglegum manni von um að eignast í náinni framtíð nægilegt fé til að geta orðið sjálfstæður framamaður sem bóndi. Svo var það þá, að þegar Albert hafði verið einn vetur fjósamaður í Kaupangi í Eyjafirði, að hann ákvað að fara til Ameríku og freista þar gæfunnar. Hann hafði haldið við kunnáttu sinni í ensku, og enn voru vestra ónumin lönd, sem gefið gætu skilyrði til mynd- arlegs búskapar. 42 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.