Heima er bezt - 01.09.1963, Side 14

Heima er bezt - 01.09.1963, Side 14
GUÐMUNDUR JOSAFATSSON: Hjörleifur Sigfússon — Marka-Leifi '[m héraðsbrest ei getur, þó hrökkvi sprek í tvennt,“ kvað Guðmundur Friðjónsson, og mun það sannmæli. En sjaldan mun það hafa sannazt betur en síðastliðinn vetur. Níræður fátæklingur féll í valinn, sem aldrei hafði kvatt sér hljóðs þar, sem efnt er til þeirra samfunda, sem taldir verða til þjóðarþinga, svo fátækur að eftir honum mun sjaldnast hafa verið munað, þegar sezt var á rökstóla til að semja útsvars- eða skattaskrár. Og þó, — þó var það fréttaefni ef til hans spurðist, gleðigjafi að hann gisti, svo minnisstæður aufúsugestur, að trúlegt er, að þegar Marka-Leifi er samferðamönnum sínum að fullu gleymdur, verði nokkrum fölskva slegið á minningu ýmsra þeirra af ferðafélögunum, sem þó hafa komið meir við þá sögu, er við leggjum mesta rækt við að skrá og skýra. Og þó saga hans sé smá í sniðum í sögu þjóðarinnar, eins og hún gerist í dag, má gjaman á það minna, að stundum era smásögumar svo minnisstæðar, svo úr garði gerðar, að þær halda hlut sínum að fullu móti þeim, sem meiri eru um frásagnir og vöxt. Leifi, en svo hét hann löngum á máli samferðamann- anna, fæddist á Stóru-Ökrum í Blönduhlíð 12.maí 1872. Foreldrar hans voru hjónin Margrét Guðmundsdóttir og Sigfús Jónasson. Faðir Margrétar var Guðmundur bóndi í Kollugerði á Skagaströnd, Eiríksson bónda á Undhóli í Óslandshlíð, Jónssonar bónda á Bessastöðum í Sæmundarhlíð. Jónas faðir Sigfúsar bjó á Grófargili í Skagafirði. Hann var Sigfússon bónda í Selhaga, Oddssonar bónda í Geldingaholti Oddssonar. Móðir Jónasar í Grófargili var Björg Jónasdóttir frá Gili í Svartárdal Jónssonar. Var Sigurlaug seinni kona Sigurðar Ámasonar í Höfn- um alsystir Bjargar. Er það Skeggstaðaætt í móður- kyn. Móðir Sigfúsar Jónassonar var Margrét Ólafsdótt- ir bónda í Valadal, Andréssonar. Móðir Sigfúsar í Sel- haga var Helga Þorleifsdóttir bónda á Skarðsá, Þorleifs- sonar. Ættir Leifa skulu ekld raktar hér frekar, enda varð honum löngum um annað tíðræddara en ættfræði, og átti það jafnt við um eigin ætt og annarra. Foreldrar Leifa fluttust frá Ökmm að Hringey, þeg- ar hann var tveggja ára, og bjuggu þar um alllangt skeið. Var faðir hans löngum kenndur við býlið og vel þekktur um nálægar sveitir undir nafninu Hringeyjar- Fúsi, sem hann bar til leiðarloka. Hringey var sultar- kot, þó hún lægi við hjarta Skagafjarðar. Sigfúsi mun hafa verið ósýnt um fjármál. Þótti í honum lítið mann- kaup til bjargráða, þegar frá var talið veiðimennska og ferðalög, enda önnur efni hugstæðari en heimastörf. En hann var frábær veiðimaður og mun hafa dregið marg- an málsverð í bú sitt með byssunni, einkum á vorin (helsingjar) og framan af vetri (rjúpur). En „fár verð- ur feitur af fugladrápi“ og mun það hafa sannazt á Sig- fúsi. Frægastur var hann sem refaskytta. Mun enginn Skagfirðingur hafa komizt þangað með tær, sem hann hafði hæla í þeirri íþrótt, meðan hans naut við, enda réði hann mjög ríkjum í þeim efnum milli Blöndu og Héraðsvatna um langt skeið, oftast til kvaddur, er mik- ils þótti við þurfa. Til hans mun og hafa verið leitað víðar að. En veiðiferðimar munu ekki alltaf hafa fært honum svo digra sjóði, að þeir nægðu heimili hans til fullrar greiðslu á nauðþurftum. Sigfús var og ekki að fullu bundinn við eina sæng um ástafar. Hlóðst því mjög á hann ómegð. Fyrstu ár Leifa vora því fima fjarri allsnægtum. Átta ára fór hann alfari úr foreldrahúsum, að Haf- grímsstöðum í Lýtingsstaðahreppi til Eyjólfs Einars- sonar, síðar bónda á Mælifellsá og Margrétar Þormóðs- dótmr konu hans. Hjá þeim dvaldi hann fram yfir tví- tugsaldur. Minntist hann þeirra ávallt með hlýju og skoðaði þau sem aðra foreldra sína. Eyjólfur var um margt sérstæður. Hann þótti mannkostamaður, flest- um ágætari sem félagi, gleðimaður í vinahópi og söng- maður svo að firna langt bar af því, sem þá þekktist um Skagafjörð. Luku allir upp einum munni, er ég heyrði minnast söngs hans, að fegurri rödd hefðu þeir eigi heyrt. Sagðist sonur hans, Sigurður Birkis söng- málastjóri, hafa öruggar heimildir fyrir því, að Eyj- ólfur hafi náð fullum hálsi þeirri tónhæð, sem frægustu tenórsöngvurum er almennt talið fært að ná, auk frá- bærrar blæfegurðar. Hann var og flesmm mönnum söngglaðari. Söngurinn setti því sérstakan svip á Mæli- fellsárheimihð, sem gerði það héraðsfrægt. Þetta um- hverfi setti því sinn svip á Leifa, sem var ágætlega söngvinn, og átti yfir að ráða bjartri og blæfagurri ten- órrödd, þó eltki gæti hún talizt voldug. Og þó hann lærði aldrei annað til söngmenntar en það, sem hann nam þar, entist það honum svo fram á háan aldur, að hann var hlutgengur í góðu lagi, þegar lag var raulað á gleðifundum. 310 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.