Heima er bezt - 01.02.1962, Qupperneq 24

Heima er bezt - 01.02.1962, Qupperneq 24
Óttarsdóttir sat upp í brekkuna frá og konur hjá henni. Ingólfur var að leiknum, og fló knötturinn upp þangað. \ algerður tók knöttinn og lét hann koma undir skikkju sína og bað þann sækja, er kastað hafði. Ingólfur hafði kastað. Hann bað þá leika, en hann settist niður hjá Valgerði og talaði við hana allan þann dag. Ekki er sagan margorð, en vel lýsir hún því sem þarna gerist. Valgerður er sem allar hinar hrifin af Ingólfi og hún eygir þarna tækifæri til að vekja at- hygli Ingólfs á sér. Sjaldan þarf að kenna konum ráð, ef þeim geðjast vel að einhverjum manni. Seinna í sögunni segir: „Síðan vandi Ingólfur kom- ur sínar í Grímstungu til tals við Valgerði.“ Ut af þessum „viðtölumíl urðu deilur og átök milli sveitarhöfðingja, er voru ættmenn beggja, en Valgerður hafði haft sitt mál fram að fá Ingólf hinn fagra að einkavin. Knötturinn, sem fló að fótum hennar, gaf henni gullið tækifæri. Ég sagði í upphafi að bezt myndi ég Vatnsdalinn og fegurð hans eins og hann kom mér fyrir sjónir í fyrsta skipti, en í tvö önnur skipti síðar man ég þó dalinn vel. I annað skiptið var það að haustlagi í björtu og fögru veðri. Ég kom í Vatnsdalinn snemma morguns daginn sem stóðréttin skyldi vera. Er mér það ógleymanlegt, er verið var að reka stóðið að réttinni. Mörg hundruð Landnámsjörðin Hof í Vatnsdal. hrossa voru á víð og dreif um dalinn aðallega á bökk- unum niður við ána. Nú kom hreyfing á stóðið. Fjöldi ríðandi manna á háreistum gæðingum þeysti í kringum stóðið og keyrði það saman á leið til réttarinnar. Stóð- ið var óþjált í rekstri og spretthart, ef eitthvert tripp- ið sa sér færi á að sleppa út úr hópnum. En réttamenn- irnir eru ekkert lamb að leika sér við. Þessi fríði hópur verður að lata að vilja þeirra og eftir lítinn tíma er allt stóðið innilokað í réttinni og réttamenn farnir að draga í dilka eftir mörkum, lit og auðkennum. Hinu frjálsa fjallalífi stóðsins er lokið á þessu hausti. I hitt skiptið var ég á ferð í Vatnsdal á fögrum ágústdegi með glöðu samferðafólki í stórum langferða- bíl. Þetta var um verzlunarmannahelgina og inni í Ás- brekku var skemmtisamkoma. Við í langferðabílnum ókum þangað inn eftir til að njóta fegurðar dalsins og útsýnis frá Ási. Ferðaáætlun okkar var þannig að við máttum ekki dvelja þarna lengi og ókum því aftur nið- ur dalinn í þann mund er hátíðagestir voru að streyma að neðan dalinn. Þetta var sumarið 1937, og var þá enn þá í tízku að koma ríðandi á mannamót í sveitum. Vart getur fegurri sjón en þá, að sjá vel búið æskufólk á fótfráum, háreistum gæðingum þeysa eftir mjúkum moldargötum meðfram hlíðum í fögrum fjalladal. Einar Benediktsson lýsir þessu vel í hinu gullfagra kvæði sínu Fákar. Hann segir svo: „Menn og hestar á hásumardegi í hóp á þráðbeinum, skínandi vegi, með nesti við bogann og bikar með. Betra á dauðlegi heimurinn eigi.“ Mér er enn glöggt í minni þetta fagra miðsumars- kvöld, er við ókum niður Vatnsdalinn, hægt og rólega, móti ríðandi, lífsglöðu fólki, sem var á leið upp dalinn. Út um opnar bílrúðurnar var veifað og kallað og vel undir gleðihrópin tekið af reiðfólkinu. Veit ég það, að margir í bílnum hefðu viljað skipta á mjúku sæti í bíln- um og bráðvökrum eða töltgengum, háreistum gæð- ingi. Ekki veit ég hvort það er rétt hjá mér, en ekki man ég eftir því, að ég hafi nokkurn tíma séð á sama kvöldi jafnmargar fallegar stúlkur á fríðum fáki, og þetta sumarkvöld í Vatnsdalnum. Vafalaust hefur eitt- hvað af þessum fríðu sveinum og fögru meyjum átt í forfeðratali sínu Ingólf hinn fagra, sonarson goðans göfuga á Hofi í Vatnsdal. Stefán Jónsson. KOSTAKJÖR Ársritið „Hlín“ hefur á boðstólum eldri árganga með gjafverði. Kassi, sem hefur inni að halda 8 (átta) minni kassa með 13 (þrettán) árgöngum hver, selst fyrir kr. 150.00, sendir hvert á land sem er að kostnaðarlausu. Gerið svo vel að senda pantanir annað hvort til rit- stjórans, Halldóru Bjarnadóttur, Blönduósi, eða í Prent- verk Odds Björnssonar h.f., Hafnarstræti 88, Akureyri. 60 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.