Heima er bezt - 01.06.1964, Side 18

Heima er bezt - 01.06.1964, Side 18
HULDA A. STEFANSDOTTIR skrifar fyrir húsmæhur Sveitin kallar yrr Á tímum var það algengt að bændanámskeið voru haldin úti um byggðir landsins. Þangað sóttu bændur úr byggðinni, og menn komu að til að leiðbeina þeim og fræða um hitt og þetta, er að búskap laut. — Man ég ekki betur, en samkomur þessar væru í metum hafðar og bændum þætti fengur í að fá þessa fræðslu, sem var á boðstólum. Það var líka hressing að hitta menn að máli. Þá voru samgöngur strjálar og hver bjó sem mest að sínu. — Blöðin flæddu ekki eins yfir landið þá eins og nú, allar nýjungar voru seinni á sér að berast út til fólksins. Þá var heldur ekki útvarp. Mér er enn í fersku minni frásögn frá einu slíku bændanámskeiði, sem haldið var frammi í Eyjafirði, þegar ég var unglingur. Talsvert margir sóttu námskeið- ið, að sagt var, og þar var kominn ungur búfræðingur, sem átti að tala við fólkið. Hann var fullur áhuga og bjartsýni; hann sá í anda reisulega bæi, þar sem lágreistu torfbæirnir stóðu, og falleg peningshús. Víðáttumikil ræktarlönd og skógarteiga í hlíðunum fyrir ofan bæina. Stórar hjarðir búpenings á beit í högunum og annað eft- ir því, sem of langt yrði upp að telja. En umfram allt yrðu bændur að vinna saman vitandi vits, að „bóndi er bústólpi, bú er landstólpi“. Yngri mennirnir hlustuðu á og hrifust af bjartsýni búfræðingsins. Þeir trúðu á samtök bænda og framtíð sveitanna. Aðrir fóru sér hægar, vissu sem var, að slíkt gerðist ekki á svipstundu, en sagt var, að gamall bóndi, sem hlustaði þó eftir hverju orði búfræðingsins bjart- sýna en óreynda, hefði sagt að ræðu lokinni: „Ja, sá ætti að vita hvað það er að búa og verða heylaus, taðlaus og allslaus." Gamli maðurinn hafði reynt þetta allt og horft upp á aðra, er höfðu fengið sömu útreið. Hann hafði kynnzt hörmungum harðinda og fátæktar og vissi því, hvað hann söng. Ræða unga mannsins fannst honum fjarstæða, draumsýn, sem hefði ekki við neitt að styðj- ast. Gamli bóndinn átti reynsluna að baki, hann horfði aðallega aftur, en ekki fram, sem eðlilegt má telja. Fyrir nokkrum dögum var ég á ferð um Eyjafjörð. Kom þá upp í huga minn þessi gamla saga um unga bú- fræðinginn og gamla bóndann. Hvert sem augað leit, sá ég draum búfræðingsins, hvernig hann hafði orðið að veruleika. Eldð var fram hjá hverju stórbýlinu af öðru. Reisuleg íbúðar- og peningshús voru svo að segja á hverjum bæ. Ræktun hafði auðsjáanlega margfaldazt, og stórar hjarðir búpenings dreifðu sér um víða velli og rifu í sig ilmandi töðugrasið. Öll sveitin var orðin raflýst og ég sá ekki betur en olíugeymir væri við hvern bæ, svo ekki þurfti lengur að hafa áhyggjur af taðinu, eins og í gamla daga. Það var heillandi sjón, sem blasti við augum, hvert sem htið var um þessa yndislegu sveit. Og mér er sagt, að slíkt hið sama hafi gerzt í öllum sveitum landsins, mikil bylt- ing hafi orðið í búskap bænda og draumur búfræðings- ins rætzt þar líkt og í Eyjafirði. Hvergi mun hætta á allsleysi. Velmegun lýsir sér hvarvetna. Þó er það eitt, sem á skortir og það er fólk- ið í sveitina. Á hverju vori er talað um „Pétur og Pál“, sem ætli að hætta búskap, yfirgefa býlin sín, jafnvel þótt enginn komi í þeirra stað. Því er borið við, að gömlu hjónin séu orðin þreytt og börnin vilji ekki vera heima. Hvernig stendur á þessu, að gömul bændaþjóð skuli haga sér þannig, að enginn vill orðið vera í sveit? Er uppeldið orðið svona bágborið, höfum við látið þessa verðlitlu peninga okkar glepja okkur sýn? Hefur vel- megunin orkað þannig á þjóðina, að hún hefur ekki lengur nautn af fegurð náttúrunnar og unaði ræktunar, að láta tvö grös spretta, þar sem áður óx aðeins eitt. Langar ungt fólk ekki lengur til að ganga þreytt til hvílu á kvöldin eftir vel unnið dagsverk, án þess að heimta daglaun að kvöldi? Þeir fara vissulega mikils á mis, sem ekki þekkja vinnugleðina og þann ljúfa unað, sem hvíldinni fylgir að loknu nytsömu starfi. Ef dagblöðunum er flett sést greinilega, að bæirnir eru í vandræðum með uppeldi fólksins. Það eru byggð alls konar heimili fyrir börn og unglinga, sem kosta of- fjár. Þó er uppeldið svo illa á vegi statt, að í hvert sinn sem frídagar eru í bænum, fleiri en einn saman, þá þarf að senda lögreglu út um allar sveitir til að skakka leik unglinganna. Væri ekki hugsanlegt, að beina hugum ungs fólks til sveitanna, að það settist þar að og neytti orkunnar til ræktunar og vaxandi menningar. Er aldrei 222 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.