Heima er bezt - 01.09.1963, Síða 2

Heima er bezt - 01.09.1963, Síða 2
Söfnum liéi Kaflar úr ræðu á aðalfundi Skógræktarfélags íslands. Eigi verður um það deilt, að vér, sem nú erum komn- ir á miðjan aldur eða ívið lengra, höfum lifað stórfelld- ari brcytingar og byltingar í umhverfi voru og öllum heimi en nokkur kynslóð, sem á undan oss hefur lifað. Fyrir það megum vér vissulega vera forsjóninni þakk- lát. Tvær heimsstyrjaldir hafa hrist heiminn og skekið, stórveldi hrunið í rústir og önnur risið á legg, og vér höfum verið vitni að því, hvernig manninum hefur lærzt að beizla náttúruöflin allt frá því að gera bunu í bæjarlækinn til þess, að eiga nú ráð á sjálfri kjarnork- unni, sem í senn vekur aðdáun vora og ugg. Það sem oss þóttu svo fjarstæð ævintýri í bernsku vorri, að vér þorðum ekki einu sinni að láta oss dreyma um þau, eru nú sjálfsagðir hlutir hins daglega lífs. Það er sennilegra, að vér nú einhvern daginn fljúgum til tunglsins, en það hefði þótt fyrir 40—50 árum að vér myndum fljúga þrisvar á dag milli Akureyrar og Reykjavíkur. Þjóð- lífi voru hefur verið kippt á fáum áratugum frá þús- und ára kyrrstöðu miðaldar, yfir í iðandi líf samtíðar vorrar á bekk með hverri framfaraþjóð sem vera skal. Byltingar geta orðið með ýmsu móti. Stundum koma þær eins og stormsveipur, sem sópar öllu burt og slcil- ur eftir hreint borð að kalla má. Allt hið gamla er á brott, en reisa verður á nýjum grunni, allt sem koma skal. En byltingar geta einnig farið hægt. Smám sam- an vex hið nýja upp í skjóli hins gamla, er þróazt hafði um aldaraðir, sækir í það þann lífsþrótt, sem það hafði enn að geyma, en þokar því brott um síðir. Þá hefur nýr heimur vaxið upp í skjóli hins gamla án þess nokk- ur Ragnarök hafi á undan farið. Og meðan öll þau stórtíðindi, er ég drap á, voru að gerast, hefur farið fram önnur bylting hér á landi, hæg- fara að vísu, og ef til vill hafa ekld enn, nema tiltölu- lega fáir menn gert sér ljóst, að hér var um byltingu að ræða. Upp úr aldamótunum síðustu var nokkrum fræjum erlendra trjáa sáð í íslenzka moldu í fyrsta sinn. Upp af þeim hafa síðan hægt og hægt vaxið hávaxin tré, sem standa nú með stoltum svip og segja sínu hljóðláta máli: „Hér eigum vér heima í krafti nýs landnáms.“ Og skógræktarmenn landsins hafa dregið af þessu rétta lærdóma og hafizt handa um stórfelldari innflutning trjáa og ræktun nýrra skóga, sem skapa byltingu í rækt- un og svip landsins. íslenzk skógrækt er barn þessarar aldar. Vorhugur nýrrar aldar skapaði hrifningu í hjörtunum, og einn þáttur hennar var sá, að klæða landið skógi. Að vísu gerðu menn sér ekki hærri vonir en þær, að endurvekja birkiskógana, vernda þá, þar sem þeir voru fyrir, og græða nýja ef kostur væri. Fyrsta aldan reis meir í skjóli rómantíkur og hugsjóna en á raunsæjum grunni, hvað unnt væri að gera. Margir gerðu sér þá þegar Ijóst að birkikjarrið var ein tryggasta vörnin, sem landið átti gegn eyðingu og uppblæstri, og vildu því leggja sem mest kapp á verndun þess góðu heilli. En allt um það eru enn í voru landi svo glámskyggnir menn, að þessi augljósu sannindi dyljast þeim, enda þótt vér á ári hverju sjáum jarðveginn fjúka og fljóta undan fótum vorum og vitum, að verði ekki rækilega spyrnt við fót- um, munum vér áður en varir standa á örfoka melum og vindsorfnum klöppum. Islenzk þjóð hefur búið við margvíslegan skort um þúsund ár. Eitt af því var timburskorturinn. Svo var hann oft átakanlegur, að þegar reisa þurfti ný hús, var tóttin mjókkuð, til þess að hægt væri að nota gömlu raftana, þegar fúinn hafði verið sniðinn af endunum. Fyrir nokkru síðan tóku íslenzkir skógræktarmenn þá stefnu, að flytja skógræktina af hinu sviflétta sviði hug- sjónanna, niður á grundvöll nytja og nauðsynja. Þeir afréðu í trausti þeirrar reynslu, sem þegar var fengin að skapa nýjan skóg, sem fullnægja skyldi timburþörf landsins í framtíðinni. Með því var byltingin komin af stað, sú er teinungarnir frá aldamótunum höfðu verið að undirbúa. Ætla mætti að hin nýja stefna hefði vek- ið óblandinn fögnuð. En fjarri fór því, og enn fer því fjarri að menn láti sér skiljast, að unnt sé að skapa lífs- viðurværi í voru landi af fleira en sauðfjárrækt og síld- veiðum. Og heyrzt hafa raddir um að friða landið fyrir skógi. Fegurð þess og hreinleika væri stefnt í voða með því að hefja þar ræktun nýrra skóga erlendra trjáa. En svipuð bylting í gróðri landsins hefur gerzt fyrr. Allt frá því forfeður vorir námu land og til vorra daga, hef- ur vafalítið nær fjórðungur allra plantna, sem vaxa hér nú af sjálfsdáðum, flutzt inn af mannavöldum. Enginn telur spjöll að þeim. Og eftir þúsund ár mun mönnum líkt fara, er þeir líta hina nýju skóga. Og ekki fæ ég séð fegurðarspjöll á útsýninu, þaðan sem vér nú erum, þótt skógarteigar stæðu yfir í hlíðum Vaðlaheiðar eða teygðu sig hérna upp í mynni Glerárdalsins. En sú bylting verður ekki unnin nema í skjóli nátt- 298 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.