Heima er bezt - 01.09.1963, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.09.1963, Blaðsíða 12
HALLGRÍMUR FRÁ LJÁRSKÓGUM: Suipleiftur af iöld\ ur aj soguspjoiaum (Framhald) Úr Bardagamaður að Borg er höldur, vígamaður og vopnaslyngur, ákafamaður á orrustuþingum, vit og hamremmi vopnum ráða. Egilssögu Utan á stundum steindum knerri Egill stýrir um öldufalda, leitar sér frama, fjár og erfða. — Góður er víkingi vopnadómur. Barðist við átta enn ellefu tvisvar ofurhugi er aldri bilar, hörfun ei kunni, heimti bætur, orkaði sigurs allajafna. Seint munu fyrnast sagnir Eglu um íslenzkan bónda er utan gisti oa: konunwamóður merkti hatri, en níðstöng reisti Norvegs sjóla. Styrrfrjóar hendur höggva, leggja, sækja, verjast, unz sigur er unninn. Harma allra er hefnt að lögum, — að eigin lögum ef önnur bregðast. Bmgðið er Agli. — Böðvar er hniginn, borgfirzkum öldum og bana lostinn. Við hvern er að deila? Hvar má hefna? Skal ylgja útsynnings ráða aldurtila? Magnvani stendur maðurinn, kappinn. Víkingi fatast vopn er bíta. Staulast blindsýnn til bæjardura, — lokrekkju falinn leggst í svelti. Hví skal höfðingi hungurbana? Eru þar venmegin eigin þróttar? Háðfextar, beiskar hafsins öldur? Ellegar sorg óbær í hjarta? Illt er að þola örlögvætti. — Óbætt skarð hans eigin sonar opið mun standa enn — og verða. Sem bótalaust man er Böðvar allur. Lífsvilja Þorgerður leysir úr dróma, tendrar skáldsýn og skylming orða. Upp skal til erfis, upp og kveða saknaðardrápu, Sonatorrek. — Gleymast feður og gleymast mæður, farviðir sökkva en fúna minjar, en aldrei mun fymast íslands þegnum saknaðardrápan, Sonatorrek. 308 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.