Heima er bezt - 01.09.1963, Page 20

Heima er bezt - 01.09.1963, Page 20
Gaman og alvara EF ÉG ÆTTI MILLJÓN, Löngum hefur börnum þótt milljón stór tala og tal- ið var í gamla daga að með milljón krónum í lausafé mætti mikið gera og veita sér hin mestu þægindi. Fyrir þremur til fjórum áratugum mátti telja á fingrum sér milljónera á Islandi, en nú munu fingurnir ekki duga og ekki dygði heldur, þótt tærnar væru teknar með. Það er ekki fyrr en líða tekur á seinni heimsstyrjöld- ina, sem milljónerum fjölgar og þó fyrst og fremst eft- ir styrjaldarlokin. Mjög er það algengt í efstu bekkjum barnaskólanna að börnin geri ritgerðir, annað hvort um sjálfvalið efni, eða efni sem kennarinn velur, og lætur hann þá öll gera ritgerð um sama efni. Það var skólaárið 1953—1954, sem ég komst að því að skólastjóri, sem kenndi móðurmál í elztu deild skól- ans gaf börnunum stílsefni, sem hafa skyldi að yfir- skrift: „Hvað myndirðu gera, ef þú ættir eina milljón?11 Ég sá nokkuð af þessum ritsmíðum, og margt skynsam- legt sögðu þessir ungu rithöfundar um þetta vandamál, hvað þeir myndu gera, ef þeir eignuðust allt í einu eina milljón. Einn stíll hjá ellefu ára gömlum pilti vakti þó sérstaklega athygli mína. Stíllinn var svo sérstæður og hreinskilinn og höfundurinn var ekkert hlédrægur. Ég féltk afrit af stílnum, nákvæmt eftirrit eins og höfund- urinn gekk frá honum. Ég ætla að leyfa mér að birta þessa ritgerð hér, og vona ég að höfundurinn virði mér það á betri veg, ef hann sér þennan þátt. En vafasamt er að hann þekki stílinn eftir öll þessi ár. En ritgerðin er skrifuð í marzmánuði 1954, og drengurinn, sem skrif- aði stílinn var þá ellefu ára. Vitanlega gef ég hér hvorki upp nafn drengsins eða skólans. Stíllinn er prentaður hér orðréttur, eins og pilturinn gekk frá honum, nema ritvillur eru leiðréttar, en frásögnin í engu breytt. Og hér kemur þessi ritgerð: HVAÐ MYNDI ÉG GERA, EF ÉG ÆTTI EINA MILLJÓN? „Þá myndi ég kaupa mér konu, fína og fallega. Svo myndi ég kaupa fjögra manna drossíu, fyrir mig og frúna. Og svo myndi ég hafa krakka. Ég mundi fá krakka á leigu. Svo mundi ég kaupa mér hús, nokkuð stórt. Svo mundi ég kaupa mér vörubíl, til að flytja á vörur og fá peninga fyrir það. Og svo mundi ég kaupa voða stórt skip og mundi vera sjálfur skipstjóri og sigla til Kóreu og fara í stríð og skjóta alla kommúnista og Maú-Maú-menn. Svo mundi ég sigla til Noregs og Sví- þjóðar. Svo mundi ég fara til Ítalíu og slá páfann í rot og leggja undir mig alla Italíu og verða konungur í páfahöllinni og skíra upp höllina Villahöll eða Vil- hjálmshöll.“ Þannig svarar þessi ungi piltur spurningunni árið 1954, en þá var hann ellefu ára. Þessi piltur er ákveðinn í svörum. Það er eins og hon- um hafi verið þetta allt Ijóst um leið og hann sá stíls- efnið — spurninguna. Það fer ekki hjá því, að okkur detti í hug að ritgerðin sé eins og endurvarp frá tíðar- andanum. Hann bergmálar þær kröfur til lífsins, sem

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.