Heima er bezt - 01.07.1962, Síða 21

Heima er bezt - 01.07.1962, Síða 21
Hér kemur svo að lokum lítið ljóð, sem margir hafa beðið um, en ég hef ekki getað náð til fyrri en nú. Ljóðið heitir Litli vin. Höfundur ljóðsins er Freysteinn Gunnarsson skólastjóri, en margir ágætir söngvarar hafa sungið þetta fagra, ljúfa Ijóð í útvarpið: LITLI VIN Bráðum færast árin yfir mig, einhvern tíma skil ég senn við þig. Mundu þá að rata réttan veg, reyndu að verða betri og meiri en ég. Það er eina óskin mín til þín, að þú hljótir forlög betri en mín. Þótt mér brygðist margt, litli vin, og mistækist flest, litli vin, ég treysti þér bezt til að bæta það allt og bjarga því við, sem er fátækt og valt. Ég bið fyrir þér, litli vin, að blessist þér allt, Htli vin. Þegar ég fer þér frá, þegar annar þig á, viltu minnast mín þá, litli vin? Síðan fyrst ég sá þig, litli vin, sóhn hefur veitt mér fegra skin. auðlegð mín er ástin mín til þín, yndi mitt er bjarta vonin mín, vonin sú, að gæfan gefi þér gleði og lán og allt, sem fegurst er. Þótt mér brygðist margt, litli vin, og mistækist flest, litli vin, ég vil, að þú gleðjist og leikir þér létt og lærir að elska hvað gott er og rétt. Ég bið fyrir þér, HtH vin, að blessist þér allt, litli vin. Þó ég fari þér frá, þegar fölnar mín brá, viltu minnast mín þá, litli vin? Önnur umbeðin ljóð verða að bíða að sinni. Stefán Jónsson, Skeiðarvogi 135. NOKKRAR STÖKUR STAKA Festir snjó á strá og stein, stirðnar móa-beðja, samt er lóa eftir ein ættarslóð að kveðja. TVÆR VÍSUR EFTIR KÁINN (Úr bréfi frá Vestur-íslendingi) Fyrir löngu síðan var kaupmaður á Mountain, sem lét eftirfarandi auglýsingu í blað þar: Sn. G. SÆMUNDUR FRÓÐI Ekkert nema allt hið bezta eg hef til að bjóða þér: Vænar kerrur, valda hesta og veglyndi hjá sjálfum mér. Sæmund fróða muna má mestan lífs í vanda, kölska gamla seggur sá sigldi milli landa. Af Odda klerk var undir kynt, ólgaði strauma flúðin, ég hef heyrt hann hafi synt hraðara en Súðin. Káinn sneri þessu svona: Ekkert nema allt hið versta eg hef til að bjóða þér: Valtar kerrur, viUta hesta og vitleysuna úr sjálfum mér. Prestar núna máske meir mannkyninu fórna, en betur ekki allir þeir andskotanum stjórna. Höf. ókunnur. Þegar Magnús prestur samdi og gaf út skammirnar um Vestur-Islendinga, sem Baldvin svaraði hressilega í Heimskringlu, — kvað Káinn: Jafnan ætíð sannleikur er sagna beztur, en minnstu ei á það, Mangi prestur. Heirna er bezt 241

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.