Heima er bezt - 01.02.1962, Page 33

Heima er bezt - 01.02.1962, Page 33
HEIMA_______________ BEZT BÓKAH 1 LLAN Arthur Hailey: Hinzta sjúkdómsgreiningin. Hersteinn Pálsson þýddi. Akureyri 1961. Bókaforlag O. Bj. I.æknabækur hafa nú um skeið verið vinsa-1 lesning, enda hefur mörgum rithöfundi tekizt þar að opna sýn inn í heima mann- lífsins skýrar og eftirminnilegar en almennt gerist. Það er eins og baráttan milli lífs og dauða innan sjúkrahúsveggjanna geri menn næmari og sú unigerð söguefnis létti höfundunum að ná til hjartna lesendanna. Hinzta sjúkdómsgreiningin er i röð hinna fremstu sagna í þessari grein, enda hefur hún hlotið geysivin- sældir erlendis. Það, sem gerir hana svo vænlega til lestrar, eru hin fjölþættu viðfangsefni hennar, og hversu kunnáttusamlega þau eru leidd fram á sjónarsviðið. Hún fjallar ekki einungis urn hið daglega líf og starf innan sjúkrahúsveggjanna með sigrum þeirra og ósigrum, heldur eru það einnig hin persónulegu við- fangsefni sögufólksins, sent skapa spennuna. Eftirminnilegust verður þó barátta læknanna tveggja, eða nýja tímans og hins gamla. Og lokaorð gamla læknisins, þegar hann hefur loks beygt sig fyrir ósigri sínum og kveður eftirmann sinn, er hinn eilífi sannleikur og síendurtekna harmsaga alls þorra manna í bar- áttunni við lífið og tímann. í stuttu máli sagt: skemmtileg saga og lærdómsrík. Mika Valtari: Förusveinninn. Björn O. Bjömsson þýddi. Akureyri 1961. Bókaforlag Odds Bjömssonar. Þetta er fyrra bindi hinnar miklu skáldsögu Mikael Hakim. Gerist hún á miðöldum, og er sögusviðið einkuin Algeirsborg og Mikligarður. Kennir þar margra grasa og lesandinn er leiddur inn í marga furðuheima, allt frá galeiðum sjóræningja og til kvennabúrs soldánsins í Miklagarði. Þekking höfundar á mið- öldum, menningu þeirra og sögu, er víðfræg, og út af fyrir sig gefur hún sögum hans gildi, en þar við bætast svo miklir við- burðir, oft ótrúlegir en alltaf spennandi, svo að lesandinn verður milli vonar og ótta. Þeir, sem unna litauðgum frásögnum, munu njóta þessarar bókar, þótt stundum séu þær nokkuð hroðalegar, eins og lífið sjálft var á þeim umbrotatímum, sem hún segir frá. Guðrún P. Helgadóttir: Skáldkonur fyrri alda. Akureyri 1961. Kvöldvökuútgáfan. Hann er ekki lítill hluturinn, sem konur hafa lagt til íslenzkrar menningar á liðnum öldum, þótt oft hafi verið furðuhljótt um hann. Enginn fær sagt um, hversu mikinn þátt konur hafa átt f því, að varðveita íslenzka sagnalist og geyma forn fræði, en vist er um það, að hann er stór. Það er því þarft verk og skylt, að draga fram í dagsljósið skáldkonur liðins tíma og kynna þær al- þjóð. I þessu bindi er rætt um skáldkonur fornaldar og fram undir siðaskipti. En í raun rétri er komið miklu víðar við en skáldkon- urnar einar. Nær sanni er að segja, að ritið fjalli um menntakonur þessara alda. Höfundur leiðir lesandann inn í dyngjur fyrirkvenna, baðstofur alþýðukvenna og í klausturklefa og málstofur á nunnu- klaustrunum tveimur og í kofa einsetukvenna, sem helguðu líf sitt helgum fræðum og lærdómi. En bakgrunnurinn er kvenþjóðin öll, ljóðclsk og listhneigð, unnandi sögum og kvæðunt, án stétta- munar eða stöðu. Frásögnin er skýr og listræn og fellur vel að efn- inu, sem í senn er fróðlegt og