Heima er bezt - 01.06.1964, Side 32

Heima er bezt - 01.06.1964, Side 32
— Ég er heitbundin honum Þorgrími. Steinvöru verður orðfall í bili af undrun. En hún finnur, að hér er þungur örlagaleikur að hefjast á köldu sviði, og hjarta hennar fyllist heitri móðurlegri ástúð til þessarar ungu, saklausu stúlku, sem á auðsjáanlega nauð- ug að leika þar aðalhlutverkið, og Steinvör segir að lok- um: — Gerðir þú það nauðug að lofast Þorgrími? — Já, en ég gat ekki annað foreldra minna vegna. Hann hefur hjálpað þeim svo vel fjárhagslega og er bú- inn að bjóða þeim að kaupa Ytra-Núp á sína ábyrgð, ef ég vilji giftast honum, en .... röddin brestur Svan- hildi. Steinvör þrýstir henni ástúðlega að sér. — Blessað barn, svo þú ætlar að fórna þér fyrir foreldra þína. Þú hefur göfugt hjarta, barnið gott! Það hefðu fáir viljað fórna svo miklu. Ég mun sæmilega vel skilja tilfinning- ar þínar, Svanhildur mín. Mér finnst engin von til þess, að þú hefðir valið Þorgrím af frjálsum vilja þér fyrir eiginmann, þótt ég viti, að hann sé um marga hluti ágæt- ur maður og stórauðugur, og mér finnst það hróplegt ranglæti að fara fram á slíkt við þig. En Guð er réttlát- ur, og hans vegir eru ekki vegir mannanna. — Þetta get- ur allt orðið þér til gæfu og blessunar, þrátt fyrir allt. Fóm þín er byggð á þeim grundvelli. Ég býst við að verða hér áfram, og mundu, að ég vil gera allt, sem í mínu valdi stendur fyrir þig, Svanhildur mín. Svanhildur vefur handleggjunum um háls Steinvarar. — Ég þakka þér fyrir það, Steinvör mín. Þú ert bezti vinurinn, sem ég hefi eignazt á ævinni. Og nú finnst mér ég vera miklu öruggari að mæta þessum örlögum, eftir að hafa trúað þér fyrir þessu. Steinvör þrýstir hlýjum kossi á vanga Svanhildar og segir innilega: — Guð blessi þig og styrki, góða bam! Síðan rísa þær báðar á fætur og ganga saman inn í baðstofuna. Hljóð vetrarnóttin ríkir yfir öllu, og þær gleyma brátt miskunnarlausum raunvemleikanum í draumljúfu skauti hennar. V. Óvæntan gest ber að garði Veturinn er liðinn. Vorið breiðir dýrðarblæju sína um himinn og jörð. Ungur langferðamaður beinir göngu sinni yfir heiði þá, er liggur fyrir ofan Fremra- Núp, og stefnir heim á hreppstjórasetrið. Hann hafði komið með bifreið frá Reykjavík, en steig úr henni við syðri mörk sveitarinnar og kaus að ganga einn síðasta spölinn heim á óðal feðra sinna. Kyrrð heiðarinnar er mild og unaðsrík. Jörðin ang- ar af ungum gróðri, fuglar syngja óð ástarinnar við fag- urbláa heiðartjörn, en þar hafa þeir víða byggt hreið- ur sín. Bústinn sauðfénaður dreifir sér um beitilöndin og nýtur frelsis vorsins. Ungi langferðamaðurinn gengur hægt fram heiðina og nýmr þess ríkulega, sem hún hefur að bjóða. Þetta er allt orðið honum svo framandi. En fyrir eina tíð átti hann mörg spor um þessa heiði. Þá var hann drengur og smali. Nú er hann fulltíða maður, hefur ferðazt um framandi lönd, lokið námi í verkfræði úti í Noregi við góðan orðstí, og þar hafði honum boðizt glæsileg fram- tíðarstaða. En erlendis gat hann ekki fest rætur að fullu. Hann þráði alltaf að komast heim aftur á fornar slóðir og dreymdi um að njóta lífsins, þar sem vagga hans forðum stóð. Og nú er hann loksins kominn heim. Hann er staddur þar sem Núpurinn rís hæst fyrir of- an bæinn að Fremra-Núpi, og lítur þaðan ofan á æsku- heimili sitt. Þar er allt að sjá hið ytra með sömu um- merkjum, og þegar hann kvaddi það fyrir átta árum og hélt af stað út í stóran og ókunnugan heim ævintýranna. Hann sezt niður á mjúka mosabreiðu og andar að sér ilm og angan jarðarinnar. I þessum jarðvegi liggja hans dýpstu rætur, og hér finnur hann fyllingu lífsins. Hann horfir um stund heim að Fremra-Núpi, og draumljúf, unaðsleg tilfinning nær sterkum tökum á vitund hans. Hann rís aftur á fætur, hleypur ofan Núp- inn, út á þjóðveginn og gengur síðan heim að bænum. Heimilisfólkið á Fremra-Núpi er allt að störfum úti við nema Svanhildur. Hún er ein í bænum og þvær mikinn þvott. Loksins hefur hún fyllt stóran bala af fullþvegnum fatnaði og gengur með hann út að þvotta- snúrunum, sem standa frammi á hlaðinu, til að hengja hann þar upp til þerris. VorsóHn skín björt í heiði, og suðrið andar heitri golu yfir sveitina. Svanhildur keppist við að klemma þvottinn á snúr- urnar. En þrátt fyrir annríkið verður henni ósjálfrátt litið niður á þjóðveginn, sem liggur rétt við túnið, og hún veitir þegar athygli fótgangandi ferðamanni, er kemur sunnan veginn og miðar vel áfram. Hann hefur stóran bakpoka spenntan um herðar sér, en annar far- angur er ekki sjáanlegur. Svanhildur fylgist með ferð- um mannsins og sér brátt, að hann beygir heim að Fremra-Núpi. Sennilega bókasölumaður! hugsar hún. Þvotturinn er allur kominn á snúrurnar, og Svanhild- ur hraðar sér aftur inn í bæinn með tóman balann, án þess að bíða komu ferðamannsins, sem aðeins á eftir smáspöl heim á hlaðið. En hún hefur naumast losað sig við þvottabalann, er röskleg högg á bæjardymar gefa til kynna, að gestur bíði fyrir utan. Svanhildur gengur þegar til dyra og opnar þær. Úti á hlaðinu stendur ungur ókunnur maður og býður henni hæversklega góðan dag. Svo réttir hann henni höndina: Komdu sæl, nafn mitt er Trausti Þorgrímsson. — Komdu sæll. Ég heiti Svanhildur Einarsdóttir. Gesturinn virðir hana fyrir sér nokkur andartök, en spyr svo glaðlega: — Er húsbóndinn heima? — Hann er heima við, en ekki í bænum nú sem stend- ur. Viltu eltki gera svo vel að koma inn og bíða hans, líklega kemur hann bráðlega. — Jú, ég þakka þér fyrir. Komumaður losar af sér 236 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.