Heima er bezt - 01.06.1964, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.06.1964, Blaðsíða 21
Ósengið var mjög eftirsótt til slægna alla tíð, og skák- ir voru seldar dýru verði, væru þær á lausu. En fyrir kom, að „Ósinn“ varð bændum þungur í skauti. Hann átti það til að „kasta“, sem svo var nefnt, á óheppileg- um tíma, og óx svo dagvöxtum, ef svo bar undir. Vildi þá svo til stundum, að engjar fóru undir hann um slátt- inn. Þessum vanda mættu bændurnir með því að samein- ast um að moka Ósinn út. Var þá safnað liði allra þeirra, er land áttu að ósnum. Venjulega leystis vandinn fljót- lega. Þó kom það fyrir, að margar ferðir varð að fara til moksturs, unz útfall náðist. En nú er öldin önnur. Nú ríkir vélaöld í Mýrdal, enda senda þeir nú jarðýtu til slíkra átaka, og munu fá það greitt af opinberu fé. Slík er þróunin á því sviði. Þá þurfti að hafa hæfileika til fleiri hluta en rétt til búskaparins eins til þess að notfæra sér náttúrugæði, sem Mýrdalurinn víðast hvar hafði upp á að bjóða. Sjór var þá sóttur af kappi vetur og sumar, þá er gaf. Þá var og fuglatekja í fjöllunum, og þurfti djarfhuga menn til þess að nytja þær ínytjar. Jón Þorsteinsson var þar réttur maður á réttum stað. Formennsku hóf hann ungur og farnaðist það starf með ágætum. „Víkingur" hét skip hans, og hélt hann því út úr Reynishöfn, meðan hann bjó í Reynisdal. A árunum 1890—1898 voru eigi færri en 18 formenn með skip stærri sem smærri í Mýrdal. Var þar um mikið mann- val að ræða, og farnaðist öllum vel, þótt sótt væri djarft, sem tíðast var. Jón Sverrisson, síðar fiskimatsmaður í Vestmanna- eyjum, var þar háseti á nefndu árabili. Orti hann vísur um alla þessa 18 formenn, og þeirra á meðal Jón í Reyn- isdal. Hans vísa er svo: Frá Reynisdalnum vaskur vendir „Víking“ á um karfalón, frá sér allan ótta sendir ungur Þorsteins niður Jón! Það sagði mér maður, sem lengi var háseti hjá Jóni, að eftirtekt hans og dómgreind á brimsjó hafi verið með eindæmum, enda var maðurinn fráneygur og fylg- inn sér, þá er ákvarðanir skyldi taka. Stjórnsemi hans Vegavinnuflokkur Magnúsar Finnbogasonar i Reynisdal um 1910. Sd yngsti á myndinni er Guðlaugur Brynjólfui fónsson. Jón Þorsteinsson. allri og lagsælni var og viðbrugðið alla tíð af þeim, er voru honum samtíðamenn. Bát átti Jón lítinn, er hann nefndi „Kúða“. A honum reri hann stundum á vorin og sumrin, þá er menn var eigi að fá á sjó vegna hey- anna, og reri þá venjulega við annan mann. Faðir minn Magnús sagði mér frá slíkum ferðum með Jóni. Eitt sinn reru þeir á Kúðanum um sláttinn. Faðir minn fór upp í Reynisdranga að veiða svartfugl í háf, en Jón reri einn á Kúðanum „austur fyrir hraun“ og dró þar ýsu handstinnan. Öfluðu þeir vel og lentu um kvöldið heilu og höldnu í Reynishöfn. Svona róðrar þóttu þá fífldirfska af þeim, sem eigi nutu af. Það má til sanns vegar færa, að djarft hafði verið í ráðizt, slíkir róðrar sem þessir, en allt lukkaðist Jóni, og hafði hann hent gaman að, þá er vandað var um slíka dirfsku við brimströnd. Arið 1901 bregður Jón Þorsteinsson búi í Reynisdal og flytur sig austur yfir Reynisfjall í Víkina. Jörðina seldi hann ungum dugnaðarmanni, Magnúsi Finnboga- syni frá Presthúsum. Víkurkauptún var þá nýtekið að myndast í kringum ungar verzlanir kaupmanna, Brydes og Halldórs Jónssonar. Jóni Þorsteinssyni var að vísu „Víkin“ eigi ókunn, því þar hafði hann alizt upp að nokkru leyti hjá Jóni Jónssyni umboðsmanni í Suður-Vík. Voru þeir góðir Heima er bezt 225

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.