Heima er bezt - 01.06.1964, Qupperneq 15

Heima er bezt - 01.06.1964, Qupperneq 15
Kristján Ólafsson á þeim aldri er þetta gerðist. og var einn um það af þeim sem þarna voru, enda lagði ég lítið til málanna um ratvísina, en latti þó ekki að fara. Við kveðjum svo Sumarliða, en þegar við vorum komnir kippkorn frá honum, kallar hann á eftir okkur. „Jú, þið snúið við, drengir, heldur en að villast.“ Sumir tóku undir það, en mér fannst þetta skrítið heilræði, því yfirleitt vita menn ekki fyrr en um seinan, að þeir eru komnir í villu. Svo var haldið á fjallið. Við Sturla vorum lausir, nema hvað við drógum sleðann, sem nestistaska okkar var bundin á. Hinir höfðu bagga eins og fyrr getur. Var nú tekið að vinda af suðvestri. Ég tók þegar vel eftir vindstöðunni á okkur, eftir að þeir töldu sig hafa tekið rétta stefnu yfir fjallið, höfðum við þá vind og snjókomu á hægra gagnauga. Ferðin sóttist heldur seint, þar sem baggamir sigu í á brekkuna, og flestir munu hafa verið með það í huga, fyrst í stað, að snúa við, þótt áfram væri haldið með þegjandi þófi. Þegar kom upp á háfjallið, versnaði veðrið til rnuna, svo hvort tveggja var, snjókoma og stormur. Útlitið var því engan veginn gott, þegar við bættist það, að menn gerðust linir undir hinum þungu böggum, til að sækja með þá gegn veðrinu. Var þá numið staðar við vörðu, og skotið þar á ráðstefnu um, hvað nú skyldi afráða, því hér var orðinn nokkur vandi á höndum. Er ekki að orðlengja það, að allir voru á einu máli um, að okkar ferð sem mest við máttum. Klukkan mun hafa verið um hálf sex, þegar við komum að Fossi. Stönzuð- um við þar um stund hjá Sumarliða Jónssyni, því okk- ur leizt ekki á veðrið, sem fór ört versnandi, komin all- mikil snjókoma, en vindur þó hægur. Útlitið fannst okkur heldur skuggalegt. Meðan við ræddum veðrið við Sumarliða, komu tveir menn af Barðaströnd yfir Fossheiði, voru þeir í kaup- staðarferð, og segja okkur, að hann sé farinn að „renna með á heiðina“ (byrja að skafa). Þá komu einnig í sömu andrá fimm menn af Barða- strönd, utan frá Bíldudal, sem einnig voru í kaupstað- arferð, og höfðu varning sinn á bakinu. Voru baggar þeirra um 30 kg. hver. Þessir menn voru: Olafur Jóns- son, ungur maður, bróðir hans, Kristján Jónsson, ung- lingspiltur, Þórður Olafsson og Kristján Olafsson, einn- ig bræður. Þórður var kvæntur, fullorðinn maður, en Kristján ungur ókvæntur maður. Og fimmti maðurinn var Snæbjörn Guðjónsson, unglingspiltur. Nú ráðum við ráðum okkar þarna í hlaðinu á Fossi, hvað gera skuli, en þeir sem voru að koma af heiðinni letja okkur fararinnar, þar sem ágangsveður var kom- ið og degi tekið að halla. Hvort sem þetta var rætt lengur eða skemur, þá var ákveðið að fara. Þeir sögðu sem komu frá Bíldudal, að þeir mundu rata, sumir upp á svokölluð vegamót, en aðrir niður af heiðinni hinum megin. Með það vorum við allir ánægðir. Sjálfur hafði ég aldrei farið þessa leið, Þórður Ólafsson og kona hans Steinunn Júliusdóttir. Heima er bezt 219

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.