Heima er bezt - 01.06.1964, Síða 11
bjó í Hjaltastaðakoti, en var síðast á Sauðárkróki, kv.
Sigríði Benónýsdóttur, þau víst bl., og Eyjólfur, fórst
í Reykjafossi í Skagafirði — að eigin ráði — tæplega tví-
Uigur. Er sennilega ekkert fólk út af Hjálmari komið.
III. SIGURÐUR, sá er um getur í hinni fyrrnefndu
grein í HEB, f. 1823, d. 1899. Hann fluttist austur á
land upp úr miðri öldinni, sennilega í sambandi við för
séra Halldórs Jónssonar í Glaumbæ, þá hann fékk Hof
í Vopnafirði. Hann var fyrst eitthvað í Eiðaþinghá og
í Húsavík eystra, en um 1860 hóf hann búskap á Hóla-
landi í Borgarfirði, og þar bjó hann langa stund. Hann
var tvíkvæntur. F. k. hans var Guðrún Hannesdóttir b. á
Reykjarhóli í Seyluhreppi í Skagafirði Þorvaldssonar,
og var hún móðursystir Stephans G. skálds. Munu þau
hafa gifzt áður en austur fluttu. Þeirra börn: Árm, fórst
með vöruflutningabáti við Lagarfljótsós 1899. Hann
var kvæntur Katrínu Hildibrandsdóttur, og fór hún til
Vesturheims 1902 með börn þeirra þrjú, Sigurð, Hildi
og Eystein, og Hannes, hreppstjóri í Borgarfirði um
langt skeið, kv. Sigríði í. Eyjólfsdóttur, og voru börn
þeirra eins og segir í greininni: Eyjólfur hreppstjóri,
Sigurður trésmíðam. á Akureyri, Guðrún kona Karls
Friðrikssonar fyrrv. vegaverkstjóra á Akureyri, nú bú-
sett í Reykjavík, og Gyðríður, dáin. — Seinni kona Sig-
urðar var Guðrún Sigfúsdóttir frá Gilsárvallahjáleign,
og voru böm þeirra: a) Hjálmar, nam verzlunarfræði
í Kaupmannahöfn, síðar kaupm. og útgerðarmaður í
Stykkishólmi, d. 1919, kv. fyrst Kristínu Sveinsdóttur
trésmiðs í Stykkishólmi Jónssonar, þau skildu, kv. svo
Soffíu Gunnarsdóttur frá Ljótsstöðum í Vopnafirði,
systur Gunnars skálds, b) Sigríður, giftist Guttormi
Arnasyni frá Finnsstöðum í Eiðaþinghá, og fluttist hún
til Seyðisfjarðar að honum látnum, og lézt þar upp úr
1920, c) Jakob, útgerðarmaður á Seyðisfirði, d. um
1910, kv. frændkonu sinni Önnu Magnúsdóttur tré-
smiðs í Reykjavík Árnasonar, d) Ágiíst, verzlunar- og
framkvæmdarstjóri á Bíldudal, fórst með v/s Þormóði
í febrúar 1953, ásamt konu sinni, Jakobínu Pálsdóttur,
e) Sigurbjörg, giftist Áma Gíslasyni verzlunarmanni,
voru fyrst í Vestmannaeyjum en síðar í Reykjavík, og
er kjörsonur þeirra séra Yngvi Þór pr. að Prestbakka í
Hrútafirði, og Pétur, Stefania, Eyjólfur og Bjarni, og
fóru þau öll til Vesturheims.
Sonur Sigurðar á milli kvenna með Kristínu Jóns-
dóttur frá Geitavíkurhjáleigu, var Jón, d. 1931, bæjar-
fulltrúi á Seyðisfirði og kennari þar í 40 ár, kv. Elísa-
betu Gunnlaugsdóttur Oddsen b. á Ketilsstöðum í Jök-
ulsárhlíð.
Upplýsingar aðallega frá Sigurði Hannessyni, Akureyri, en bor-
ið saman við Ættir Austfirðinga, „Hver er maðurinn" o. fl.
