Heima er bezt - 01.05.1964, Blaðsíða 10
ég yður fyrir það alúðlegast, sem og annað ágæti yðar
mér til handa, á meðan mér gafst tækifæri til að njóta
þess.
Sömuleiðis þakka ég yður fyrir útvegun yðar af
áskrifendum fyrir Norðra, sem mig minnir, að væri
eftir áminnstu bréfi yðar, 12; og hafið þér meðtekið 6
exp. sumpart gegnum Jón í Göngustaðakoti og sum-
part beinlínis frá mér, en nú sendi ég yður hér með
íoksins hin 6 exp., frá no. 1—15. Fyrri gat ég ekki sent
yður þetta en nú, því heima var ég orðinn uppseldur,
en þessi nú sendu 6, fékk ég í gær frá Sauðanesi eða
Soffoníasi, er ekki fékk kaupendur þar að öllu því, er
ég hafði sent honum, og þetta því orðið afstands.
í gær kom kaupskipið Hertha frá Kaupmannahöfn,
og hefur hún verið 29 daga á leiðinni eða síðan 19. júlí.
Með henni fréttist, samkvæmt því áður hafði verið
skrifað hingað, að cholera gengi nú í Kaupmannahöfn.
Friðrik Jónsson frá Siglunesi* hefur keypt Minervu
kaupm. Thaaes fyrir eina 200 rbd., og er það sagt valla
nema hálft verð, af því hún — með því henni tilheyrir
— er verð.
Þingmenn komu 18. þ. m., og hafði allt gengið þar
með spekt. Konungsfulltrúinn** reyndist hinn bezti. ..
Fyrirgefið flaustrið og samtíning þenna
yðar skuldb. elsk. vini
B. Jónssyni.
Heilsið alúðlegast frá mér Einari m. á Lambanesi***
og föður yðar, samt þeim öðrum sveitungum yðar, er
helzt vildu ennú minnast kveðju minnar.
B. J.
6. BRÉF.
Akureyri, 13. sept. 1854.
Elskulegi vinur minn!
Ég þakka yður kærlega fyrir sendinguna með Guð-
mundi, og er hún meðal annars vottur þess, að ennþá
eruð þér ekki búnir að gleyma mér, að hafið nafn mitt
ritað, sem fyrri, í velvildar- og velgjörðabók yðar. —
Já, ég þakka yður hjartanlegast fyrir allt ágæti yðar
mér til handa.
Ekkert er héðan nýtt að frétta annað en þeir menn
yðar verða að líkindum áskynja um.
Heldur gengur nú erfiðlega fyrir prentsmiðjunni
okkar. 1) Þar sem verið er að lögsækja hana fyrir prent-
un barnalærd.bók., og er nú þrívegis búið að þinga í
* Hann gerði síðar garðinn frægan á Ytri-Bakka. — K. B.
** Konungsfulltrúi á Alþingi 1853 var Páll Melsted, amt-
maður.
*** Einar Guðmundsson, lireppstjóri og umboðsmaður á
Hraunum, faðir Baldvins lögfræðings. — K. B.
því. Og þótt hún kannske fari ekki stórsek af þingum
í héraði, þá mun nú annað hljóð verða í klukkunni, þá
kemur til Landsyfirr. og Hklegast sama í Hæstarétti.
2) Síðan í júním. hefur enginn pappír verið til að
prenta á, fyrri en að Sókrates kom, sem nú kom með
pappír og fl. fyrir nær því 800 rd., upp í hverja nú á
að borga fyrir 24. sept. 500 rd., en enginn skildingur
til nema í lánum og loforðum fyrir kverin og smásög-
urnar. Menn komast því ekki hjá að taka nýtt lán, sem
hvergi verður að fá, því veðið vantar, nl. fasteign eða
caution áreiðanlegs manns.
Það vildi ég, að við værum nú nær hver (svo) öðr-
um. Ég skyldi þá hafa flúið til hjálpsemi yðar um veð
í fasteign eða þá peninga. Hér eru svo fáir, sem bæði
vilja og geta í þeim efnum og enn færri, sem hafa til-
finningu fyrir því að hjálpa, þegar á liggur, heldur ein-
mitt þá draga alla hjálp sína sem mest í hlé.
Það væri þá eftirminnilegt, að þessi stofnun þyrfti að
detta um koll, og ég vil segja vansæmi fyrir þessa amts-
búa. Af því sem þannig, sem getið er, staðið hefur á
pappírnum, kemst ekki Norðri í gang, fyrr en seint eða
seinast í þessum mánuði, og koma þá líklega 3 mán. út
hver á eftir öðrum, sem allir í einu, nl. júlí, ág., sept.,
og þá rek ég þá sem fyrst af stað til átthaga sinna.
Góð má heita, að hafi verið í ár verzlunin, með verð-
ið á ísl. vörum, þar á móti hefur nauðsynjavara flest
verið dýrkeypt. Éystra voru yfir höfuð lakari prísar en
hér, að ég nú ekki tali um á Skagaf. og Skagastr. etc.
Timburskip hafði komið 1 á Eskif. nýskeð frá Noregi
og seldu þeir með líku verði og verið hafði á hinum
fyrri árum. Það er sagt, að búið sé að veita sr. Hallgr.
á Hólmum Rv.brauðið.* Nógir munu fást til að sækja
um Hólmana, hvar sr. Hallgr. á fáum árum er orðinn
auðmaður, og er það eggverinu þar mest að þakka, sem
árlega gefur af sér 800—1000 rd. Mjög óþerrasamt er
sagt, að hafa verið eystra í sumar, einkum í fjörðunuin,
en betra uppí Héraði. Fisklítið fremur.
Flestir hafa náð heyjum sínum að mestu óskemmd-
um í garð. Það held ég, að hér sé hlaðfiski enn á firðin-
um, ef síld væri nóff.
Það er gleðilegt að frétta, hve fengsamt ykkur rnörg-
um þar vestra hefur verið með hákarlaaflann í fyrra og
núna, jafnvel þó hann ekld komi fyrirhafnar- né kostn-
aðarlaust upp í hendurnar á ykkur, heldur en flest
annað.
jMér þykir það gleðifrétt að heyra, að menn eru farn-
ir að vilja hafa dekk í hákarlaskipum sínum, og að þér
— í því eins og öðru góðu — eruð oddviti þess þar
vestra. Líldegt væri, að Nesmenn fetuðu og í spor yð-
ar, því allajafna er ég hræddur við þessa löngu sjóleið,
nú kvað vera farin að tíðkast á öldungis opnum skip-
um.
* Sr. Hallgrímur Jónsson. Hann afsalaði sér Reykjavíkur-
brauði og sat kyrr eystra. Hann kvæntist Kristrúnu, systur
Björns ritstjóra, er áður hafði verið trúlofuð Baldvini Einars-
syni, lögfr. frá Hraunum. — K. B.
178 Heima er bezt