Heima er bezt - 01.09.1963, Side 10

Heima er bezt - 01.09.1963, Side 10
hirðingamaður í 23 ár, símstöðvarstjóri í 12 ár, úttekt- ar- og virðingamaður í 27 ár, sáttanefndarmaður í 15 ár, hreppsstjóri í 17 ár, umboðsmaður Brunabótafélags Islands í 16 ár, afgreiðslumaður hjá Kaupfélagi Stein- grímsfjarðar í 2 ár, en þá hafði félagið sett upp útibú í Kaldrananesi, eftir skelegga baráttu Bjarnfirðinga. Umsjónar- og fjárhaldsmaður Kaldrananeskirkju og meðhjálpari í 27 ár, en þau störf hafði áður annazt tengdafaðir minn Þorsteinn Guðbrandsson, safnaðar- fulltrúi var ég í 18 ár, skólanefndarmaður í 8 ár, fast- eignamatsmaður fyrir Strandasýslu árið 1929, fulltrúi fyrir Búnaðarfélag Kaldrananesshrepps á stofnfundi Búnaðarsambands Vestfjarða 1907 og svo aftur fulltrúi bænda sýslunnar á stofnfundi Stéttasambands bænda árið 1949. Erfitt var með fátækramálin. Þegar hart var í ári áttu ýmsir erfitt uppdráttar. En þótt snúningssamt væri með ýmsar innheimtur heima í hreppnum, varð þó erf- iðara að mæta öllum þeim kröfum er bárust frá öðrurn sveitarfélögum. Fólk hafði flutt úr hreppum í atvinnu- leit og myndað sér heimili, þegar svo kreppa og at- vinnuleysi skall á, og leita þurfti stuðnings hjá dvalar- sveitinni, þá urðu úrræðin þau að leita til heimahag- anna, og voru þá oft aðeins tveir kostir fyrir hendi, annar sá að greiða kröfurnar, eða heimta flutning á fólkinu og þá ef til vill sundra fjölskyldunni. Oftast var sá kostur tekinn að greiða áfallnar kröfur í von um að úr rættist fyrir fólkinu. Er ég þess minnugur, að sumum þótti fulllangt gengið í þessu efni, þegar við keyptum hús í Hafnarfirði, til þess að afstýra flutn- ingi. En okkur tókst að sanna það, að í þessu efni skað- aðist hreppurinn ekki, auk þess sem hér var mannúð- legar að farið gagnvart fjölskyldunni. Emil Jónsson, núverandi ráðherra, var þá bæjarstjóri í Hafnarfirði. Er hann sá bezti maður sem ég hefi átt við í þessum sölcum, og þurfti ég þó víða við að koma á kreppuár- unum. Þegar lagast fór kreppan gekk allt betur, og sýndi fólkið þá vilja sinn að standa í skilum. A þessum árum var allmikið gert að því að panta alls konar muni, varahluti í báta o. fl. gegn póstkröfu. Þegar kröfur þessar komu var ekki ævinlega fyrir hendi handbært fé til greiðslu á þeim, en hins vegar brýn nauðsyn að fá hlutina til notkunar. Ég tók það þá oft á mig, sem bréf- hirðingamaður, sem ég ekki mátti gera, og varðaði raun- ar við lög, að ég afhenti í ýmsum tilfellum hluti eða sendingar úr póstinum án þess að staðgreiðsla kæmi fyrir. Það leið heldur ekki á löngu áður en ég fékk harðort áminningarbréf frá póststjórninni, póstmeist- ara Sigurði Baldvinssyni í Reykjavík, þar sem hann hót- aði mér málsókn fyrir að hafa látið vörusendingar af hendi án greiðslu. Mér var ljóst að ég hafði tekið á mig ábyrgð, vissi hins vegar, að með því að tefja afgreiðslu þessara hluta, þangað til greiðsla kæmi fyrir, lagði ég atvinnu sumra þessara manna í rúst, eða gerði þeim á annan hátt stórtjón. Þessi spil lagði ég á borðið í bréfi til póstmeistara, jafnframt