Heima er bezt - 01.07.1962, Side 4
GISLI JONSSON:
Valinn maáur
í nverju rúmi
Spjallað við Jón Benediktsson prent-
ara eftir 50 ára starf í P.O.B.
ér hefur verið sýndur ýmiss sómi á starfsaf-
mælinu, og þarna sé ég gullúrið frá Prentverk-
inu.
— Já, ég fékk fyrst tvo dýrgripi, svissneskt
gull og íslenzkt þjóðarstál, og á ég þar við afmælisljóð
Jakobs Ó. Péturssonar, það er bráðsnjallt, svo fékk ég
hið litríka og meitlaða mál skáldsins frá Djúpalæk og
myndina ágætu frá Sveini Björnssyni listmálara. Það
er hneyksli, að sá maður skuli aldrei hafa komizt á lista-
mannalaun. Þar að auki hef ég fengið blóm og skeyti,
traust handtök og hlýjar hugsanir. Og nú hefði verið
gaman, Gísli minn, að bregða sér til Ameríku og vinna
þar næstu fimmtíu árin. Til Kaliforníu, ha!
— Og því þá þangað?
— Er ekki ákaflega heitt og gott þar, og þykir mönn-
um ekki gott að vera þar? Annars er ég bara að-gera
að gamni mínu við þig. Ég gæti ekki hugsað mér að
eiga heima og starfa annars staðar en á lslandi, og ekki
vil ég skipta um húsbændur.
— Svo að við víkjum þá að ætt þinni og uppruna?
224 Heima er bezt
— Ég er fæddur í Hjaltadal í Illugastaðasókn í
Fnjóskadal, en sá bær er nú í eyði. Móðir mín var Krist-
ín Kristjánsdóttir, og ólst hún upp í Laxárdal í Suður-
Þingeyjarsýslu, en faðir minn hét Benedikt Sigurðsson
frá Draflastöðum í Fnjóskadal, bróðir Helgu, móður
Sigurðar búnaðarmálastjóra, Friðriku á Urðum og þeirra
systkina. Við vorum ung systkinin, innan við fermingu,
er við fluttumst til Akureyrar. Þar ólumst við upp í
iitlum kofa, sem byggður var í landi Sigurðar Sigurðs-
sonar, því að faðir minn kom hingað og var hér á hans
vegum.
— Manstu að segja mér eitthvað frá þessum fyrstu
Akureyrarárum?
— Það væri þá helzt frá konungskomunni 1907. Þá
fór faðir minn með okkur eldri krakkana út í bæinn, en
úti á Oddeyri var samkoman, konungsmóttakan, og í
því sambandi kynntist ég í fyrsta sinn Jakob Kristjáns-
syni, sem síðar varð vinnufélagi minn. Hann tók þátt í
íþróttum, keppti í stangarstökki, og annar úr prent-
smiðjunni, Arngrímur Ólafsson listmálari, feikilega