Heima er bezt - 01.02.1962, Side 16

Heima er bezt - 01.02.1962, Side 16
Lárus Björnsson í Grímstungu. Einn fjárríkasti bóndi á Norð- urlandi og landskunnur fyrir gangnaferðir, þá oft einsamall um hávetur og sama hversu viðrar. hafa komið út í öllu verri þorraveður, og sérstaklega kvað hann sér minnistæðan einn gangnamanna, sem var með alskegg. Safnaðist snjór í skegg hans, sem síðan fraus og varð að samfelldum klakastump. Náði klakinn alla leið á háls niður og þiðnaði ekki alla nóttina, og ekki fyrr en daginn eftir, að veður batnaði. í þetta sinn varð að fresta réttum um einn dag. Undirfellsrétt frestað. í annað skipti hefur Undirfellsrétt verið frestað. Það var haustið 1934. Féð komst til réttarinnar á tilskildum degi, en sjálfan réttardaginn brazt á norðan krapaveð- ur svo mikið, að ekki þótti viðlit að reyna réttarhald, enda stóð féð fast í almenningnum í aurleðju. Þennan dag varð átakanlegt slys, það eina, sem orðið hefur í manna minnum í sambandi við réttir og göng- ur Vatnsdælinga, og skal nú nokkru nánar greint frá Því- Samkvæmt gamalli venju sendu Vatnsdælir tvo menn haust hvert í Auðkúlurétt, sem var haldin degi fyrr en Undirfellsrétt. Bar mönnum þessum að sækja stóð Vatnsdæla, sem til Auðkúluréttar kom, og reka síðan til Undirfellsréttar daginn eftir. Var yfir Vatnsdals- fjall að fara, og lá leiðin niður hjá Marðarnúpi. Það var stutt leið og auðfarin í góðu veðri, en uppi á fjallinu er flatneskja að mestu, lítið um kennileiti og getur verið vandratað í þoku eða dimmviðri. Yfir fjallið sjálft mun vera um 3ja klukkustunda ferð. Tveir sendir. Haustið 1934 voru af hálfu Vatnsdæla valdir til þess- arar farar þeir Guðmundur Magnússon bóndi í Sunnu- hlíð, en það er næst innsti bær í Vatnsdal. Guðmundur var kominn eitthvað á sjötugsaldur, en þaulvanur fjalla- og gangnamaður, grenjaskytta góð og hafði löngum lagt leið sína á heiðar og fjöll í ýmsum veðrum og við misjafnan útbúnað. Hann var foringi þessarar farar. Með honum var sendur tólf ára drengur, sonur Stein- gríms bónda í Hvammi, Ingvar að nafni. Ingvar litli var að sjálfsögðu óreyndur með öllu og hafði hvorki verið sendur í erfiðar fjallaferðir né lent í stórræðum um ævina. Það skal strax tekið fram, að Ingvar litli var í hlýj- um og góðum fatnaði, meðal annars í tveimur ullar- nærskyrtum og allur annar fatnaður hans úr ull, að undantekinni milliskyrtu, sem var úr lérefti. Á fótum sér hafði hann sauðskinnsskó innan undir stígvélum, en hlífðarföt eða vatnsflík hafði hann enga. Guðmundur hafði heldur ekki hlífðarföt í þessari ógæfuför. Ekki segir af för þeirra félaga til Auðkúluréttar né réttarhaldi þar, annað en það að fátt var af vatnsdælsku stóði í réttinni, aðeins þrjú tryppi. Hugðu þeir félagar Agust Jónsson, bóndi á Hofi. Hann hefur um áratuga skeið verið gangnaforingi Vatnsdeela og reynzt i því starfi hinn traustasti i hvivetna. 52 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.