IV. ÁRNI EINAR, f. 1827, d. í Vesturheimi 88 ára
gamall, frumbyggjari Sauðárkróks, sigldur og lærður
trésmiður og stundaði þá iðn alla tíð. Hafði matsölu
lengi á Króknum, og hélt jafnvel uppi sjúkrastofu í
íbúð sinni þar um eitthvert árabil. Kv. Sigríði Eggerts-
dóttur b. á Fossi á Skaga Þorvaldssonar. Fimm börn
þeirra náðu fulltíða aldri, og fóru fjögur þeirra til Vest-
urheims, Teóbald, Eggert, Margrét og Sigriður, ásamt
foreldrum sínum, og var Árni þá nær áttræðu. Eitt
barnanna, Friðrik, varð eftir heima. Stundaði hann
sjávarútveg á Sauðárkróki. Hans dóttir er Málfríður
kona Kristjáns Kristjánssonar forstjóra og bílakaup-
manns í Reykjavík, fyrr á Akurevri. „Ámi var meðal-
maður á vöxt, hraustmenni mikið, myndarlegur, nokk-
uð fljóthuga, og talinn mjög duglegur og góður smið-
ur.“
Heimild: Blaðið Tindastóll.
V. MAGNÚS, f. 1829, d. 1920, lærði trésmíði, fyrst í
Reykjavík, síðan í Kaupmannahöfn. Þótti hann ágætur
smiður, smíðaði m. a. prentvél, var og afkastamaður til
verka, glímumaður, söngmaður og söngelskur. Bjó í
Viðvík og Enni á Höfðaströnd, en flutti til Reykjavík-
ur 1871, og var þar alla tíð síðan. Kv. Vigdísi Ólafs-
dóttur prests í Viðvík Þorvaldssonar. Börn þeirra: Séra
Olafur í Arnarbæli, Sigurður læknir á Patreksfirði, síð-
ast í Ólafsfirði, Kristinn skipstjóri og fisksali, Jósef tré-
smíðameistari, báðir í Reykjavík, Sigríður kona Jóns
Alagnússonar á Grjóteyri í Kjós, Elín kona Sveins Jóns-
sonar trésmiðs í Reykjavík (Sveinn í Völundi) og
Anna átti frænda sinn Jakob Sigurðsson útgerðarmann
á Seyðisfirði.
Heim.: Isl. æviskrár.
VI. INGUNN, f. 1831, fluttist austur í Vopnafjörð
með séra Halldóri Jónssyni og konu hans, giftist þar
Jóni Sölvasyni frá Krossi, Árnasonar. Þau voru lítið við
búskap. Börn þeirra: a) Guðjón Ágiíst b. á Gnýsstöð-
um, kv. Salínu Árnadóttur frá Síreksstöðum, b) Vil-
helmína saumakona'á Vopnafirði, óg. og bl., c) Ragn-
hildur Sveinsína, giftist Sigurði Baldvinssyni er austur
flutti úr Skagafirði með séra Jakob Benediktssyni, og
voru hjá honurn nokkurt skeið á Hallfreðarstöðum, og
d) Gimnþórwm Ingibjörg, ólst upp á Hofi og fluttist
til Reykjavíkur með ekkju séra Halldórs og dó þar óg.
og bl.
Heim.: Ættir Austfirðinga nr. 7743.
VII. SÆMUNDUR, f. 1832, d. 1912, bjó í Víkurkoti
og víðar í Skagafirði. Var tvíkvæntur. K. 1. Sigríður
Jónsdóttir b. í Miðdalsgröf í Strandasýslu Jónssonar,
og Ólafar Björnsdóttur prests í Tröllatungu Hjálmars-
sonar pr. þar, Þorsteinssonar, — ógiftrar. Sigríður ólst
upp hjá séra Ólafi Þorvaldssyni síðast pr. í Viðvík.
Börn þeirra sem upp komust: Margrét, ólst upp hjá föð-
urbróður sínum Magnúsi, en fluttist svo til Vopnafjarð-
ar og giftist Grími Grímssyni síðast bónda í Hvamms-
gerði, og voru böm þeirra mörg, og er eitt þeirra, Sig-
Heima er bezt 215