því sem ég kvaðst bera per- sónulega ábyrgð á greiðslunum. í lok bréfsins til hans spurði ég hvaðan af landinu hann væri. Það virtust hvíla einhver örlög á þeim mönnum, sem héti Sigurð- ur Baldvinsson að leggja stein í götu mína. Maður með sama nafni hafi verið nærri búinn að drepa mig og sjálf- an sig fyrir nokkrum áratugum, þá 14 ára strákur, sem hefði togað mig með sér niður hjarnfönn á leiðinni til Loðmundarfjarðar, og það væri ekki honum að þakka að ég væri lifandi nú. Ég fékk fljótt svar við þessu bréfi þar sem póstmeist- ari tjáði mér að hann væri sá sami Sigurður, sem hefði verið nærri búinn að drepa mig á Austfjörðum. Hann kvaðst afturkalla allar hótanir sínar í minn garð og bað mig finna sig, þegar ég yrði á ferðinni næst til Reykja- víkur. Það gerði ég, og upp frá þeim degi urðum við Sigurður góðir vinir. Ég segi frá þessu vegna þess, að þetta var í eina skipt- ið sem yfirboðarar mínir fundu að gjörðum mínum. Þótti mér vel skipast, að það skyldi snúast til vináttu. Þið eigið helgan kross í Kaldrananesi? Ef kross skal kalla, — en kross er það nefnt. Það er spýturengla, sem stungið hefur verið niður í lítið vörðubrot á klettahöfða niður af túninu á Kaldrana- nesi. Sagt er, að ekki megi hrófla við honum. Ég veit ekki, en ég gerði það að minnsta kosti ekki. Annar bóndi, sem þar bjó, gerði sér það einhvem tíma að leik að taka krossinn og fara með hann heim. En hvernig sem því var háttað, var nóttin varla liðin, þegar hann flýtti sér með krossinn á sinn stað og síðan er ekki vit- að að við honum hafi verið hreyft. Trúin á helgi kross- ins er vafalaust aftan úr kaþólsku. Um það fara þar af engar sagnir. En það var annar staður í Bjarnarfirði, sem ekki mátti ruska við. Það var rofabarð framan við túnið í Goðdal. Bóndi, sem þar bjó eitt sinn, reyndi að brjóta álögin með því að hreyfa við barðinu. Skömmu síðar fórst uppáhalds hross hans með válegum hætti. Mörgum árum seinna varð hörmulegt slys í Goðdal, þegar snjóflóð féll þar á bæinn. Um það var mikið tal- að og ritað á sínum tíma, og finnst mér ekki ástæða til að rifja það upp. Ég segi bara eins og nú heyrist oft í útvarpinu: „Því glevmi ég aldrei“, þegar sex líkum var ekið heim að kirkjunni á Kaldrananesi. Þau voru færð í kirkju og þar veittur sá umbúnaður sem tök var á. Og þegar kistur höfðu verið smíðaðar og líkin kistulögð, var þeim raðað inn í kór framan við gráturnar. Nokk- uð dróst að jarðarför færi fram. Ég fór þarna um tvisv- ar á hverjum degi, því ég lét ljós loga í kirkjunni yfir nóttina. Ekki fann ég til neins geigs við að umgangast þetta látna fólk, en fannst sem ég með þessari þjónustu gæti sýnt dálítinn samúðarvott látnum og lifandi. Þegar válegir atburðir gerast, leita menn oft orsaka og setja þá gjarnan í samband við þjóðtrú, sem skap- ast hefur og lifað frá liðnum öldum. En svo við tökum upp léttara hjal. Þú sökktir einu sinni hrút? Já, svo sem frægt er orðið. Ég varð af þeirri athöfn miklu frægari en efni stóðu til. Hvernig bar það að? 306 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.