Heima er bezt - 01.09.1963, Side 25

Heima er bezt - 01.09.1963, Side 25
Fyrrum átti Óli skans æðsta sessinn í huga manns. Núna eiga engir sjans, sem ekki kunna Limbó Dans. La, la, la, la, la, la Limbó. Þá er hér eitt Limbó-ljóð, sem heitir Limbó-rokk. Ljóðið er eftir Valgeir Sigurðsson, en Ragnar Bjarna- son hefur sungið það á hljómplötu: Látið dynja dátt í sal dansinn ungra meyjaval sérhvern beitið brögðum hal betur má ef duga skal. Dansi hver, sem dugað fær dönsum þar til klúkkan slær. Enginn veit hver annað sinn aftur tekur snúninginn. Út á gólfið — allir á stjá enginn fær — að sitja hjá. Þó að margan meiði skór meira fjör og ekkert slór. Takið undir öll í kór eins og brotni á kletti sjór. Dansi hver, sem dugað fær dönsum þar til klukkan slær. Út á gólfið allir á stjá enginn fær að sitja hjá. Berið hraðar firnan fót fylgið eftir hverri snót. Látið eins og öldurót áfram, hraðar, verið fljót. Dansi hver, sem dugað fær dönsum þar til klukkan slær. Enginn veit hver annað sinn aftur tekur snúninginn. Sóla í Strandasýslu biður um ljóðið Stafróf ástarinn- ar. Höfundur Ijóðsins er Loftur Guðmundsson, en hann þarf ekki að kynna fyrir ljóðelskum unglingum. Ragn- ar Bjarnason hefur sungið ljóðið á hljómplötu, en hann syngur öll framantalin ljóð með hljómsveit Svavars Gests: Hún Gunna vildi ei neitt með Nonna hafa, og Nonni var sá klaufi að Gunna hló. Og því tók hann það ráð að reyna að stafa á rósamáli það, sem innst í hugarfylgsnum bjó. A merkir atlot þín B merkir brosin þín, D þú sért dásamlegt fljóð. E elsku eldinn þinn, F fagra faðminn þinn, G þinna gullnu lokka flóð. H merkir hlátraþrá, í ljósa íturbrá, J merkir jáyrðin hljóð. K merkir kossabál, L Ijúfust leyndarmál, M merkir mey, sem er góð. N. O, P, Q, þú, enginn er sem þú. R, S, T, Ú, enginn skilur stafrófið sem þú. V merkir von og heit, X það sem enginn veit, Y, Z, Þ, Æ og 0. Það mundi létta lund, ef læsum stund og stund allt stafrófið saman, við tvö. Enn eru óuppfylltar óskir margra um gömul og ný ljóð, en þessar óskir eru geymdar en ekki gleymdar. Stefán Jónsson, Skeiðarvogi 135. BREFASKIPTI Guðrún Fjóla Gránz, Norðurstxg 5, Ytri-Njarðvík, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 14—16 ára. Anna SigriÖur Reykdal, Mörk, Ytri-Njarðvík, óskar eftir bréfa- skiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 14—16 ára. Ingibjörg Kristín Reykdal, Mörk, Ytri-Njarðvík, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 15—17 ára. Viðar Björnsson, Framnesi, Skagafirði, óskar eftir bréfaskiptum við stúlku á aldrinum 16—18 ára. Æskilegt að mynd fylgi. Guðný Kristmundsdóttir, Reykjavíkurvegi 29, Hafnarfirði, ósk- ar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 16—18 ára. Sigurdis Baldursdóttir, Torfastöðum, Fljótshlíð, Rang., óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 16—17 ára. Mynd fylgi. Anna Scheving, Torfastöðum, Fljótshlíð, Rang., óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 15—16 ára. Mynd fylgi. Sigursteinn Halldór Ellertsson, Hrísateig 36, Reykjavxk, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 15—17 ára. Æskilegt að mynd fylgi. Stefán Á. Guðmundsson, Meðalheimi, Ásum, Torfalækjarhreppi, A.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 10—13 ára. Æskilegt að mynd fylgi. Ölafur Þórarinsson, Meðalheimi, Ásum, Torfalækjarhreppi, A,- Hún., óskar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 12 —14 ára. Æskilegt að mynd fylgi. Vilborg Friðriksdóttir, Ási, Eskifirði, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 17—20 ára. Einar Kristjánsson, Lambastöðum, Laxárdal, Dalasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 13—15 ára. — Æskilegt að mynd fylgi. Heima er bezt 321

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.