Heima er bezt - 01.09.1963, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.09.1963, Blaðsíða 34
„Hvað segir þú, Kristján — bóndastöðu? Ég hef aldrei hugsað mcr að verða bóndi.“ „Jæja! Það er nú samt vitanlegt, Agnar, að sá sem hlýtur það hnoss að giftast Hamradals-rósinni verður að taka við búinu á Heiði.“ „Það hefur aldrei verið minnst á það við mig. Ég man raunar, eftir á að hyggja, að Jórunn sagði einu sinni eitthvað í þá átt að foreldrum sínum myndi falla þungt að hún flytti frá þeim. Annað hefur aldrei ver- ið um þetta rætt.“ „Nei, því trúi ég vel. Og það verður heldur ekki gert fyrr en þú ert kominn í hnapphelduna, drengur minn. En þá kemur það, vertu viss.“ „Eltki er ég hræddur um það — enda ekki til neins,“ svaraði ég. Kristján bætti aftur í staupin. Hann horfði á mig ísmeygilega. „Ef þú hefðir verið svo hygginn að velja Solveigu mína, þá hefði verið gaman að styðja ykkur fram á veg- inn. Hvernig hefði þér litizt á að setjast að í útlönd, um, ja til dæmis í Kaupfnannahöfn. Það hefði verið hægt að búa vel um ykkur þar. Það hefði verið gott fyrir mig að hafa annan eins mann og þig þar, verzlun- arinnar vegna. Við hefðum getað rakað saman pening- um, Agnar.“ Þetta var einmitt veiki bletturinn. Ég hafði alltaf þráð að ferðast út fyrir pollinn og litast þar um. Ég þagði dálitla stund, en að lokum sagði ég um leið og ég stóð upp: „Já vissulega hefðum við grætt. Það hefði verið mjög ákjósanlegt. En það er bara of seint.“ „Nei, Agnar, ekki enn. En á morgun verður það um seinan. Þá ert þú kvænttu: og þér verður þröngvað til að taka við bóndastöðunni á Heiði þegar tímar líða.“ Ég gekk fram að dyrunum, opnaði þær og sagði nokkurn veginn rólega: „Nú hættum við þessu tali, Kristján. Gert er gert. Hefði ég vitað þetta, myndi ég ef til vill hafa valið öðruvísi. En hvað veldur því, að þú býður mér þetta kostaboð fyrst nú?“ „Til þess hef ég mínar ástæður, drengur minn,“ sagði Kristján. Þegar Kristján sá að ég var í þann veginn að ganga út úr dyrunum, hellti hann enn á ný í staupin og sagði glottandi: „Jæja, Agnar, við drekkum skál framtíðar- innar og svo kemur þú með mér um borð. Ég á eftir að hitta skipstjórann að máli.“ Ég fann að ég var að verða dálítið drukkinn, tók samt við staupinu og renndi úr því. „Þú verður þá að vera fljótur, Kristján. Ég verð að fara að komast heim og sofa, svo að ég verði vel fyrirkallaður á morgun,“ sagði ég. „Já,“ svaraði Kristján. „Ég er alveg tilbúinn. Ég þarf aðeins að tala svolítið við konu mína.“ Ég geklt því næst út. Ég staðnæmdist á stéttinni utan við skrifstofugluggann. Haustmyrkrið grúfði yfir þorp- inu. Á einstaka stað var ljóstýra í glugga en úti á höfn- inni lá skipið allýst. Mér fannst það dásamlegt, þeg- ar það bar við myrkan hausthimininn, eins og svolítið brot af dýrðinni handan við hafið, — dýrðinni sem mér hefði getað hlotnazt en hafði nú misst. Og skyndilega fannst mér Jórunn alls ekki svo mikils virði. Og verða bóndi á Heiði eins og Kristján hafði sagt! Nei, aldrei! Mig hryllti við tilhugsuninni. Ég var svo niðursokkinn í hugsanir mínar, að ég vissi ekki fyrr til en Kristján stóð við hlið mína. „Um hvað hugsar þú, drengur minn?“ spurði hann brosandi. „Um tilboð þitt,“ svaraði ég. „Hvers vegna hefur þú ekki boðið mér þessi glæsiboð fyrr?“ spurði ég aftur. „Af því, Agnar minn góður, að þegar þú opinberaðir með Jórunni, hélt ég að þér væri fullkomin alvara og að þú ynnir henni af alhug, en seinna hef ég komizt að því að þið Solveig mín hafið verið góðir vinir síðan — ef til vill heldur góðir og vinskapurinn full innilegur svona af því að þú varst annarri konu heitinn,“ sagði Kristján og hló við. Við gengum niður að bátnum og honum var ýtt frá. Er við komum um borð bauð skipstjóri okkur upp á staup. Við fórum niður í káetu hans. Þeir ræddu fyrst um vörur þær sem Kristján hafði fengið með skipinu. Síðan snerist talið að Kaupmannahöfn. Skipstjórinn var danskur og bjó þar. Hann átti tæplega nógu sterk orð til að útmála alla þá dýrð og lystisemdir, sem þar væri að finna. Ég lagði ekki orð í belg, en eftir því sem þeir töluðu lengur fannst mér Jórunn orðin fjarlæg og eins og fjötur, sem ég þyrfti að losna við. Ég hef aldrei fórnað mér fyrir aðra, hugsaði ég, og hví skyldi ég þá gera það hennar vegna. Hún myndi giftast Kára og allt verða eins og áður en ég kom í Hamarsfjörð. Ég myndi lifa í auði og allsnægtum úti í Kaupmannahöfn. Kristján skyldi fá að sjá um það. Ég var orðinn það mikið drukkinn, að ég gerði mér alls ekki grein fyrir hve glæpsamlegt og vanhugsað þetta allt var. Ég stóð upp, gekk til Kristjáns, reikull í spori, sló á öxl hans og sagði: „Ég tek boði þínu, Kristján. Ég sigli í nótt.“ Þeir litu upp sýnilega undrandi. Kristján áttaði sig fljótt. „Svo þú ert farinn að vitkast, vinur,“ sagði hann glottandi. Síðan sneri hann sér að skipstjóra og spurði hvort hann hefði rúm handa mér til Hafnar. „Ég borga fargjaldið,“ bætti hann við. Það var auðsótt mál. Mér var vísað eftir nokkuð löngum gangi að klefa þeim sem ég skyldi fá. Þar var legubekkur, borð og fleira. Ég kastaði mér upp í legu- bekkinn. Höfuðið á mér var orðið svo undarlega þungt. Ég hef víst sofnað umsvifalaust. Það síðasta sem ég man, var andlit Kristjáns, og ég heyrði hann segja: „Vertu sæll, Agnar minn! Þið Solveig eigið eftir að hafa það gott utanlands. Þú varst alltof góður til að verða bóndadurgur á Heiði.“ Rödd hans virtist fjarlægjast meir og meir og að lok- um hvarf allt. (Framhald) 330 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.