Heima er bezt - 01.06.1963, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.06.1963, Blaðsíða 21
Arni Tómasson Jóhanna Jónsdóttir inu. Afi fór til dyra og spurði hann að heiti. „Ég heiti Sölvi.“ „Ekki vænti ég, að þetta sé hann Lyga-Sölvi?“ „Og það trúi ég hann sé nefndur.“ Svo gengu þeir inn til baðstofu og tóku tal saman urn hitt og þetta. Loks segir Sölvi: „Viltu ekki glíma við mig?“ Afi segist ekki vera vanur glímum. Sölvi segir þá: „Viltu koma í krók við mig?“ Þeir fóru í krók, og dró afi hann strax upp. Sölvi varð forviða. „Sterkur maður ertu, svo lítill sem þú ert.“ \ Enn tala þeir um stund, unz Sölvi segir: „Ég hefi heyrt, að þú sért skáld, gerðu nú kvæði um mig.“ Afi gerði þá þetta vers: „Sölvi Helgason málverk myndar meistaralega búin snilld. Heimspekinnnar af lækjum lindar löngum drekkur að sinni vild. Er því lærdómur einatt hans ofvaxinn sonum þessa lands!“ „Vel er kveðið,“ sagði Sölvi, „og hafðu þökk fyrir.“ Um morguninn var Sölva gefið súrt skyr og mjólk. „Máske þér líki nú ekki maturinn,“ sagði amma mín. Þá segir Sölvi: „Hvorki læt koma við tönn eða góm.“ Síðan bjóst hann til ferðar.“ Allir þessir feðgar voru vel skáldmæltir. Kvæðasyrpa eftir Davíð mun vera geymd í Landsbókasafninu. Árið 1878 flytur að Eyri Tómas Guðmundsson, og hélt ætt hans jörðina, þar til í auðn féll 1941. Kona hans var Hólmfríður Jóakimsdóttir frá Kussungsstöðum í Fjörðum. Börn þeirra voru Hólmfríður á Tindriðastöð- um, „Fjarðadrottningin", og Árni, er var síðastur bóndi á Kussungsstöðum og flutti þaðan 1904 alfarinn heim í Eyri. Var þar þá í hálfgerðri auðn, en faðir hans hætti þar búskap 1901. Árni bjó nú á F.yri til 1941, eða alls í 37 ár samfleytt. Þau hjón áttu 12 eða 13 börn, er upp komust, og niðja allmarga, allt hið mannvænlegasta fólk. Árni keypti jörðina með sonum sínum, og er hún nú í eign Hólmgeirs sonar hans í Flatey. Árni á Eyri var sægarpur og víkingur til allrar vinnu á landi og sjó. Löngum sóttu þeir sjó saman frá Naust- eyri Árni og Sigurður Hrólfsson, og ræmdi Grímur frá Jökulsá mjög þrek og traustlyndi Árna. Eyri var aldrei mikil landjörð. Þó hafði Árni gott bú auk sævamota. Enn þá standa fjárhús Árna á Eyri, snilldarlega hlaðin úr grjóti, og munu varla haggast um aldir og bera vott þreki, smekkvísi og snilli hins síð- asta bónda á Eyri. Jarðirnar fimm á Flateyjardal hafa verið í óhvikulli byggð allt frá landnámsöld til vorra daga. Hér eru land- kostir góðir, og sævargagn bæði á fjöru og til aflafanga. Hér voru sterkar ættir staðfastar, og dreifðust þó frá þeim mannvænlegt fólk víða um byggðir. Hingað var oft leitað eftir björg í harðindum, þá er þraut í sveit- um, er eigi höfðu sævargagnið. BRÉFASKIPTI Sigriður Skúladóttir, Sjávarborg, Hvammstanga, V.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 14—16 ára. Sólveig Pálmadóttir, Meleyri, Hvammstanga, V.-Hún., óskar eft- ir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 14—16 ára. Valgarð Kristjánsson, Hlíðarenda, Óslandshlíð, Skagafirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 10—13 ára. Pálmi Stefánsson, Skriðu, Breiðdal, Suður-Múlasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 14—16 ára. Mynd fylgi. Eyþór Einarsson, Ási, Breiðdalsvík, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á áldrinum 14—16 ára. Mynd fylgi. Sncedis Jóhannsdóttir, Eiríksstöðum, Jökuldal, N.-Múl., óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 15—18 ára. Sigvaldi Sigurjónsson, Rútsstöðum, Svínavatnshr., A.-Hún., ósk- ar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 20—30 ára. Hannes Guðmundsson, Auðkúlu, Svínavatnshr., A.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 25—35 ára. Árni Sigurjónsson, Holti, Svinavatnshr., A.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 18—25 ára. Benedikt S. Steingrimsson, Snæringsstöðum, Svínavatnshr., A.- Hún., óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 14—16 ára. Eirikur Grímsson, Ljótshólum, Svínavantshr., A.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 14—16 ára. Lárus Þórðarson, Grund, Svinavatnshr., A.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 15—20 ára. Þorsteinn Þorsteinsson, Geithömrum, Svínavatnshr., A.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 15—18 ára. Gisli Valtýsson, Mosfelli, Svínavatnshr., A.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 15—17 ára. Heima er bezt 209'

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.