Heima er bezt - 01.02.1962, Page 18

Heima er bezt - 01.02.1962, Page 18
Vatnsdalsrétt. Horft suður Vatnsdal. af réttri leið í dimmviðri. Ákvað Guðmundur því að snúa til baka, norður Sauðadal og ætlaði að freista þess að ná niður að Stóru-Giljá, enda þótt það væri miklu lengri leið. Kvaðst hann mundu rata niður með Sauða- dalsánni, en hún heitir Giljá þegar nær dregur byggð. Enn er haldið áfram um stund. Veðrið helzt hið sama og á skammri stund hefur kyngt niður svo miklum snjó að kafófærð er komin. Tekur Guðmundur þá til bragðs að skilja tryppin eftir, því þau voru latræk orð- in í ófærðinni og veðurofsanum. Halda þeir tveir einir úr því niður með ánni, annar einhesta, hinn með tvo til reiðar. Um það bil sem áin brýzt fram úr dalþrönginni fell- ur hún í gljúfri nokkru og myndar gljúfrið þar hálf- hring. Guðmundur var ekki nógu kunnugur til þess að átta sig á þessum kenjum árinnar, en fann að um leið og áin beygði, að veðurstaðan breyttist. Hélt Guð- mundur þá að þeir væru villtir orðnir að nýju, fór af hestbaki og ákvað að kanna hvernig áin rynni. Guðmundur veikist. Þegar Guðmundur kom úr þeim leiðangri ætlaði hann að stíga á hestbak, en þá brá svo undarlega við að hann hafði ekki mátt til þess. Ingvar reyndi þá að koma honum til hjálpar, en það var sama hvernig hann reyndi — allar tilraunir til þess að koma Guðmundi á bak reyndust árangurslausar. Þegar svo var komið og Guðmundur sýnilega fár- sjúkur af heiftarlegri lungnabólgu, ákvað hann að láta fyrirberast þar sem þeir voru komnir. Var þá dimmt orðið af nótt. í gilbrúninni hafði skeflt, þannig að þar var kominn alldjúpur skafl og ákvað Guðmundur að í þennan skafl skyldu þeir grafa sig. Báðir voru þeir félagar þá holdvotir sem áður og gátu ekki annars vænzt en kaldsamrar nætur í heimi snævarins. — Guðmundur var þá helsjúkur orðinn en bar sig karlmannlega sem hans var von, enda mun hann ekki hafa viljað draga kjark úr ungmenni því sem hon- um var léð til fylgdar og ásjár hans heitið. Ingvar var örþreyttur orðinn og sofnaði fljótt en vaknaði brátt aftur vegna kuldans í skaflinum og yrti þá á Guðmund. Guðmundur var vakandi og svaraði drengnum. Svo leið fram eftir nóttu. Þannig leið fram eftir nóttu. Ingvar sofnaði öðru hvoru, en vaknaði þess á milli og talaði þá við Guð- mund. Guðmundur svaraði lengi vel öllum fyrirspurn- um Ingvars litla, en allt í einu fannst drengnum Guð- mundur svara sér út í hött. Fór Guðmundur þá að tala um heimili sitt, fannst sem hann væri kominn þangað heim til konu og barna og var utan allrar vitundar um dvöl sína í köldum snjóskafli í gljúfri Sauðadalsár. 54 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.