Heima er bezt - 01.06.1964, Page 19
talað við börnin og unglingana á heimilunum, þannig,
að þau fari að hugsa? Til hvers lifum við? Er einhver
tilgangur með lífi voru, skiptir það nokkru máli, hvað
við hugsum eða gerum? Geta foreldrar ekki leitt hugi
bamanna að því, að þau eru og eiga að vera samverka-
menn á okkar þjóðarakri og þess vegna megi þau ekki
bregðast skyldunni við land og þjóð? Geta foreldrar
ekki glætt ást barna sinni á landið sitt, svo þau fyllist
áhuga fyrír að vinna að ræktun þess og menningu?
Ef slíkt tækist getum við horft vonglöð fram á við.
H. Á. S.
Nokkrir fiskréttir
Fiskurinn er hreinsaður og skorinn í fingurþykkar
sneiðar. Vatnið er sett upp með salti og kryddi og lát-
ið sjóða hægt undir hlemm í 10—15 mín. Fisksneiðarn-
ar eru Iagðar í kryddlöginn og soðnar aðeins þar til fisk-
urinn losnar frá beininu, ef hnífsblaði er smeygt á milli.
Fiskurinn er þá færður upp og lagður á djúpt fat, en
soðið er síað og hellt yfir. Kældur vel, helzt í ísskáp, en
þá þarf að leggja lok á fatið eða breiða yfir það málm-
pappír. Fatið er skreytt með sítrónusneiðum, grænum
salatblöðum og tómötum. Með þessu er gott að hafa
olíu-rjómasósu: 1 bolli olíusósa (majones), 1 bolli þeytt-
ur rjómi, 2 ms. saxaðar sýrðar gúrkur, 2 ms. sýrðar
rauðrófur, 1—2 ms. kapers. Öllu þessu er blandað sam-
an og borið fram í sósukönnu.
ÝSA, krydduð.
1 kg ýsa
1 Vá ts. salt
Safi úr Vz sítrónu
1 laukur
l/8 ts. pipar
1 ms. söxuð steinselja
2 ms. salatolía
1 ms. mjólk
Eggjablanda
Brauðrúst
Smjörlíki.
Ýsan er hreinsuð og flökuð, þerruð og saltinu stráð
yfir hana. Sítrónusafa, söxuðum lauk, olíu, pipar og
steinselju er blandað saman á fati, og í þessum krydd-
legi liggur svo fiskurinn h. u. b. 1 klst. Skorinn í 3—4
stk., sem velt er i eggjablöndu og brauðrúst. Steiktur í
smjörlíki á pönnu fallega ljósbrúnn. Borinn fram með
soðnum kartöflum og grænmeti, t. d. salati í skyrsósu.
FROSIN FISKFLÖK MEÐ GRÆNMETI.
3 ms. smjörlíki
1 laukur
3 gulrætur
100 g hvítkál
1 Vz dl vatn
Va ts. salt
500 g fiskflök
75 gsmjörlíki.
Smjörlíkið er brætt, grænmetið brytjað smátt og lát-
ið smásjóða í smjörlíkinu nokkrar mínútur. En það má
ekki brúnast. Vatni og salti er bætt út í og má ekki
hræra í pottinum eftir það. Fiskflökin eru lögð heil of-
an á grænmetið, salti stráð yfir og smjörlíkið í sneiðum
á fiskinn. Nú er hlemmur lagður á pottinn og grænmeti
og fiskur soðið við hægan hita, þar til allt er soðið, — en
ekki ofsoðið.
Skemmtilegast er að bera þennan rétt fram í pottin-
um, sem hann er soðinn í.
KALDUR LAX EÐA SILUNGUR.
1 kg lax eða silungur
1 1 vatn
1 dl borðedik
1 ms. salt
7 piparkom (heil)
1 lárviðarlauf
1 lauksneið
1 gulrótarsneið.
GÚRKUSALAT. (Sérlega gott með laxi.)
1 gúrka 2 ms. salatolía
Vz ts. salt 1 ms. vínedik
Pipar á hnífsoddi.
Gúrkan er þvegin og sneidd í þunnar sneiðar, sem
lagðar eru á disk og salti stráð milli þeirra. Annar disk-
ur er lagður ofan á og farg, þannig að gúrkusneiðamar
pressist niður, Eftir Va klst. er safanum, sem myndast
hefur á diskinum hellt frá og gúrkusneiðunum blandað
saman við olíu, edik og pipar. — Það er betra að pressa
gúrkusneiðarnar, þó að ýmsum sýnist það óþarfi.
SÚRMJÓLKURSÚPA. (Köld.)
1 Vz 1. góð súrmjólk 1 ts. rifinn sítrónubörkur
1 ms. sykur 2 ts. sítrónusafi
1 egg 1 dl rjómi.
Súrmjólkin er þeytt með sykri og eggi og bragðbætt
með sítrónusafa og sítrónuberki. Rjóminn er þeyttur og
blandað saman við. Ekki er nauðsynlegt að hafa rjóma
í súpuna, en gott er að hafa með henni heimabakaðar
tvíbökur.
TVÍBÖKUR.
250 g hveiti 2 ts. lyftiduft
125 g smjörlíki lA ts. natron
60 g sykur 2 dl súrmjólk.
Va ts. kardimommur
Smjörlíkið er mulið saman við hveitið og sykri,
kryddi og lyftiefni blandað saman við. Vætt í með súr-
mjólkinni og hnoðað. Úr deiginu eru búnar til litlar
bollur, sem bakaðar eru við góðan hita, kældar lítið eitt,
skomar í tvennt þversum með beittum hníf og bakaðar
aftur við meðalhita fallega ljósbrúnar.
K.B.
Heima er bezt 223