Heima er bezt - 01.09.1963, Side 18

Heima er bezt - 01.09.1963, Side 18
svo ríkjum í háttum hans, að hann skilaði ekki öllu því heilu á leiðarenda, sem hann hafði tekið að sér að greiða fyrir. Leifi naut sinnar frábæru heilsu til leiðarloka. Vos- búð, drykkjuskapur, erfiði, útilegur, þótt varbúinn væri hann löngum til slíks, ekkert af þessu gat unnið á heilsu hans og þrautseigju. Og minni sínu á mörkin hélt hann svo ótrúlega óskertu, að hinni mestu furðu gegndi. Hann játaði að vísu sl. haust, að sér gengi illa að muna þessi nýju mörk. „Þau eru svo klaufaleg“. Þessa athuga- semd lét ég í einfeldni minni liggja milli hluta. Hitt ætla ég víst, að á námshæfni muni tekið að slá nofckr- um fölskva, þegar fullir 9 tugir ára eru að baki, og það jafnvel þótt drjúgum meira hafi haft til brunns að bera en almennt var talið um hann. Og það er alveg víst, að þetta útslitna og upptærða gamalmenni bar enn þann ægishjálm þekkingar í sinni fræðigrein yfir alla þá, er sóttu til Stafnsréttar á sl. hausti, að þangað mun eng- inn hafa náð með tær, sem hann hafði hæla og mundi þar þó langt á milli. Og enn var snúizt í kringum hann í veiðivon eftir hlátursefni, enda trauðla haldið þaðan öngulsárt með öllu. En það ætla ég að hláturinn kring- um Leifa hafi löngum verið minni græsku blandinn en flesta aðra, sem ég hefi kynnzt og slíks er leitað hjá. Árið 1947 gaf Búnaðarfélag íslands Leifa eitt þúsund krónur úr heiðursverðlaunasjóði sínum í þakklætisskyni fyrir hinn sérstæða þátt hans í fjallskilum. Þó upphæð- in sé ekki há, sé hún miðuð við núgildandi mat pen- inga, ber þess að geta, að hún var, sem kunnugt er, mörgum sinnum gildari sjóður þá. Hitt er þó meira um vert, hversu fyrirferðarmikill hann var frá bæjardyr- um hans. „Svona mikla peninga hef ég aldrei átt,“ mælti hann þá. „Ég fékk mér aðeins eina flösku til að gleðja mig. Hitt ætla ég að geyma.“ Málgar tungur sögðu að hún hefði verið keypt oft „þessi eina“. Geymslan hefði setið á hakanum. En hvað sem því líður, varð gjöfin honum ólýsanlegur gleðigj afi, sem yljaði honum löng- um stundum eftir að „þessi eina“ var teyguð í botn að fullu. Gleðin, sem gjöfin vekur, fer ekki alltaf eftir stærð hennar. Hinn 12. maí 1952 héldu nokkrir vinir Leifa beggja megin fjallanna, sem skilja Húnavatns- og Hegranes- þing, honum veglega veizlu í Varmahlíð, í tilefni átt- ræðisafmælis hans. Var hann þar sæmdur gjöfum. Sú, er sérstæðust þótti, var Markaskrá Skagafjarðarsýslu í fögru bandi. Mun dæmafátt, að þær bókmenntir séu svo í heiðri hafðar að færa þær í skrautband. Hitt mun þó engu sjaldgæfara, að þess háttar fræðibækur séu gefnar í virðingar- og þakklætisskyni og þó græskulaust. En sú var raunin á þar. í samkvæminu voru Leifa flutt mörg minni í ljóðum og lausu máli og mun hófið hafa orðið honum bjartasti bletturinn í lífi hans. Þar var þessi einstæði fátæklingur heiðursgestur að fullum verð- leikum, þrátt fyrir margvíslegar takmarkanir. Þar var ölteiti nokkurt, en Leifi stóðst þær freistingar eins og hetja í það sinn. Éins og áður er sagt var Leifi alla ævi einstæðingur og löngum lítils metinn á margan hátt. En honum féll sú gæfa í skaut að eiga sérstætt athvarf, þegar tók að kvölda. Nærfellt allan síðasta tug ævi sinnar átti hann athvarf í Hátúni í Skagafirði hjá þeim hjónum Gunn- laugi Jónassyni og Ólínu Jónsdóttur, konu hans. Þar átti hann skjól, sem ekki var aðeins húsaskjól og aðrar efnislegar nauðþurftir. Þar átti hann heimili, þegar hann taldi sér hvíldar þörf, heimanbúnað vísan, þegar fargirnin knúði á, en naut jafnframt þess frelsis, sem hann mat svo mikils alla ævi, frelsis til að helga sig fyr- irgreiðslu í einhverri mynd, og þó fyrst og fremst fjall- skilum. En sá drengskapur, sem hggur að baki því að opna svo hlý hús fyrir allslausum einstæðingi, sem raun mun hafa gefið vitni þar, er tormetin og sízt til fjár. Það eru til störf, sem mælikvarði krónunnar eða kú- gildanna verður ekki lagður svo á, að fullt gildi komi fram. Þó það sé vissulega rétt, sem til var bent í byrjun þessa máls, að við fráfall Leifa hafi enginn héraðsbrest- ur orðið, verður því ekld neitað, að þrátt fyrir fátækt hans og umkomuleysi eru héruðin, sem fóstruðu hann, ótrúlega mikið fátækari eftir fráfall hans. Sú önn, sem hann helgaði orku sína — seiglu sína — vakir í háttum héraðanna enn um sinn. En þess er ekki að vænta að fram komi oft maður, sem á í eðli sínu — í þrá sinni — þætti, er til þess þurfa að helga sig svo óskiptan því að leysa þann vanda svo, sem hann gerði og sízt af slíkri yfirburðaþekkingu á undirstöðu þess þrauthugsaða kerfis, sem fjallskil vor hlíta. Þó hann væri í hug okkar samferðamannanna fyrst og fremst Marka-Leifi, er hitt víst, að fjallskilin í dýpstu merkingu þess orðs, voru önn hans og jafnframt lífsnautn. Og þó þau skipi sitt rúm í hug og háttum kynslóðanna enn um sinn, er þess ekki að vænta, að á næstu mannsöldrum sjáist slitið gamalmenni í förum milli þessara héraða með poka- tyrðil í fari sínu með ullarrytjum í, á alls konar mynd- um, þar sem eigendurnir voru jafn margir og rollurn- ar, sem rytjurnar voru af og e. t. v. dreifðir um fleiri sveitir. En þessu þurfti Leifi að koma til skila og þá var að gera það að svo miklu leyti, sem hann sá sér fært hverju sinni. En mjög dró að hans dómi úr mannkost- um þeirra, sem brugðust þeirri skyldu að skila ullinni á leiðarenda, þegar hann átti þess ekki kost sjálfur, að komast alla leið og var hann minnugur á slíka bresti. Allt slíkt amstur var þó hreinn barnaleikur hjá haust- og vetrarferðum hans milli héraðanna og um þau með óskilapening, jafnt hross og fé. Til þessara ferða entist honum þol fast fram að níræðu. Er það með hreinum ólíkindum, hversu hann dugði svo smágerður og þrek- lítill sem hann var á sínu léttasta skeiði. En þetta var að eigin dómi skylda hans og henni mátti hann ekki bregðast. Með Leifa hvarf líka óþrotlegt viðfangsefni þeirra, sem einhverju skopskyni eru gæddir. Frásagnargleði hans, frásagnarhættir, mat á mönnum og málefnum, mismælin, allt var þetta nær óþrotlegt efni græskulausr- 314 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.