Heima er bezt - 01.02.1962, Síða 8

Heima er bezt - 01.02.1962, Síða 8
Féð er viðrað, þegar hœgt er. ið, gerðist hann fljótlega allumsvifamikill um flest það, sem varða mátti hagi manna á félagssvæðinu. Arið 1925 gekkst hann fyrir stofnun sameignarfélags, sem hlaut nafnið Norðri. í þennan tíma var þannig komið bóka- útgáfu á íslandi, að þeir menn, sem þar höfðu látið að sér kveða undanfarna áratugi, voru ýmist látnir, hættir útgáfustarfsemi eða höfðu dregið svo mjög úr henni, að þeir gáfu aðeins út bók og bók á nokkurra ára fresti. Þess vegna var mjög erfitt að koma út bókum, jafnt þýddum sem frumsömdum, og flest hin yngstu skáld og rithöfundar höfðu orðið að grípa til þess úrræðis að kosta sjálfir útgáfu bóka sinna. Það mun hafa verið ætlun Vilhjálms Þór, að Norðri bætti þarna úr skák og stuðlaði um leið að því að auka atvinnu við prent- verk og bókagerð nyrðra. En Norðri gaf aðeins út fáar bækur næstu árin, og mun það hafa valdið, að annar aðili, búsettur á Akureyri, bætti þarna úr brýnustu þörf. Það var Þorsteinn M. Jónsson, sem um skeið var sá bókaútgefandi hér á landi, sem mest kvað að, kunni lag á hvoru tveggja: að gera svo við þá höfunda, sem hann samdi við um útgáfu, að þeir yndu sæmilega sín- um hlut, og að hagnast á útgáfunni í heild. Þá er út voru komnar fyrstu bækurnar á vegum Norðra, fór Vilhjálmur Þór fram á það við Albert, mág sinn, að hann gerðist sölustjóri félagsins í Reykja- vík. Albert var engan veginn hrifinn af að taka þetta að sér, en honum þótti hins vegar ekki hæfa að neita beiðni Vilhjálms, sem hann mat mikils sakir hug- kvæmni, framtaks, áhuga og dugnaðar. Og brátt kom annað til: Albert hafði ekki enn gefizt kostur á að stofna til búskapar að sínu skapi, en hugur hans dvaldi oft við íslenzkt sveitalíf, eins og hann hafði kynnzt því í bernsku, og honum hafði með aldrinum orðið það betur og betur Ijóst, hve margt var merkilegt og sér- stætt við þá atvinnu- og lífshætti, sem hörð lífsbarátta og vöntun flestra þæginda hafði mótað. En af öllu því, er einkenndi sveitalífið, var Albert hugstæðast og kær- ast hið nána og viðkvæma samband mannanna við hús- dýrin — og þá ekki sízt hestinn. Albert hafði svo gert sér grein fyrir því, að á timum mikilla og sívaxandi breytinga bæri til þess brýna nauðsyn að semja rit, er varðveittu sem allra flest af þjóðlegum fróðleik, og nú vaknaði hjá honum sú hugsun, að tengsli hans við Norðra kynnu að veita honum tækifæri til að stuðla að því, að slík rit mættu verða samin og þeim komið fyrir sjónir almennings. Þegar styrjöldin skall á og verðlag hækkaði á afurð- um landsmanna, vinna jókst og innflutningur minnkaði á ýmsu því, sem áður hafði verið notað til gjafa, juk- ust skilyrði til bókaútgáfu hér á landi, enda færðist hún mjög í aukana. Og nú þótti Albert tími til kominn að hefjast handa um það, sem honum var hugleikið. Hann hafði lengi haft hug á, að lýst yrði hlutverki og starfi íslenzkra landpósta. Þeir höfðu um langan aldur farið um landið á öllum tímum árs og margir hverjir ekki vílað fyrir sér að halda áfram ferð sinni, hvernig sem viðraði. Þeir höfðu notið kosta íslenzka hestsins á ferð- um sínum, jafnt á vetri sem sumri, en stundum höfðu 44 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.