Heima er bezt - 01.02.1962, Síða 34
Barnagetraun
Jæja, krakkar mínir. Nú er Villi aftur kominn á stúf-
ana með nýja verðlaunagetraun handa ykkur, og að
'þessu sinni er getraunin eingöngu ætluð fyrir ykkur,
yngri lesendur „Heima er bezt“. Fyrstu verðlaun í þess-
ari skemmtilegu getraun eru öll sex bindi af Þjóðsög-
um Jóns Árnasonar og sá sem verður svo heppinn að
hreppa verðlaunin hefur eignazt heila nántu af þjóðleg-
um fróðleik og skemmtilegu lesefni. í þessu vinsæla
þjóðsagnasafni eru ótal ævintýr, draugasögur, huldu-
fólkssögur, útilegumannasögur, galdrasögur og galdra-
rúnir, svo nokkuð sé nefnt, og ef vel ætti að vera,
þyrftu þjóðsögurnar að vera tiltækar á hverju íslenzku
heimili.
Verðmæti þessara glæsilegu 1. verðlauna er kr.
1980.00. Þá verða auk þess veitt 10 aukaverðlaun, og
eru það allt úrvals barna- og unglingabækur.
Hér að neðan sjáið þið hann Villa, kunningja ykkar,
sem er nú heldur en ekki hróðugur með sig, því nú er
hann búinn að læra fjögur kvæði utanbókar, sem hann
heldur að þið kunnið ekki. Á stóra spjaldinu sem Villi
stendur hjá er letruð ein vísa úr hverju þessara fjögurra
kvæða, og nú skuluð þið sýna Villa að þið eruð engir
eftirbátar hans, með því að segja til um eftir hvaða
höfunda vísurnar eru og úr hvaða kvæðum þær eru
teknar. Villi er að rembast við að læra fleiri kvæði, og
í næsta blaði verða birtar nokkrar vísur til viðbótar,
en þar með lýkur getrauninni að þessu sinni. Við segj-
um ykkur nánar í næsta blaði hvernig þið eigið að
senda svörin.