Heima er bezt - 01.06.1963, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.06.1963, Blaðsíða 11
ur okkar ýmist mélvara eða byggingarefni: þakjárn, timbur og fleira. Það var vöxtur í Hólmsá eftir miklar rigningar, er við fórum vestur yfir hana, og daginn sem við vorum í Vík og um nóttina hafði rignt mikið. Þegar við kom- um austur í Hrífuneshólm — sem Hólmsá dregur nafn af —, þá flæddi áin út yfir aurana og var í foráttuvexti. Tóku menn þá klyfjarnar niður af hestunum, og við Vigfús riðum niður með ánni til að leita að klyfjafæru vaði; samferðarmennirnir urðu eftir hjá hestunum. Við Vigfús reyndum á ótal stöðum. Vigfús reið yfir marga og djúpa ála og alla leið niður þangað sem Hólmsá rennur saman við Ásavatn* og Tungufljót**. Þegar ekki fannst vað á ánni, sem hugsanlegt var að fara með lestirnar yfir, þá fórum við til baka í áttina til samferðarmannanna. Þegar við vorum komnir nærri vestur undir nesið sem skagar lengst í norður, Litlanes nefnt, stanzar Vigfús og horfir stundarkorn út á ána og segir svo: „Hérna er nú brot, en það er tæpt.“ Hestur Vigfúsar hríðskalf af kulda eftir volkið, því að hann hafði haft sig miklu meira í frammi við könnun árinn- ar en ég, en báðir voru hestamir vanir og duglegir. Vig- fús spvr mig þá, hvort ég vilji reyna að ríða þarna upp yfir. Ég var til í það. Svo hagaði þar til rennsli vatnsins, er tók yfir mjög breitt svæði á aurunum, að fyrst var höfuðáll, sýnilega djúpur mjög, en, að Vigfúsi sýndist, reiður; þá virtust taka við grynningar nokkrar, síðan annar höfuðáll, er við þóttumst sjá að vel væri fær, en þó flugvatn. Reið ég svo yfir syðri höfuðálinn, og skall yfir hnakk- inn, og því ekki ldyfjafært. En er ég kom aftur til Vig- fúsar, segir hann: „Þú fórst svolítið skakkt.“ Ég þóttist nokkuð góður að sjá út vötn, en rengdi Vigfús ekki, því að það var vani minn að treysta honum alveg. Ég svaraði því: „Ég skal ríða norður yfir aftur.“ „Það skaltu gera,“ segir Vigfús, „en þú skalt halda meira í strauminn alla leið út í miðjan ál, en þá skaltu slá svo- lítið undan.“ Þetta var mjög breiður og vatnsmikill áll. Þessu hlýddi ég alveg og fékk hvergi dýpra en í kvið á hestinum. Fórum við svo með allar lestimar upp yfir og teymd- um þær sjálfir, því að samferðarmennimir höfðu ekki eins örugga vatnahesta og við. Þegar ég hafði farið sex sinnum yfir þetta mikla vatn og stranga, sá ég loks brotið, sem Vigfús hafði séð og mælt með augunum af eyrinni. Svo glöggan mann á vötn hef ég ekki fyrir fundið annan.“ * Syðsti hluti Eldvatnsins. ** Þær tvær ár heita Flögulón eða Vatnið, eftir að saman eru runnar. ULFUR RAGNARSSON: Sturlunaröld Sé ég þjóð — þúsund vetra gamla í Þjórsá sinna bemsltubreka svamla. Glapsýnn eflist Glæsivallabragur, glaumi blandið hjartakal — er það vor frægðardagur? Afkomendur Sturlunganna staldra stundarkorn á Alþingi — og skvaldra. Böguglaumur, breyttist hann í starf? — Bara að það munist þá, hvað þjóðin tók í arf. Mér virðist næsta neflaus okkar ást, því nú má hvergi rúst í túni sjást, svo víða talin þörf á þúfnabana, að það er næstum ltomið upp í vana, að bylta þessu bara upp á sport. — En bjargfast stendur putalandsins gort. Já, víst er engin Höfn, sem herðir fjötur. En herravald býr nú við Víkur götur og kann á flestum kóngavenjum skil. — Þar kokkteilveigar lífga sálaryl. (En sannar það, að sálarlíf er til?) Efnahagur á ytra borði góður — innra fyrir nærri tæmdur sjóður. Bókaflóðið bara froðumenning. Á ríkisstyrkjum rekin heilög þrenning. Glapsýnn eflist Glæsivallabragur, glaumi blandið hjartakal — vor nýi frægðardagur! En það var fyr á þúsund ára vetri, að Égill vissi íþrótt gulli betri. — Svo trúði þjóð á þessum Ránarslóðum. Rís, heita blóð! , Þinn arfur tæmist óðum. Hrek burt hver svik við eldsins dýra eðli! Er andinn ryk á þúsundkrónaseðli? Heima er bezt 199

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.