hugðnæmt. Frágangur bókarinnar er með ágætum. Og ég hlakka til að lesa framhaldið, þegar nær dreg- ur nútímanum. Kristmundur Bjamason: Þorsteinn á Skipalóni. Akureyri 1961. Menningarsjóður. Einn af merkilegustu mönnum norðanlands og þótt víðar sé leitað á 19. öld var Þorsteinn Daníelsson á Skipalóni, forystumaður í sjávarútvegi, búskap, skipa- og húsasmíði, og þar að auki svo sérkennilegur persónuleiki, að fáir munu hafa verið honum líkir. Yfir minningu hans var mjög tekið að fymast og fáum ljóst, hví- líkt átak hann hafði gert á sinni tíð til viðreisnar íslenzkum at- vinnuvegum. En nú hefur Kristmundur Bjarnason gert minningu hans verðug skil með tveggja binda riti, er Menningarsjóður gefur út í félagi við Landssamband iðnaðarmanna. Er útgáfan vönduð og efninu samboðin. En höfundur gerir meira en rekja lífssögu Danielsens. 1 fyrsta hluta bókarinnar er lýst atvinnuháttum, menningu og hag fólksins við Eyjafjörð og raunar víðar komið við á seinna hluta 18. aldar og i byrjun þeirrar 19., og svo er það raunar alla bókina út, að hún er öðrum þræði atvinnu- og menn- ingarsaga héraðsins. Er þar viðað að geysimiklu og margvíslegu efni, og liggur þar feiknavinna að baki, og margt er dregið fram í dagsljósið, sem Iítt hefur verið kunnugt áður. Er þar dregin upp merkileg mynd af menningarlífi við Eyjafjörð í byrjun 19. aldar og raunar sýnt fram á með óbrigðulum rökum, að þar var þá ó- venjulegt mannval, einkum í Hörgár og Öxnadal. Hefur slíku verið lítt á loft haldið fyrr, og megum vér Eyfirðingar vera höf- undi þakklátir fyrir, svo og allt það sæmdartak, sem hann hefur tekið sögu héraðsins. Þá er getið ættar og forfeðra Danielsens og konu hans, og fær lesandinn þar glöggva sýn yfir af hvaða meiði þessi kynjakvistur var sprottinn. Mest og bezt er þó lífssaga Dani- elsens sjálfs og þeirra hjóna beggja. Hún er rituð af næmum skiln- ingi á skaphöfn og viðhorfum söguhetjunnar og því umhverfi, er hann lifði f. Höfundur ber þá virðingu og þann hlýhug til sögu- hetju sinnar, sem nauðsynlegt er, til að gera góða ævisögu, sem sé meira en kaldhamraðar staðreyndir, en lætur þó hvergi blindast af ofmati á persónum sínum. Hann sér galla Danielsens ekki síður en kostina, margþætta skaphöfn hans, hugsjónagnótt, atbafnasemi, höfðingsskap og góðvild annars vegar en á hinn bóginn oft ósann- girni, ofsa og sntámunasemi. Hefur Kristmundi tekizt með ágætum að kynna þennan merkilega mann, svo að báðir vaxa af, söguhetj- an og sagnaritarinn. Hefur Kristtnundur með ritinu haslað sér völl meðal fremstu ævisagnaritara landsins, og munu menn fagna hverju verki, sem frá honum kemur í þeim efnum, ef svo vel verð- ur á haldið. Örfáar misfellur mætti þó be'nda á. Endurtekninga verður vart, og betur hefði mátt draga saman efni almennu sög- unnar. Á bls. 212 í lýsingu Lónsstofu er vísað til teikningar, sem ekki er í bókinni, á bls. 189 stendur Möðruvallahrísla í stað Möðru- fellshrísla. Þá hefur vísan alkunna „Þelamörk og Þjófahlíð'' venju- lega verið eignuð Látra-Björgu, enda er hún í fullu samræmi við héraðavísur hennar. Myndaval hefði mátt vera betra. — En allt þetta eru smámunir, sem hverfa gjörsatnlega fyrir kostum bókar- innar. St. Std. Hcima er bezt 09

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.