Heima er bezt - 01.06.1963, Blaðsíða 14
Klukkulyng.
Krossjurt.
Hámundarlykill, hjartafífill, kornasteinbrjótur, skegg-
burkni og Stefánshveiti. Af þeim má sérstaklega nefna
hjartafífilinn, sem hvergi vex nema í útsveitum báðum
megin Eyjafjarðar. Þá er og klukkulyngið gott dæmi
um tvísvæðaplöntu. Það má kallast algengt í útsveitum
við Eyjafjörð en finnst hvergi annars staðar á landinu
nema lítið eitt í Loðmundarfirði.
Á Vestfjarða- og Breiðafjarðarsvæðunum eru 23 mið-
svæðaplöntur, sem eiga þar aðalheimkynni. Þrjár teg-
undir finnast ekki utan þess svæðis. Af tvísvæðaplönt-
um eru þar merkastar stinnasef og krossjurt. Stinnasef
finnst hvergi á landinu, nema á Ströndum og um mið-
bik Austfjarða, en krossjurtin vex á allmörgum stöðum
í skóglendi í Reykhóla- og Gufudalssveit, við innanvert
ísafjarðardjúp og í Bjarnarfirði og Steingrímsfirði á
Ströndum. Annars vex hún hvergi á landinu nema lítið
eitt austur við Fáskrúðsfjörð. Ef þessi tegund hefði
flutzt sjálfkrafa til landsins, er útbreiðsla hennar furðu-
leg á þessum fremur afskekktu stöðum, og alltaf með
nokkru bili á milli, og furðu mætti gegna, að hún skyldi
þá ekki hafa breiðzt meira út í Vestfjarðakjörrunum.
Hins vegar er hún suðræn tegund, svo að ef hún hefur
lifað af hörkur Isaldar, er trúlegt, að flestar aðrar teg-
undir landsins hefðu verið færar um það.
Austfjarðasvæðið er á marga lund merkilegast hinna
umræddu gróðureyja, enda þótt það séu naumast nema
15 tegundir sem eiga þar aðalheimkynni. Nokkrar mið-
svæðaplöntur Austurlands eru algengar að kalla má um
allt eða mikinn hluta svæðisins ,en finnast vart utan
þess. Mætti þar nefna gullsteinbrjót, klettafrú, Maríu-
vött, sjöstjörnu og bláklukku, en hún finnst allvíða ut-
an Austfjarðasvæðisins, þótt hvergi hafi hún náð slíkri
útbreiðslu sem þar, og vissulega má rekja ýmsa fundar-
staði hennar utan Austurlands til mannaferða.
Eg mun sleppa að ræða hér sérstaklega um jMýrdals-
og Hvalfjarðarsvæðin, en um 15 tegundir eiga aðal-
heimkynni þar. Þess skal þó getið, að dr. Lindroth, sem
fyrr var á minnst, hefur tjáð mér, að hvergi á Islandi
202 Heima er bezt